TIL LEIGU: Fullbúin með gólfefnum, rúllugardínum, tækjum og ljósakösturum, tilbúin til afhendingar.
Nánar um eign 01-0503 á Sólvallagötu 79: Eignin er þriggja herbergja herbergja íbúð á 5. hæð (efsta hæð) merkt 01-0503, birt stærð 89,1 fm. Eigninni tilheyrir geymsla í kjallara merkt 0003 birt stærð 7,2 fm. Eigninni tilheyra svalir merktar 0512. Birt heildarstærð séreignar er 96,3 fm.
Gólfhiti - Gólfsíðir gluggar - Vandaðar innréttingar og gólfefni - Flott sjávar- og fjallaútsýni.
Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Svefnherbergi I: Gott svefnherbergi með fataskáp.
Hjónasvíta er rúmgóð og björt með gólfsíðum gluggum og innbyggðum fataskápum.
Baðherbergi með Walk-in sturtu, flísum á gólfi og á hluta af veggjum. Handklæðaofn, upphengt salerni, baðinnrétting með handlaug og spegil.
Stofa, borðstofa og eldhús er opnu og björtu alrými með gólfsíða glugga, útsýni og útgengi út á svalir sem snúa í vestur.
Eldhús er með vandaða innréttingu, gott skápa- og skúffu pláss, undirlímdur vaskur, bökunarofn í vinnuhæð, helluborð, innbyggð uppþvottavél og innbyggður ísskápur með frystir.
Sér þvottahús er með flísum á gólfi, tengi og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Skolvask og efri skápa.
Íbúðirnar umlykja flestar fallegan inngarð þar sem líf og samfélag rennur saman og skapar nánd milli íbúa. Í hverju skrefi var hugað að þægindum, notagildi og stíl sem fellur vel að umhverfi við Sjávarsíðuna.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir:
Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali í síma 858-7410 eða gj@remax.is