RE/MAX Ísland logo
Skráð 9. júlí 2026
Söluyfirlit

Stuðlasel 27

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-109
224.4 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
135.900.000 kr.
Fermetraverð
605.615 kr./m2
Fasteignamat
135.900.000 kr.
Brunabótamat
116.300.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Sigrún Matthea Sigvaldadóttir
Sigrún Matthea Sigvaldadóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1978
Þvottahús
Garður
Gæludýr leyfð
Sérinngangur
Fasteignanúmer
2054105
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Ekki vitað / upprunalegar
Raflagnir
Ekki vitað / upprunalegar
Frárennslislagnir
Ekki vitað / upprunalegar
Gluggar / Gler
Endurn.að hluta á efri hæð
Þak
Ekki vitað / upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Seljandi er að leita tilboða varðandi endurnýjun á þaki, þakkanti og svalahandriði. 
Gallar

Húsið þarfnast einhverra múrviðgerða, 
Svalahandrið ófrágengið. 
Móða er í gleri í borðstofu, svefnherbergisgangi og sprunga í gleri glugga í svefnherbergi I. 
Skemmd í parketi við svalahurð og vantar gólflista að hluta
Þak: Seljandi hefur ekki átt við þakið frá því hann keypti 30.11.2012.  
Þakkantur: Þarf að yfirfara og endurnýja.  
Hurð út í garðinn er orðin léleg. 
Handrið á svölum óklárað. 
Grindverk lóðar fer að þarfnast viðhalds að hluta til.
 
Gott hús á góðum stað í Seljahverfi,  hús teiknað af Kjartani Sveinssyni 
RE/MAX og Sigrún Matthea lgf., kynna:  Gott einbýlishús teiknað af Kjartani Sveinssyni, hús á mjög góðum stað í Seljahverfi, Stuðlasel 27 einbýli á tveimur hæðum 4 svefnherbergi,  hægt að bæta við herbergjum td. í bílskúr eða stúka af borðstofu.  Innbyggður tvöfaldur bílskúr, gróinn garður. Eign innst í botnlanga. Þaðan er stutt í skóla, ýmsar verslanir og þjónustu.
** EIGN SEM VERT ER AÐ SKOÐA **   
Hér getur skoðað eignina í 3D 
Viltu sækja söluyfirlit strax
upplýsingar veitir Sigrún Matthea lgf.     eða heyrðu í mér í síma 695-3502    líka hægt að senda tölvupóst á sms@remax.is

Lýsing eignar: 
Neðri hæð:
Forstofa: Fataskápar flísar á gólfi. Gólfhiti.
Hol / sjónvarpshol: Panell á vegg flísar á gólfi, innangengt í bílskúr úr holi. 
Svefnherbergisgangur:  4 svefnherbergi, þvottahús og  baðherbergi.
Baðherbergi:  Eikar innrétting m/ handlaug, walk in sturta, baðkar m/ sturtuaðstöðu, upphengt salerni, handklæðaofn,gluggi til loftunar, flísar á gólfi og veggjum. Gólfhiti.
Þvottaherbergi:   Er á teikningum föndurherbergi. Flísar á gólfi. ATH. Hægt er að opna inn í geymsluna í bílskúr frá þvottahúsi og nýta sem fataherbergi eða línherbergi.
Svefnherbergin eru fjögur, tvö þeirra hafa verið sameinuð í eitt, en þó eru hurðar fyrir bæði herbergin og því auðvelt að skilja þau að með millivegg.
Svefnherbergi I:  Hjónaherbergi - Fataskápar, harðparket á gólfi. 
Svefnherbergi II:  Harðparket á gólfi og fataskápur ofan á parketi. 
Svefnherbergi III og Svefnherbergi IV:  Stórir fataskápar frá IKEA og harðparket á gólfi.  Herbergin eru nýtt í dag sem eitt stórt herbergi en auðvelt er að breyta aftur í tvö herbergi.
Gólfefni neðri hæðar eru flísar og harðparket á svefnherbergjum. (Pergo parket frá Agli Árna)
Gengið af svefnherbergisgangi út í garðinn á hellulagða verönd og gróinn garð.
 
Efri hæð: 
Björt og rúmgóð stofa / borðstofa: Harðparket á gólfi. Arinn í stofu, gengið úr stofu út á svalir. Handrið á svölum óklárað.  
Eldhús: Rúmgott eldhús, mjög gott skápa og vinnupláss, ofn í vinnuhæð, helluborð,  háfur yfir helluborði, innbyggð uppþvottavél (2022) borðkrókur og inn af eldhúsi er búr / geymsla með hillum og opnanlegum glugga.
Gestasalerni:  Eikar innrétting með handlaug og vegghengt salerni, flísar á gólfi og veggjum. 
Gólfefni efri hæðar er flísar og harðparket (Pergo parket frá Agli Árna)
 
Bílskúr: Tvöfaldur bílskúr (þó aðeins ein bílskúrshurð á braut), geymsla inn af upp eitt þrep. Gluggar eru á bílskúr til suðurs en geymslu vestan megin. Innangengt er í bílskúr úr holi.  
ATH. Hægt er að opna inn í geymsluna í bílskúr frá þvottahúsi og nýta sem fataherbergi eða línherbergi.
Eigninni fylgir geymsluskúr á lóð og rúmgott bílaplan sem tekur amk. 6 bíla í góðri stærð.  Garður er gróinn. 
 
Endurbætur eigenda: 
2013 - Innihurðir (Birgisson) og öll gólfefni endurnýjuð 
2014 - Innréttingar og blöndunartæki á baðherbergjum endurnýjuð 
2019 - Svalir steyptar og bætt í járnabindingu árið 2019  handrið ófrágengið. 
2021 - Ofnar endurnýjaðir: hjónaherbergi, sjónvarpsholi, stigapalli og eldhúsi. Aðra ofna í flestum rýmum utan stofu, borðstofu og bílskúrs hefur seljandi skipt um frá 2013.
2022 - Bílastæði hellulagt ( til 2 1/2 palletta til viðbótar fylgir með) hellulögn er ekki fullfrágengin. 
2022 - Gluggar og gler í stiga, í stofunni á suðurhlið hússins, ný svalahurð og nýir gluggar og gler við svalir.


Ásett verð miðast við ástand eignar eins og hún er í dag og tekur væntanlegur kaupandi við eigininni samanber lýsingu eignar hér í söluyfirliti. 
Ef eignin væri í óaðfinnanlegu ástandi, þá væri söluverð hennar töluvert hærra. 


Eignin er mjög vel staðsett í Seljahverfi Reykjavíkur og stutt er í ýmsa þjónustu verslanir og skóla. Grunn og leikskólar eru í göngufæri.
Upplýsingar um eignina veitir Sigrún Matthea lgf.,  í síma 695-3502   eða á netf:  sms@remax.is


Í lögum um fasteignakaup lög nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. RE/MAX fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á  að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.  

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800,-  af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar.  Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m/vsk.  

 

 

Sambærilegar eignir

Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Friggjarbrunnur 35
113 Reykjavík
233.3 m2
Parhús
623
600 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Tangabryggja 13
110 Reykjavík
191 m2
Fjölbýlishús með lyftu
623
759 þ.kr./m2
144.900.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Bakkasel 20
109 Reykjavík
261.1 m2
Raðhús
825
535 þ.kr./m2
139.700.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Þorláksgeisli 46
113 Reykjavík
190 m2
Raðhús á tveimur hæðum
524
763 þ.kr./m2
144.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin