RE/MAX Ísland logo
Opið hús:04. nóv. kl 16:30-17:00
Skráð 1. nóv. 2026
Söluyfirlit

Markland 6

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
55.6 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
59.900.000 kr.
Fermetraverð
1.077.338 kr./m2
Fasteignamat
53.600.000 kr.
Brunabótamat
29.900.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Guðmundur Þór Júlíusson
Guðmundur Þór Júlíusson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1972
Garður
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2037932
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Endurnýja að hluta.
Raflagnir
Endurnýjað innan íbúðar.
Frárennslislagnir
Þakrennur endurnýjaðar.
Gluggar / Gler
Endurnýjaðir 2026
Þak
Endurnýjað að hluta.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Út frá stofu.
Lóð
11,87
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Guðmundur Þór Júlíusson & Ástþór Reynir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:

Björt og falleg 2ja herbergja íbúð með stórum suðurpalli við Markland 6, 108 Reykjavík. Um er að ræða vel skipulagða og mikið endurnýjaða 55,6 fermetra 2ja herbergja búð á 1. hæð með góðum sérafnotareit til suðurs í fallegu og vel viðhöldnu fjölbýlishúsi. Stofa er rúmgóð og opin við eldhús með góðum gluggum til suðurs. Útgengi á sérafnotareit til suðurs úr svefnherbergi. Fallegt útsýni úr alrými og frá sérafnotareit yfir Fossvogsdalinn og að Kópavogi. Tengi fyrir þvottavél innan íbúðar og sérgeymsla á jarðhæð.

✅ Bókið skoðun hjá Gumma Júl í síma 858-7410 / gj@remax.is
✅ Bókið skoðun hjá Ástþór Reyni í síma 899-6753 / arg@remax.is


Nánari lýsing:
Forstofa: Með harðparketi á gólfi og skápum.
Stofa: Er rúmgóð, björt og með harðparketi á gólfi. Gluggar til suðurs með fallegu útsýni yfir Fossvogsdalinn. Stofa er opin við eldhús og rúmar setustofu og borðstofu.
Sérafnotareitur/garður: Er timbur pallur og snýr til suðurs. Útgengi á sérafnotareit frá svefnherbergi. Fallegt útsýni frá garðinum
Eldhús: Með harðparketi á gólfi og fallegri nýlegri eldhúsinnréttingu. Innbyggð Bosch uppþvottavél, Electrolux bakaraofn og keramik helluborð. Lýsing undir skápum og nýleg blöndunartæki.
Svefnherbergi: Með harðparketi á gólfi, góðum skápum og gluggi til suðurs.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi, flísalögð sturta, hvít baðinnrétting við vask, speglaskápur, handklæðaofn, salerni og útloftun. Tengi fyrir þvottavél innan baðherbergis.

Húsið lítur vel út að utan. Að sögn seljanda var húsið múrviðgert og málað á árunum 2018 - 2019. Íbúðin sjálf var mikið endurnýjuð á árunum 2016 - 2017, m.a. gólfefni og eldhús. Rafmagnstafla hefur auk þess verið endurnýjuð. Árið 2022 var Baðherbergið endurnýjað. Allir gluggar voru endurnýjaðir 2026.

Lóðin er afar snyrtileg með hellulagðri stétt fyrir framan hús. Garðurinn er vel hirtur, tyrfður og hekk sem skilur að sérafnotareit og sameiginlega lóð. Sameigin er afar snyrtileg. Steinteppi við sameiginlega forstofu og nýlegt teppi (2018) á stigagangi.

Kjallari:
Sérgeymsla: Málað gólf og hillur.
Vagna- og hjólageymsla: Sameiginleg. Málað gólf, útgengi á framlóð, hjólasnagar og gluggi til norðurs.
Þvottaherbergi: Sameiginlegt. Málað gólf, gluggi til norðurs.

Staðsetning eignarinnar er afar góð á eftirsóknarverðum stað við Fossvogsdalinn í Reykjavík þaðan sem stutt er í skóla, leikskóla og íþróttasvæði. Fallegar hjóla- og gönguleiðir í næsta nágrenni sem liggja um Fossvogsdalinn, inn í Elliðaárdalinn, Nauthólsvík og víðar.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir: 
Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali í síma 858-7410 eða gj@remax.is
Ástþór Reynir löggiltur fasteignasali í síma 899-6753 eða arg@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

Sambærilegar eignir

Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Álftamýri 16
108 Reykjavík
74 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
312
809 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Mánagata 7
105 Reykjavík
52 m2
Fjölbýlishús
211
1.096 þ.kr./m2
57.000.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Bláhamrar 2
112 Reykjavík
64,6 m2
Fjölbýlishús
211
896 þ.kr./m2
57.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Hagamelur 12
107 Reykjavík
68,1 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
211
880 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin