RE/MAX Ísland logo
Opið hús:21. sept. kl 17:00-17:45
Skráð 17. sept. 2026
Söluyfirlit

Úugata 66

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær-270
244.3 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
159.900.000 kr.
Fermetraverð
654.523 kr./m2
Fasteignamat
139.250.000 kr.
Byggt 2025
Þvottahús
Sérinngangur
Fasteignanúmer
2524852
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Forsteypt
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
1
Lóðarréttindi
Leigulóð
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
5 - Tilbúin til innréttingar
RE/MAX / Brynjar Ingólfsson kynnir: Nýtt – Glæsilegt einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bílskúr við Úugötu 66 í Mosfellsbæ. Eignin er einstaklega vönduð og hugað hefur verið að hverju smáatriði.

SKOÐAÐU EIGNINA AÐ INNAN Í 3D HÉR (EKKI ÞÖRF Á SÉRSTÖKU FORRITI)

- Eignin er skráð samtals 244,3 m², þar af 204,5 m² íbúðarhús og 39,8 m² bílskúr.
- Húsið er steypt og býður upp á einstaklega gott fjölskylduskipulag með fjórum svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum.
- Til greina kemur uppítaka á byggingarlóð eða minni eign.
- Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.


Nánari lýsing:
Eignin skiptist í forstofu, rúmgóða stofu og borðstofu, eldhús, sjónvarpshol, hjónaherbergi, þrjú barnaherbergi, tvö baðherbergi, þvottahús og innbyggðan bílskúr.
Eignin er skráð á byggingarstigi B3 en er komin töluvert lengra í frágangi en almennt felst í því byggingarstigi.
Veggir hafa verið spartlaðir, grunnaðir og málaðir eina umferð og hljóðdúkur er kominn í loft að mestu ásamt innfelldri lýsingu.
Rafmagn er fullfrágengið með Plejd-stýrikerfi og húsið er með gólfhita.
Gólf eru flotuð og rykbundin og bílskúrsgólf er með epoxy-frágangi.
Baðherbergi eru flísalögð í hólf og gólf með fallegum flísum úr Flísabúðinni. Upphengt klósett, walk in sturtur með innbyggðum tækjum, handklæðaofn.
Lagnir fyrir eldhús og tæki eru frágengnar. Lagnaleið er einnig til staðar fyrir heitan pott á verönd ásamt Danfoss heitapottastýringu og gert er ráð fyrir möguleika á saunaklefa.
Undirbúningur er fyrir rafbílahleðslu við bílskúr.

Húsið er byggt úr forsteyptum einingum frá BM Vallá. Álklæddir timburgluggar eru frá BYKO og þak er fullfrágengið með bárujárni, álköntum og niðurföllum.
Lóðin er að frágengin með hellulögðu bílastæði, gönguleið að húsi, timburveröndum við útganga úr stofu og sjónvarpsholi og þökulögn á sólarhlið.

Tillögur að innréttingum, parketi og hurðum liggja fyrir og áætlaður kostnaður við þann frágang er um 9 m.kr. uppsett. Möguleiki er á að fá húsið afhent fullbúið eða eftir nánara samkomulagi.

Staðsetning
Eignin er vel staðsett í fjölskylduvænu hverfi í Mosfellsbæ. Stutt er í Helgafellsskóla, sem er bæði leik- og grunnskóli, auk þess sem náttúra og fallegar gönguleiðir eru í næsta nágrenni.

Allar frekari upplýsingar um eignina veitir:
Brynjar Ingólfsson MSc, löggiltur fasteignasali í síma 666 8 999 / brynjar@remax.is
Byggt 2025
39.8 m2
Fasteignanúmer
2524852
Byggingarefni
Forsteypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Matsstig
5 - Tilbúin til innréttingar

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Reykjabyggð 47
270 Mosfellsbær
205.2 m2
Einbýlishús á einni hæð
524
777 þ.kr./m2
159.500.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin