RE/MAX Ísland logo
Opið hús:02. nóv. kl 17:30-18:00
Skráð 28. okt. 2026
Söluyfirlit

Furugrund 79

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
98.7 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
Verð
82.900.000 kr.
Fermetraverð
839.919 kr./m2
Fasteignamat
78.100.000 kr.
Brunabótamat
53.800.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Guðlaug Jóna Matthíasdóttir
Guðlaug Jóna Matthíasdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1979
Garður
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2060974
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Númer íbúðar
3
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
RE/MAX ásamt Guðlaugu Jónu lgf. og Garðari Hólm lgf. kynna: Bjarta og fallega 4ra herbergja endaíbúð á besta stað við Furugrund 79, Kópavogi. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er íbúðin 98,7 fm auk geymslu í kjallara sem ekki er talin inn í fermetrafjölda íbúðarinnar. 
Eignin er á frábærum stað við Fossvogsdalinn. Stutt er í alla helstu þjónustu svo sem leik- og grunnskóla, matvörubúð og íþróttasvæði.



Nánari lýsing:
Forstofa: Með góðum innbyggðum fataskáp, flísum á gólfi og fínu plássi fyrir fatahengi og skóhirslu. 
Eldhús: Innréttingin er dökkgrá, með ljósri borðplötu. Gott skápa- og vinnupláss með góðri lýsingu. Flísar eru milli efri og neðri skápa. Span helluborð og nýlegur bakaraofn. Góður borðkrókur er í eldhúsi. Stór gluggi með opnanlegu fagi gerir rýmið einstaklega bjart. Flísar á gólfi.
Þvottahús: Er inn af eldhúsi með góðri borðplötu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Útdraganlegar snúrur. Opnanlegur gluggi er á þvottahúsi. Flísar á gólfi.
Borðstofa/Stofa: Eru samliggjandi, bjart og rúmgott rými. Þar eru gluggar á tvo vegu ásamt útgengi á góðar svalir í vestur. Parket á gólfi. 
Baðherbergi: Er með salerni, baðkari með sturtuaðstöðu og hvítri innréttingu með handlaug. Góður speglaskápur er á vegg fyrir ofan handlaug. Opnanlegur gluggi er á baðherbergi. Flísar á gólfi og veggjum. 
Hjónaherbergi: Er rúmgott með góðum innbyggðum fataskápum upp í loft. Parket á gólfi.
Herbergi II & III: Eru með nýlegum fataskápum og parketi á gólfi.
Geymsla: með hillum er í kjallara og er ekki inni í fermetratölu íbúðarinnar. 
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla auk þurrkaðstöðu er í sameign. 


Framkvæmdir síðustu ár:
- 2024: Skipt um glugga á austur- og suðurhlið
- 2022: Skipt um hurðir í sorpgeymslu og hjólageymslu.
- 2018: Skipt um rennur á austurhlið. Drenlögn endurnýjuð á austur- og suðurhlið. Hiti lagður í stétt.
- 2012: Húsið málað að utan og skipt um hluta af gluggum.

Nánari upplýsingar um eignina veita:
Guðlaug Jóna lgf. í gegnum gulla@remax.is eða s. 661-2363
Garðar Hólm lgf. í gegnum gardar@remax.is eða s. 899-8811


 

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Álfhólsvegur 15
200 Kópavogur
118 m2
Fjölbýlishús með sérinngangi
312
719 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Hafnarbraut 18
200 Kópavogur
77 m2
Fjölbýlishús með lyftu
211
1.045 þ.kr./m2
80.500.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Hafnarbraut 18
200 Kópavogur
77,2 m2
Fjölbýlishús með lyftu
211
1.030 þ.kr./m2
79.500.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Hafnarbraut 18
200 Kópavogur
83,8 m2
Fjölbýlishús með lyftu
211
1.032 þ.kr./m2
86.500.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin