RE/MAX Ísland logo
Opið hús:09. nóv. kl 17:00-17:30
Skráð 4. nóv. 2026
Söluyfirlit

Laugalind 3

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-201
146.7 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
114.900.000 kr.
Fermetraverð
783.231 kr./m2
Fasteignamat
93.650.000 kr.
Brunabótamat
77.750.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Brynjar Ingólfsson
Brynjar Ingólfsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1998
Þvottahús
Garður
Útsýni
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2233125
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Sjá lýsingu
Þak
Upprunalegt - Sjá lýsingu
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Já
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Brynjar Ingólfsson MSc. og löggiltur fasteignasali kynnir: Laugalind 3 í Kópavogi – sérlega fallega og mikið endurnýjaða fjögurra herbergja íbúð með bílskúr, suðursvölum og glæsilegu útsýni. Eignin er samtals 146,7 m² og er á þriðju hæð í fimm íbúða fjölbýlishúsi. Gengið er upp tvær hæðir (efstu). Vinsæl staðsetning í Lindarhverfi, stutt frá Lindarskóla og fjölbreyttri verslun og þjónustu við Lindir og í Smáralind.

– Þrjú svefnherbergi
– Rúmgóðar suðursvalir og glæsilegt útsýni
– 29,4 m² bílskúr með góðri lofthæð og gluggum
– Sér þvottahús innan íbúðar
– Parket endurnýjað árið 2019
– Borðplata, vaskur og spanhelluborð í eldhúsi endurnýjuð árið 2022
– Fimm gluggar í herbergjum endurnýjaðir árið 2025
– Nýr Siemens-bakarofn og nýir fataskápar í hjónaherbergi árið 2026
– Umfangsmikið viðhald á húsi að utan árið 2025


SKOÐAÐU EIGNINA Í 3D HÉR

Samkvæmt skráningu Fasteignaskrár er íbúðin 112,2 m², merkt 01-301, sérgeymsla 5,1 m², merkt 01-106, og bílskúr 29,4 m², merkt 01-104. Samtals er eignin því 146,7 m².

Nánari lýsing:
Forstofa og gangur:
Komið er inn í forstofu og þaðan er gengið eftir gangi inn í bjart alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu. Eitt svefnherbergi er við forstofu en tvö svefnherbergi og baðherbergi eru á herbergjagangi.
Eldhús: Falleg sérsmíðuð hvít innrétting með góðu skáparými og bakarofni í vinnuhæð. Árið 2022 var sett ný borðplata frá Fanntófell, niðurlímdur vaskur og nýtt spanhelluborð. Bakarofn frá Siemens var endurnýjaður árið 2026. Tengi er fyrir uppþvottavél. Tvöfaldur Samsung ísskápur með klakavél fylgir. Loft er niðurtekið með innbyggðri lýsingu.
Stofa og borðstofa: Bjart og rúmgott rými með glæsilegu útsýni. Frá borðstofu er útgengi á rúmgóðar suðursvalir.
Svefnherbergi: Þrjú svefnherbergi. Hjónaherbergið er rúmgott og þar voru settir nýir fataskápar með lýsingu árið 2026. Fataskápar eru einnig í barnaherbergjum. Fimm gluggar í herbergjum voru endurnýjaðir árið 2025.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með baðkari, sturtuklefa, upphengdu salerni, baðinnréttingu, skáp og handklæðaofni. Gólfhiti er á baðherbergi.
Þvottahús: Rúmgott sér þvottahús inn af eldhúsi með glugga, hvítri innréttingu, góðu vinnuborði og vaski.
Geymsla: Sérgeymsla á jarðhæð, 5,1 m².
Bílskúr: Rúmgóður 29,4 m² bílskúr með góðri lofthæð, flísalögðu gólfi, rafdrifnum hurðaopnara, heitu og köldu vatni og vinnuborði. Loft var klætt og lýsing endurnýjuð árið 2023.

Viðhald og endurbætur:
Eigninni hefur verið vel við haldið og fjölmargar endurbætur gerðar á bæði íbúð og sameign undanfarin ár. Parket var endurnýjað árið 2019 og eldhús uppfært árið 2022 með nýrri borðplötu, vaski og spanhelluborði. Gluggar í herbergjum voru endurnýjaðir árið 2025 og bakarofn og fataskápar í hjónaherbergi árið 2026.
Í sameign voru dyrasímar endurnýjaðir árið 2022. Árið 2023 var steining sílanborin og varin og gólf í hjólageymslu málað. Bílskúrshurðir voru málaðar árið 2024 og sett ný hreyfiskynjaralýsing í alla sameign. Árið 2025 var ráðist í umfangsmikið viðhald undir umsjón Verksýnar, meðal annars málun húss að utan, endurnýjun glugga, lagfæringar á þaki, viðgerðir á múr og steiningu og nýja útihurð í bílageymslu.

Falleg og vel skipulögð fjölskyldueign með þremur svefnherbergjum, suðursvölum, glæsilegu útsýni og rúmgóðum bílskúr á eftirsóttum stað í Lindarhverfi Kópavogs.

Allar frekari upplýsingar um eignina veitir:
Brynjar Ingólfsson MSc, löggiltur fasteignasali í síma 666 8 999 / brynjar@remax.is
Byggt 1998
29.4 m2
Fasteignanúmer
2233125
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
04
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
12.250.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Silfursmári 2 (10-06)
201 Kópavogur
123,2 m2
Fjölbýlishús með lyftu
312
1.006 þ.kr./m2
123.900.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Arnarsmári 40
201 Kópavogur
127,3 m2
Fjölbýlishús með lyftu
423
840 þ.kr./m2
106.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Nýbýlavegur 104
200 Kópavogur
136,8 m2
Fjölbýlishús
42
768 þ.kr./m2
105.000.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Tröllakór 2-4
203 Kópavogur
159,8 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
413
688 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin