RE/MAX Ísland logo
Skráð 5. júní 2026
Söluyfirlit

Reykjadalur 3A

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær-271
454.6 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
285.000.000 kr.
Fermetraverð
626.925 kr./m2
Fasteignamat
188.200.000 kr.
Brunabótamat
199.450.000 kr.
Byggt 2018
Þvottahús
Garður
Sérinngangur
Fasteignanúmer
2082270
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunarlegt frá 2018.
Raflagnir
Upprunarlegt frá 2018.
Frárennslislagnir
Upprunarlegt frá 2018.
Gluggar / Gler
Upprunarlegt frá 2018.
Þak
Upprunarlegt frá 2018.
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Verönd / sólpallur út frá stofu.
Upphitun
Hitaveita.
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Ástþór Reynir og Guðmundur Þór Júlíusson löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í sölu:

Reykjadalur 3A - Mosfellsdalur
Um er að ræða 231,7 m2 íbúðarhús, ásamt 85,9 m2 auka íbúð/gestahús og 137 m2 bílskúr og geymsla samtals 454,6 m2. Húsið stendur á fallegri lóð
við Reykjadalsafleggjara í Mosfellsdal. Mikill trjágróður er á jörðinni - Áin Suðurá rennur með suðurlóðarmörkum. Stórt bílaplan, stórt opið bílskýli.
Hellulögð gönguleið og verönd við íbúðarhúsið
. 

ATH. Einnig er mögulegt að fá keypt Reykjadal 3b á sömu lóð, sjá nánar hér Reykjadalur 3b

Bókið skoðun hjá Ástþór Reyni í síma 899-6753 eða með tölvupósti á arg@remax.is eða á Gumma Júl í síma 858-7410 eða á gj@remax.is

Nánari lýsing:


Íbúðarhúsið er að mestu leyti fullbúið að utan sem innan. Húsið var byggt árið 2018 og er vel skipulagt þar sem hvert rými nýtist einstaklega vel. Komið er inn í
forstofu með flísum á gólfi, fataskáp og fatahengi. Inn af forstofu er þvottahús með flísum á gólfi, góðum innréttingum og sér útgengi. Einnig er snyrtilegt
gestasalerni með upphengdu salerni og fallegri innréttingu.
Alrýmið er einstaklega vel heppnað, með mikilli lofthæð, góð hljóðvist og flísar á gólfi. Þar er stórt eldhús með góðri eyju, miklu borðplássi og ríflegu
skápaplássi. Í eldhúsinu eru heimilstækin innbyggð. Stofan er rúmgóð og björt, með stórum gluggum og fallegum arni. Úr alrýminu er einnig gengið inn í
sjónvarpsherbergi. Á efri hæð er herbergi/skrifstofurými.
Á svefnherbergisgangi er gert ráð fyrir stóru hjónaherbergi með sérbaðherbergi og fataherbergi. Úr hjónaherbergi er einnig hægt að ganga út í garð. Þá eru
þrjú rúmgóð barnaherbergi með teppaflísum á gólfum og millilofti með gluggum.
Við enda svefnherbergisgangs er stórt baðherbergi með rúmgóðri sturtu og innréttingu með góðu borð- og skápaplássi. Þaðan er útgengi út í garð og á pall með heitum potti. Á
baðherberginu eru flísar á gólfum og veggjum.

Íbúðarhúsið var byggt á árunum 2018–2026. Utanhússklæðning er bandsagað, hvíttað lerki. Þak er lektað og klætt með Aluzink bárujárni. Timbur-/álgluggar
og útihurðir eru frá Velfac.
Gólfhiti er í öllum rýmum á jarðhæð og að auki eru ofnar í herbergjum neðri hæðar og undir stórum stofugluggum, allt á lokuðu kerfi. Neysluvatn er hitað með
varmaskipti. Í húsinu er loftræstikerfi frá Systemair, þar sem innblástur er í svefnherbergi og alrými en útsog frá blautrýmum.
Hljóðdeyfandi loft er í öllu alrými og tryggir mjög góða hljóðvist.

Bílskúr, aukaíbúð, geymsla og opið bílskýli voru byggð á árunum 2024–2026. Utanhússklæðning þessara bygginga er úr Viroc steinplötum. Þök eru
lektað og klædd með Aluzink bárujárni.


Bílskúr: Bílskúrinn er stór og rúmgóður, mikil lofthæð, tvær 4m háar innkeyrsluhurðir. Góð geymsla er tengd bílskúrnum. Að innan er bílskúrinn langt
kominn og að utan er hann klæddur að stórum hluta með Viroc-klæðningu. Til hliðar við bílskúrinn er stórt bílskýli sem rúmar auðveldlega tvo bíla. Fyrir framan
húsið er gott bílaplan sem býður einnig upp á hringakstur.

Aukaíbúð: Búið er að ganga frá rakavörn og einangrun útveggja. Allir milliveggir hafa verið reistir og einfaldaðir og eru tilbúnir fyrir lagnir. Einnig hefur verið
gengið frá einangrun milligólfs.

Eignin býður því upp á einstakt tækifæri fyrir nýja eigendur til að fullklára aukaíbúðina eftir eigin þörfum og hugmyndum.

Einstaklega falleg og gróin lóð við Reykjadalsafleggjara í Mosfellsdal, á jörðinni er mikill og fallegur trjágróður sem skapar skjólgott og notalegt umhverfi. Á
lóðinni er stórt bílaplan með góðu aðgengi, rúmgott opið bílskýli og snyrtilega frágengnar hellulagðar gönguleiðir. Við íbúðarhúsið er falleg verönd sem býður
upp á notalega dvalarstund í rólegu umhverfi, með útsýni yfir gróður og náttúru svæðisins.
Þetta er einstök eign á eftirsóttum stað þar sem sveitasæla og nálægð við höfuðborgarsvæðið fara saman á einstaklega heillandi hátt.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir: 
Ástþór Reynir löggiltur fasteignasali í síma 899-6753 eða arg@remax.is
Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali í síma 858-7410 eða gj@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.
Byggt 2018
99.7 m2
Fasteignanúmer
2082270
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
164.100.000 kr.
Lóðarmat
24.100.000 kr.
Fasteignamat samtals
188.200.000 kr.
Brunabótamat
64.800.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Byggt 2020
132 m2
Fasteignanúmer
2082270
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
69.850.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin