Sigrún Gréta hjá RE/MAX kynnir stúdíóíbúð á 7. hæð í lyftuhúsi í Fannborg 1 í Kópavogi. Björt og falleg íbúð með fallegu útsýni til fjalla (Snæfellsjökul, Esjuna o.fl.), yfir í Öskjuhlíðina og út á sjó. Húsið er miðsvæðis í Kópavogi og því er göngufæri í alla helstu þjónustu, veitingastaði og skóla á öllum stigum. Einnig er stutt í útivistarsvæði niður í Kópavogsdal og Fossvogsdal.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / sigrun@remax.is
Eignin skiptist í forstofu, baðherbergi, eldhús og stofurými með svefnrými. Sér geymsla er á jarðhæð. Eignin er skráð hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun 40,3 m2. **HÉR MÁ NÁLGAST 3D MYNDBAND AF EIGNINNI. KÍKTU Í HEIMSÓKN !*VINSAMLEGA SMELLIÐ HÉR TIL AÐ BÓKA TÍMA Í SKOÐUN MÁNUD. 20. OKT. Söluyfirlit má nálgast hérNánari lýsing:Forstofa er inn af dúklagðri sameign með lyftu. Stigapallur er mjög rúmgóður og aðgengi inn í fimm íbúðir og smeiginlegar svalir. Innan íbúðar er komið inn á parketlagt hol. Inn af holi eru stórir fataskápur sem nær upp í loft.
Stofurými er mjög björt og rúmast vel sófi, borð og stólar. Inn af stofu er
svefnaðstaða. Parket á gólfi.
Eldhús er með gluggum á tvo vegu. Innréttingin er frá 2013, er á einum vegg og ná efri skápar upp í loft. Ofn og helluborð eru í innréttingu og stæði er fyrir uppþvottavél eða lítinn ísskáp.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Hvítar flísar upp veggi og ljósdrapplitaðar á gólfi. Skápaeining undir handlaug og upphengt salerni var endurnýjað 2013. Hornsturtuklefi er nýr frá 2019 og veggfestur speglaskápur með ljósi nýr frá 2024. Stæði og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla er í sameign í kjallara (götuhæð neðan við hús). Birt stærð 3,4 m2.
Húsið var múrviðgert og málað 2016-2018. Opnanleg fög í íbúð eru nýleg. Þak viðgert í Fannborg 1 sumar 2025. Íbúðin var endurnýjuð 2013, þ.e. innréttingar, gólfefni og tæki. Rafmagnstafla í sameign er nýleg. Ofnar í öllum stigagöngum er verið að endurnýja og er til fyrir þeim framkvæmdum. Ofnar í íbúð eru upprunalegir.
Hlutfall eignar í heildarhúsi og lóð er 1,86%.Fasteignamat eignar árið 2026: 41.200.000 kr.
-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sigrún Gréta löggiltur fasteignasali í síma 864 0061 eða sigrun@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila. Reiknast af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald eftir gjaldskrá lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-