RE/MAX Ísland logo
Opið hús:27. júlí kl 17:00-17:30
Skráð 23. júlí 2026
Söluyfirlit

Laufrimi 87

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
182 m2
6 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
138.900.000 kr.
Fermetraverð
763.187 kr./m2
Fasteignamat
128.650.000 kr.
Brunabótamat
103.550.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Bjarný Björg Arnórsdóttir
Bjarný Björg Arnórsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1994
Þvottahús
Garður
Sérinngangur
Fasteignanúmer
2215734
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Vatnslagnir inn á bað og eldhús endurnýjaðar 2026
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegar
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Seljandi er að gera upp baðherbergið og verður það fullbúið fyrir afhendingu. 
Fyrirhugað er að mála húsin að utan næsta sumar.
RE/MAX & Bjarný Björg Arnórsdóttir Lgf kynnir:
Bjart og vel skipulagt endaraðhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr í Rimahverfi, Reykjavík. Eignin er 182,0 fm samkvæmt HMS og er í rólegu hverfi. Eignin skiptist í forstofu, þvottahús, hol, eldhús, stofu / borðstofu, 3-4 svefnherbergi, baðherbergi og innangengt í bílskúr. 
Mjög skemmtileg og fjölskylduvæn eign sem vert er að skoða.

Nánari upplýsingar gefur :
Bjarný Björg Arnórsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 694-2526 / bjarny@remax.is  

Forstofa 
er flísalögð með fatahengi. 
Stofa / borðstofa er rúmgóð og björt með parket á gólfi. Góð lofthæð. Útgengt út á góðan sólpall með heitum potti. 
Eldhús er með hvítri innréttingu nýrri innréttingu. Nýjar flísar á gólfi. Áfastur bekkur í U var smíðaður og sérsmíðað eldhúsborð fylgir með eigninni.
Svefnherbergi 1 er með parket á gólfi og góðum fataskápum.
Svefnherbergi 2 er með parket á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 3 er á eftir hæðinni og er það rúmgott með parket á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er verið að endurnýja, verður það flísalagt með fallegum gráum flísum, handklæðaofn, sérsmiðuð ljósri innréttingu með skápum og handlaug og "walk in" sturtu. Opnanlegur gluggi.
Þvottahús er rúmgott með flísum á gólfi. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. 
Ris með opnu rými sem nýtt er í dag sem sjónvarpsherbergi og stóru svefnherbergi.
Bílskúr er inngengur frá anddyri og er með góðu baðherbergi þar sem er sturtuklefi og klósett. 
Fyrir framan húsið og bílskúr eru góð bílastæði. 
Sólpallur er með heitum potti. 

Viðhald og endurbætur samkvæmt seljanda:
Baðherbergi verður endurnýjað að fullu fyrir afhendingu eignar. Gerð verður walk-in sturta með Grohe sturtutækjum og sérsmíðuðu reykmettuðu sturtugleri. Nýtt vegghengt klósett verður fært undir gluggann, settur handklæðaofn, nýjar gráar stórar flísar á gólf ásamt hvítum flísum með svörtum æðum sem fer á vegg í sturtu rými. Flísar, klósett og sturtutæki koma frá BYKO. Skipt verður um loft og sett ný innfellanleg ljós. Sérsmíðuð hvít innrétting frá Fríform kemur eftir öllum veggnum með háum skáp á endanum. Stór spegill með ljósi verður fyrir ofan innréttingu.
Allar vatnslagnir inná baðherbergi og eldhús var skipt út árið 2026.
Eldhús var endurnýjað árið 2026. Nýjar flísar settar á gólf, lofti skipt út og sett dimmanleg innfelld ljós. Innrétting og borðplata var endurnýjuð og sérsmíðaður tækjaskápur settur upp. Lögn fyrir vatnsvél í ísskáp var lögð. Áfastur bekkur í U var smíðaður og sérsmíðað eldhúsborð fylgir með eigninni.
Þakkantur var málaður 2025.
Sett var hurð út frá baði og út í garð ásamt nýjum glugga 2024.
Lögð útiljós við bílastæði 2024.
Auka baðherbergi með vaski, skáp, vegghengdu klósetti og sturtu var bætt við innan bílskúrs ásamt nýjum lögnum þangað 2023.
Nýir fataskápar settir í 2 barnaherbergi 2021.

Nærumhverfi : 
Fjölskylduvæn og vinsæl staðsetning þar sem er í göngufæri m.a. leikskólar grunnskóli (Rimaskóli) og framhaldsskóli (Borgarholtsskóli), verslun og þjónusta í Spönginni sem og íþróttir og sundlaug (Grafavogslaug) í göngufæri.
Nánari upplýsingar gefur :
Bjarný Björg Arnórsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 694-2526 / bjarny@remax.is  

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. (Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4%)
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - sjá heimasíður lánastofnanna.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900. kr. m.vsk.
 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Barðastaðir 41
112 Reykjavík
225.6 m2
Raðhús á tveimur hæðum
614
664 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Sóleyjarimi 35
112 Reykjavík
210.7 m2
Raðhús á tveimur hæðum
524
688 þ.kr./m2
144.900.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Funafold 18
112 Reykjavík
172.6 m2
Parhús á tveimur hæðum
715
782 þ.kr./m2
134.900.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Stuðlasel 27
109 Reykjavík
224.4 m2
Einbýlishús á tveimur hæðum
614
606 þ.kr./m2
135.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin