Skrifstofa fasteignasölunnar verður lokuð frá kl. 12.00, fimmtudaginn 6. nóvember 2025 til kl. 13.00, mánudaginn 10. nóvember.

Hægt er að nálgast símanúmer og netföng sölumanna hér á heimasíðu okkar.

RE/MAX Ísland logo
Skráð 7. nóv. 2025
Söluyfirlit

Laxatunga 142

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær-270
126.5 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
114.700.000 kr.
Fermetraverð
906.719 kr./m2
Fasteignamat
89.000.000 kr.
Brunabótamat
68.440.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2017
Þvottahús
Garður
Útsýni
Gæludýr leyfð
Sérinngangur
Fasteignanúmer
2315352
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Forsteypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegt/nýlegt
Raflagnir
Upprunalegt/nýlegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt/nýlegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt/nýlegt
Þak
Upprunalegt/nýlegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
RE/MAX og Guðrún Lilja löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Einstaklega fallegt og vel skipulagt fjögurra herbergja 126,5 fm. raðhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr á rólegum og eftirsóttum stað í Leirvogstungu Mosfellsbæ. Íbúðarýmið er 102,2 fm. og skiptist í forstofu, eldhús opið til borðstofu og stofu, þrjú mjög rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi og geymslu. Bílskúr er skráður 24,3 fm., hár til lofts og með góðu geymslulofti. Snyrtileg aðkoma er að húsinu, hellulagt bílaplan með snjóbræðslu. Stór skjólverönd er fyrir framan hús til suðurs og verönd með heitum potti og garði til norðurs.   

Gott og vel skipulagt fjölskylduhús á rólegum og eftirsóttum stað í Leirvogstungu. 

KÍKTU Í HEIMSÓKN OG SJÁÐU EIGN Í 3D MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

FÁÐU SÖLUYFIRLIT MILLILIÐALAUST MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

Upplýsingar og bókun fyrir einkaskoðun veitir Guðrún Lilja í síma 867-1231 eða með tölvupósti á netfangið gudrunlilja@remax.is.  

Nánari lýsing:
Forstofa
er með góðum fataskápum, parketflísar á gólfum. Þaðan innangengt í bílskúr.
Eldhús er opið til borðstofu og stofu, með fallegum hvítum innréttingum og viðarborðplötu. Flísar á milli skápa. Gott geymslupláss og bökunarofn í vinnuhæð. Úr eldhúsi er útgengt út í garð norðanmegin. Stór og skjólgóð viðarverönd með heitum potti.
Stofa og borðstofa er í björtu opnu rými með aukinni lofthæð, harðparket á gólfum. Úr stofu er útgengt út á stóra og skjólgóða viðarverönd til suðurs með útigeymslu.
Svefnherbergin eru þrjú, öll mjög rúmgóð og björt með harðparketi á gólfum. Hjónaherbergi er með góðum opnum fataskápum og annað svefnherbergið einnig með fataskáp.
Baðherbergi er mjög fallegt og stílhreint. Vaskinnrétting með góðu geymsluplássi og speglaskáp með lýsingu. Sturta með glerþili, upphengt salerni og handklæðaofn. Flísalagt í hólf og gólf. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi.
Geymsla er innan íbúðarýmis.
Bílskúr er skráður 24,3 fm., hár til lofts og með góðu geymslulofti. Í bílskúr er góð innrétting fyrir þvottvél og þurrkara ásamt skolvaski. Rafdrifin bílskúrshurð með fjarstýringu og grunnstöð er fyrir rafmagnsbíla (á sér rafmagnsmæli). Varmaskiptir fyrir neysluvatn er bílskúr ásamt stýringum fyrir heitan pott.

Húsið er steinsteypt einingahús með gólfhitakerfi, einangrað að utan með svargrárri steinsalla veðurkápu. Þak með 1x6 klæðningu og Aluzink 0,6 mm. Útihurð, svalahurð og gluggar eru grámálaðir timbri/áli frá Glerborg. Lausafögin eru með gúmmíþéttingum, lömum með opnunaröryggi og læsingum með næturopnun. Gler er tvöfalt einangrunargler (K-gler) í öllum gluggum.  Hurðir með gúmmíþéttingum, 5 punkta læsingu og hurðahúnum. 

Byggingaraðili: SS hús ehf. 
Byggingarstjóri: Hans Ragnar Þorsteinsson
Arkitekt: KRark ehf Kristinn Ragnarsson 
Verkfræði og lagna- teikningar: Verkfræðistofan Víðsjá ehf 
Raflagnateikningar: Umsjá ehf rafteiknistofa
Einingar: Einingarverksmiðjan 

Leirvogstunga er afar fjölskylduvænt hverfi, skipulagt með einungis sérbýlum í útjaðri höfuðborgarinnar þar sem lögð er áhersla á nálægð við náttúruna. Gönguleiðir um hverfið tengjast við gönguleiðir á fell og dali í næsta nágrenni. Stutt göngufjarlægð í laxveiði, hestamannahverfi Harðar, Tunguvöll og flugklúbb Mosfellsbæjar, fallegar göngu og hjólaleiðir ásamt mótorsporti. Stutt er í skóla og verslanir þar sem Tunguvegur tengir hverfið við Varmárskóla, Kvíslarskóli, íþróttamiðstöðina og miðbæ Mosfellsbæjar, allt í innan við 2-3 mín. akstursfjarlægð en einnig gengur skólabíll í Varmárskóla og strætó á 15 mín fresti um hverfið. Akstursfjarlægð frá miðbæ Reykjavíkur er um 15-20 mín.  Innan hverfis er einnig leikskóli, upplýstur battavöllur og körfuboltavöllur. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.   2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.  3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.   4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.
Byggt 2017
24.3 m2
Fasteignanúmer
2315352
Byggingarefni
Forsteypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Brunabótamat
9.440.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2025 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin