RE/MAX Ísland logo
Opið hús:13. maí kl 17:30-18:00
Skráð 9. maí 2025
Deila eign
Deila

Efstaleiti 13

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-103
145.4 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
119.900.000 kr.
Fermetraverð
824.622 kr./m2
Fasteignamat
104.950.000 kr.
Brunabótamat
93.730.000 kr.
Mynd af Þorsteinn Ólafs
Þorsteinn Ólafs
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2020
Þvottahús
Garður
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2368803
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
14
Vatnslagnir
Hús byggt 2020
Raflagnir
Hús byggt 2020
Frárennslislagnir
Hús byggt 2020
Gluggar / Gler
Hús byggt 2020
Þak
Hús byggt 2020
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Í hásuður
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Þorsteinn Ólafs og RE/MAX kynna vel skipulagða 145,4 fm 3ja herbergja íbúð á 1. hæð í nýlegu tveggja hæða fjölbýlishúsi við Efstaleiti 13 í Reykjavík. Þar af er 10,6 fm geymsla í kjallara og 30,9 fm bílskúr. Innréttingar eru sérstaklega vandaðar. Eigninni fylgja einnig tvö sérmerkt bílastæði í lokuðu bílastæðahúsi og er stærð þeirra ekki inni í fermetratölu eignarinnar. Góð eign á vinsælum stað.
Nánari upplýsingar veitir Þorsteinn Ólafs löggiltur fasteignasali í síma 842 2212 eða á netfangið to@remax.is.

Í íbúðinni er alrými stofu og borðstofu með eldhúsi, tveimur svefnherbergjum, baðherbergi og þvottaherbergi. Svefnherbergin eru rúmgóð og baðherbergið er með baði og walk-in sturtu, handklæðaofni, innréttingu með vaski og speglaskáp. Íbúðinni fylgir sér geymsla í kjallara auk hlutdeildar í sameign s.s. hjóla- og vagnageymslu.  Bílskúr er í kjallara auk tveggja stæða í bílageymslu.

Hér má sjá 3D af íbúðinni:

Nánari lýsing eignar:
Gengið er inn í opna rúmgóða forstofu. Inn af henni er alrýmið með mjög rúmgóðri stofu og borðstofu og er eldhúsið opið í stofurnar.  Í forstofu er góður fjórfaldur skápur. 
Stofan er rúmgóð, falleg og björt með stórum gluggum til suðurs með parketi á gólfum. Útgengt er út á suðurverönd úr stofu. 
Í eldhúsi eru glæsilegar innréttingar, innbyggð uppþvottavél, gott skápa- og borðpláss, steinn í borðplötum, span helluborð og parket á gólfi.
Baðherbergið er flísalagt með góðum innréttingum, steini í borðplötu, walk-in sturtu með glerhurð og baðkari, upphengdu salerni og handklæðaofni.
Þvottahúsið er flísalagt með vaski og með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara inn af  eldhúsi. 
Bæði svefnherbergin eru rúmgóð með góðu skápaplássi í hjónaherberginu og parketi á gólfum. 
Sér geymsla er í kjallara auk 30,9 fm bílskúrs og tveggja sérmerktra bílastæða.
Snyrtileg sameign.  

Glæsileg eign:
Rut Káradóttur innanhússarkitekt sá um litaval og samsetningu innréttinga sem eru hannaðar af GKS og smíðaðar af Nobilia í Þýskalandi.
Vandaðar flísar á baðherbergi og þvottahúsi frá MARAZZI.
Borðplata í eldhúsi og baðherbergi er úr náttúrustein (Dekton) frá Rein Steinsmiðju.
Ljósleiðari er kominn inn í íbúðina. 
Hleðslukerfi er fyrir rafbíla og notkun og þjónustugjald er innheimt með húsgjöldum beint til notenda. Ísorka rekur kerfið.


Staðsetning:
Efstaleitið er í sannkölluðu miðborgarhverfi í göngufæri við helstu verslunar- og þjónustukjarna borgarinnar og falleg útivistarsvæði. Garðurinn er gróðursæll og skjólsæll með reiðhjólaskýlum, leiksvæði og hreyfistöð. Kaffihús er staðsett á jarðhæð við Efstaleiti 25 með skemmtilegu útisvæði. Efstaleitið er nútímalegt íbúðahverfi á einum besta stað í borginni.


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. RE/MAX bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af löggiltum fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá. Hafið samband við Þorstein Ólafs lögg. fasteignasala í síma 842 2212 eða á netfangið to@remax.is. og við munum verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
Byggt 2020
Fasteignanúmer
2368803
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B7
Númer eignar
0
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Brunabótamat
8.540.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Byggt 2020
Fasteignanúmer
2368803
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B7
Númer eignar
1
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Brunabótamat
8.540.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Byggt 2020
30.9 m2
Fasteignanúmer
2368803
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
00
Númer eignar
46
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Brunabótamat
12.850.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Opna eign
3D Sýn
65 ára og eldri
Opið hús:05. des. kl 16:30-17:00
Image
Opna eign
Skúlagata 40B
101 Reykjavík
154.9 m2
Fjölbýlishús með lyftu
412
761 þ.kr./m2
117.900.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Sogavegur 129
108 Reykjavík
153 m2
Einbýlishús á þremur hæðum
715
751 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Opna eign
Bílastæði
Image
Opna eign
Hringbraut 120
101 Reykjavík
128.7 m2
Fjölbýlishús með lyftu
322
1009 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Mánatún 11
105 Reykjavík
133.5 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
312
853 þ.kr./m2
113.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
remax@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2025 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin