RE/MAX Ísland logo
Skráð 1. sept. 2026
Söluyfirlit

Drangsskarð 11

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-221
111.4 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
101.000.000 kr.
Fermetraverð
906.643 kr./m2
Fasteignamat
79.050.000 kr.
Brunabótamat
69.300.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Pétur Ásgeirsson
Pétur Ásgeirsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2022
Þvottahús
Garður
Sérinngangur
Fasteignanúmer
2528468
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
hiti í gólfum
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Pétur Ásgeirsson löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX fasteignasölu kynnir: Mjög falleg og vel skipulögð 111,4 fm, 3-4 herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi og glæsilegum sérafnotareit  við Drangsskarð 11D í  Hafnarfirði. 
Eignin skiptist í: Forstofu, eldhús/ stofu/borðstofu, sjónvarpshol, 2 svefnherbergi, baðherbergi.

Hér getur þú gengið í gegnum eignina í 3D: Ýtið hér

- Svansvottað.
- Loftskiptakerfi.
- Hægt að bæta 3 svefnherberginu við.
- Sérinngangur.
- Bílastæði með hleðslustöð.
- Sérafnotareitur með heitum potti.
- Gólfhiti.


Nánari lýsing:
Anddyri: Flísar á gólfi og með stórum fataskáp.
Eldhús: Parket á gólfi, glæsileg innrétting með góðu skápa- og borð plássi ásamt eldunareyju.
Stofa/borðstofa: Parket á gólfi, opið og bjart rými með gólfsíðum gluggum. Útgengt út á rúmgóðan sérafnotareit sem snýr í suðvestur með heitum potti. 
Setustofa: Parket á gólfi, mjög auðvelt að bæta við  3 svefnherberginu þar.
Hjónaherbergi: Parket gólfi og með stórum fataskáp.
Barnaherbergi: Parket gólfi og með fataskáp.
Baðherbergi: Flísalagt á gólfi og hluta af veggjum. Stór spegill, handlaug í innréttingu, handklæðaofn, upphengt og innbyggt salerni og walk in sturtu.
Þvottahús/geymsla: Flísar á gólfi,mjög rúmgott með stórum búrskáp, þvottahússkáp og innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara.

Í sameign er sorpgeymsla, hjóla- og vagnageymsla ásamt tæknirými

Nánari lýsing:
SVANSVOTTUN

Það þýðir að húsin eru byggð eftir gæðakerfi þar sem tekið er á fjölmörgum þáttum sem byggingarreglugerð nær ekki yfir að sama marki.
Má þar nefna: lágmarks rekstarkostnaður, valin byggingarefni með hollustu íbúa og umhverfisáhrif í huga.
LOFTRÆSTIKERFI
Í hverri íbúð er sjálfstætt Komfovent loftræstikerfi sem að blæs inn í öll rými íbúðar fersku lofti sem að hitað er upp með lofti sem að sogað er út.
Nýtnin á orkunni þar er um 87%. Þetta þýðir lægri rekstrarkostnað en umfram allt betri loftgæði. Kerfið heldur líka loftinu á hreyfingu og í því eru líka síur fyrir loftið sem blásið er inn.
GÓLFHITI
Upphitun er með gólfhita en eini ofninn er handklæðaofn. Gólfhitagrindin er innfeld í veggnum og lokað með þjónustulúgu.
Gólfhiti og loftræstikerfi vinna mjög vel saman og skila góðum loftgæðum.
BAÐHERBERGI
Stór og breið sturta. Sturtuglerið er ekki með slá heldur svörtum ramma og stöng upp í loft. Vandaðar flísar 60*60 flísar bæði á veggjum og gólfi. Spegill með baklýsingu. Innbyggður klósettkassi.
STÓRIR FATASKÁPAR
Stórir skápar bæði í anddyri og báðum svefnherbergjum. Skáparnir sem eru frá ikea eru frekar vel búnir af innvolsi en með einni ferð í IKEA geta kaupendur mótað þá eftir sínum þörfum.
ELDHÚS
Eldhúsborðið vegg megin er með dýpri borðplötu þannig að rými er fyrir kaffivél, brauðrist og slíkt fyrir innan án þess að rýra vinnu plássið á borðinu. Tenglar eru undir yfir skápnum
þannig að auðvelt er að þrífa vegg plötuna á bak við sem að er hvít og slétt. Dekton borðplötur frá Cosentino úr quartz steini. Simens raftæki, spanhelluborð er fellt niður í steinborð
þannig að það er slétt við borðplötuna. Undirfelldur eldhúsvaskur. Undir efriskápum er LED undirskápaljós.  Bakhliðin á eldhús eyjunni er klætt með hljóðdempandi þiljum.
INNFELLD LED LÝSING
Yfir eyju og framan við svefnherbergi eru innfelld 2ja metra LED ljós sem gefa nútímalegan tón og birtu..
RAFLAGNIR
Tenglar og rofar eru svart efni úr Q-línunni frá Berker.
GÓLFEFNI
Parketið er Buckingham eik og er 12 mm harðparket frá Byko og er með hörkustuðulinn AC5/33. Undir öllum gólfefnum, parketi jafnt sem flísum er
hljóðdempandi undirlag bæði á efri og neðri hæðum.
YTRA BIRGÐI
KLÆÐNING
Lárétt svart klassískt bárujárn. Sementsplötur frá Viroc. Standandi 22 mm opin timbur klæðning í anddyrum, svölum og svalainnskotum.
TORFÞAK
Bara eins og í gamla daga þá er torfþak á húsinu með úthagatorfi sem aldrei þarf að slá. Friðað svæði fyrir fugla og fallegt útsýni úr sumum íbúðanna.
VIÐHALDSLÉTT LÓÐ
Göngustígar eru hellulagðir og með snjóbræðslu [ASI2] sem og allar tröppur. Þrír hvíldarpallar eru án snjóbræðslu. Lóðin er tyrfð með tvenns konar torfi
sem að hvorugt þarfnast mikillar umhirðu. Við lóðarmörk bæði austan og vestan megin er úthagatorf sem þarf  aldrei að slá en á sérafnotaflötum og
innar í lóðinni er hvítsmáratorf. Lesa má um þessar torftegundir inni á torf.is. Bílastæðin eru með nautsterkum Ecoraster grindum fylltum af möl.
ÚTILÝSING
Útilýsingin sem er við öll anddyri er 2ja metra innfelld óbein LED lýsing. Tröppur í lóð eru með handriðum með lýsingu undir handlistanum.
Útilýsingin gefur einstaklega fallegt yfirbragð yfir eignirnar þegar dimma tekur.

Nánari upplýsingar gefur Pétur Ásgeirsson  löggiltur fasteignasali í síma 893-6513 / petur@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

Sambærilegar eignir

Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Drekavellir 4
221 Hafnarfjörður
157.4 m2
Fjölbýlishús með sérinngangi
514
698 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Kríuás 17A
221 Hafnarfjörður
122.6 m2
Fjölbýlishús
413
750 þ.kr./m2
91.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Hringhamar 15,íb. 503
221 Hafnarfjörður
97.8 m2
Fjölbýlishús með lyftu
312
970 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Hringhamar 15,íb.702
221 Hafnarfjörður
100.2 m2
Fjölbýlishús með lyftu
312
917 þ.kr./m2
91.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin