Guðlaugur J. Guðlaugsson og Gunnar Sverrir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:
Glæsilegt um 251 fm einbýlishús teiknað af Kjartani Sveinssyni. Einstök staðsetning á Flötunum á grónum og skjólsælum stað.
Húsið var mikið endurnýjað á árunum 2011/2012, m.a. voru innréttingar, gólfefni, neyslu og ofnalagnir, skolplagnir og raflagnir endurnýjaðar á þessum tíma. 2025 var einnig gerð endurnýjun. Skipt var um palla á lóð, settur hitaveitupottur frá Trefjum með wifi stýringu. Lýsing var endurnýjuð sett led lýsing með Plejd stýringu. Bætt var við herbergi á neðri hæð og settur gluggi á norður hlið. Flíslagt var í anddyri og neðri hæð og parket pússað. Settur var marmari á eldhús.
Húsið skiptist í anddyri, stofu, borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi á efri hæð, baðherbergi, þvottahús. Á neðri hæð eru tvö svefnherbergi, baðherberbergi og sér geymsla.
Samþykkt var um 30 fm. stækkun á húsinu og búið er að greiða gatnagerðargjöld af því. Stækkunin felur í sér að byggja bílskúr og anddyri framan við húsið.
Lóðin hefur verið endurnýjuð að hluta og drenað með húsinu. Pallar eru á baklóð og á suðvestur hlið hússins. Niðurgrafið trampólin og gerfigras meðfram. Rúmgóður geymsluskúr er á baklóð.
Bókið skoðun hjá Gulla í síma 661 6056 eða með tölvupósti á netfangið gulli@remax.is / eða hjá Gunnar Sverrir í síma 862-2001 / gunnar@remax.isLýsing eignar:Efri hæð:Anddyri: Opið og bjart anddyri með flísum á gólfi.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og veggjum. Baðkar og sturta. Góð innrétting. Útgangur útá baklóð með aðgang að heitum potti.
Eldhús: Snyrtilegt eldhús með parketi á gólfi og falleg sprutuð innrétting með marmara á borði. Eldhúsinnrétting nær upp í loft og er með góðum búrskáp. Innbyggð uppþvottavél, tvöfaldur ísskápur og gashelluborð. borðkrókur er við eldhúsið.
Borðstofa: Er rúmgóð með parketi á gólfi og stórum gluggum inn í bakgarð. Útgengi er úr borðstofu útá verönd.
Stofa: Er stór með parketi á gólfi og stórum glugga til suðurs með útsýni yfir Flatahraun.
Svefnherbergi: Er rúmgott með parketi á gólfi og fataherbergi.
Svefnherbergi: Með parketi á gólfi.
Svefnherbergi: Með parketi á gólfi.
Neðri hæð:Svefnherbergi: Er rúmgott með parketi á gólfi og miklu skápaplássi
Svefnherbergi: Með parketi á gólfi og baðherbergi innaf. Baðherbergi er með flísum á gólfi, sturtu og innréttingu.
Geymsla er undir stiga.
Inngangur er á neðri hæð.
Glæsileg eign sem vert er að skoða, góð og eftirsótt staðsetning.
Nánari upplýsingar veita: Guðlaugur J. Guðlaugsson/Gulli löggiltur fasteignasali í síma
661-6056 / gulli@remax.is og Gunnar Sverrir löggiltur fasteignasali í síma
862-2001 / gunnar@remax.is
Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Hafið samband og við munum verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0.5% - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-