SMELLTU HÉR OG SJÁÐU EIGNINA Í 3VÍDD
NÁNARI UPPLÝSINGAR FÆRÐU HJÁ GUÐNÝJU ÞORSTEINS Í SÍMA 7715211 EÐA GUDNYTH@REMAX.IS
RE/MAX og GUÐNÝ ÞORSTEINS Löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Fjölskylduvænt og gott 2 hæða 179,9fm steypt parhús með bílskúr við Fífuvelli 31 í Hafnarfirði sem byggt var árið 2004.
Eignin samanstendur af: Forstofu og holi, 3 svefnherbergjum, sjónvarpsholi, 2 baðherbergjum, þvottahúsi, eldhúsi, stofu/borðstofu og bílskúr.
Nánari lýsing1. hæð:Forstofa: Er virkilega rúmgóð með þreföldum skápum. Flísar á gólfi.
Baðherbergi: Úr forstofu er gengið inn í lítið salerni með sturtu. Gluggi er með opnanlegu fagi. Físar á gólfi.
Bílskúr: Úr forstofu er innangengt í bílskúrinn sem er með rafdrifinni hurð ásamt 22kw hleðslustöð.
Þvottahús: Er einnig inna af forstofu, rúmgott með góðri innréttingu og útgangi út á sólpallinn. Flísar á gólfi. Gluggi með opnanlegu fagi.
Sólpallur: Er ??fm að stærð með heitavatnspotti ásamt skjólveggjum, snýr í suðvestur, hitastýring fyrir pottinn er öflugt blöndunartæki í þvottahúsi. Einnig er rúmgóður geymsluskúr á pallinum.
Hol: Úr anddyri er gengið inn í flísalagt hol.
Eldhús: Eldhús er rúmgott með sprautulakkaðri innréttingu, steini á borðum með niðurfelldum vask, gaseldavél með viftu fyrir ofan, bakaraofn í vinnuhæð og pláss fyrir tvöfaldan ísskáp. Flísar á gólfi.
Stofa: Er rúmgóð og björt með niðurlímdu viðarparketi. Útgangur er út í garð úr stofunni.
Garður: Er afgirtur með fallegum gróðri og er villtur að hluta til.
Stigi: Úr holi er gengið upp steyptan viðarlagðan stiga upp á aðra hæð. Stigahandrið úr burstuðu stáli og við. Stór gluggi hleypir inn birtu upp stigaganginn.
2. hæð er með aukinni lofthæð.Sjónvarpshol: Gengið er upp á aðra hæð beint inn í sjónvarpsholið. Sérsmíðuð lítil innrétting er fyrir sjónvarp. Plastparket á gólfi.
Herbergi I: Er með góðum fataskápum. Í sökkli á skáp eru útdraganlegar skúffur. Plastparket á gólfi.
Herbergi II: Er með skáp. Plastparket á gólfi.
Herbergi III: Er rúmgott með plastparketi á gólfi.
Baðherbergi: Baðkar með sturtu í ásamt glervegg, fíbó þiljur á hluta veggja. Handklæðaofn ásamt skáp. Flísar á gólfi. Hiti í gólfi. Gluggi er með opnanlegu fagi.
Viðhald:2024 - Eldhúsinnréttingin sprautulökkuð af fagmanni
2024 - Bakaraofn endurnýjaður
2024 - Sólpallur pússaður upp og olíuborinn
Þetta er vel skipulögð eign á góðum stað á Völlunum í Hafnarfirði. Góðar almenningssamgöngur eru í gegnum hverfið. Hraunvallaskóli er í göngufæri. 3 leikskólar eru í hverfinu. Ásvallalaug er í göngufæri. Íþróttamiðstöð Hauka er á Ásvöllum. Önnur þjónusta s.s. verslun, bakarí, matsölustaður, líkamsrækt, apótek, hótel ofl. er í göngufæri. Víða eru göngustígar, bæði til að auðvelda samgöngur í hverfinu og til að vernda hraunlandslag sem er fellt að skipulagi hverfisins. Stutt er í ósnortna náttúruna og má þar nefna Ásfjall, Ástjörn og Hvaleyravatnið með sýnum fallegu gönguleiðum.
Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Guðný Þorsteins löggiltur fasteigna- og skipasali s: 771-5211 eða á netfangið gudnyth@remax.is.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Re/Max því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.600 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, 69.900 kr. m.vsk.