Guðlaugur J. Guðlaugsson löggiltur fasteignasali og RE/MAX fasteignasala kynna í einkasölu:
Vel skipulögð og flott þriggja herbergja 71,6 fm. íbúð á 1. hæð sem hefur verið mikið endurnýjuð, staðsett við Baldurgötu 6A, 101 Reykjavík, þar af er geymsla í kjallara 7,3 fm.
Árið 2022 voru gólfefni, eldhús innrétting, eldhústæki, fataskápar og baðherbergi í íbúðinni endurnýjað.
Um er að ræða steinsteypt þriggja íbúða hús með kjallara sem hefur m.a snyrtilegt og rúmgott sameiginlegt þvottahús.
Upplýsingar um helstu framkvæmdir húsfélagsins undanfarin ár: 2019 - stigahús. Nýr gólfdúkur og stigahús málað.
2020 - ný útihurð og nýr dyrasími
2022 - smá viðgerð á þaki (samskeytum okkar húss og hornhússins fyrir ofan)
2024 - skipt um vatns og fráveitulagnir og lagnagrind endurnýjuð.
Bókið skoðun hjá Gulla í síma 661-6056 eða með tölvupósti á netfangið gulli@remax.isSmelltu á linkinn til að skoða íbúðina í 3DNánari lýsing: Íbúðin er á fyrstu hæð, nokkur þrep upp frá inngangi inn í sameiginlegan snyrtilegan stigagang með þrem íbúðum.
Komið er inn í hol með parket á gólfi sem flæðir um öll rými íbúðar að undanskildu baðherbergi, þar eru flísar á gólfi.
Opið alrými er með borðstofu og stofu með glugga sem vísar í bakgarðinn. Eldhús er með glugga sem vísar út á Baldursgötu. Innrétting er mjög hugguleg á móti hvor annari, gott skápa, vinnu- og borðpláss. Innbyggður ískápur með frystir og innbyggð uppþvottavél. Bökunarofn og helluborð. Svefnherbergin eru tvö, bæði rúmgóð. Hvítir fataskápar í öðru þeirra. Annað herbergið snýr út að Baldursgötu en hitt að bakgarðinum.
Sér geymsla íbúðar er svo í kjallara hússins ásamt sameiginlegu þvottahúsi.
Nánari upplýsingar: Guðlaugur J. Guðlaugsson, löggiltur fasteignasali í síma
661-6056, gulli@remax.is
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 69.900.