RE/MAX Ísland logo
Skráð 17. des. 2025
Söluyfirlit

Jakasel 38

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-109
228.1 m2
8 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
159.900.000 kr.
Fermetraverð
701.008 kr./m2
Fasteignamat
124.850.000 kr.
Brunabótamat
117.700.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Dagbjartur Willardsson
Dagbjartur Willardsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1985
Þvottahús
Garður
Útsýni
Sérinngangur
Fasteignanúmer
2057350
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Ekki vitað.
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
Ekki vitað.
Gluggar / Gler
Ekki vitað.
Þak
Ekki vitað.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Tvennar svlir - stærri í suður og minni í vestur.
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Dagbjartur Willardsson lgf. og RE/MAX kynna  einbýlishúsið Jakasel 38 fnr. 205-7350

Nánari lýsing: Húsið er byggt árið 1985 og er úr timbri. Húsið er skráð hjá 228,1 fm og þar af er bílskúr 35 fm. Þar sem hluti efri hæðar er undir súð þá eru nýtanlegir fermetrar fleiri en skráðir eru. Húsið stendur á rólegum og fjölskylduvænum stað, í göngufæri við skóla, íþróttasvæði og verslanir. 

Aðkoma: Hellulagt bílaplan. Einnig er hellulagt að inngangi neðri í húsið og fyrir framan. Hitalögn er undir hellulögn fyrir framan skúrinn sem og að inngangi og gangstéttum við húsið. 

NEÐRI HÆÐ:

Forstofa: Flísar á gólfi. Fataskápur. 

Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með fallegum stórum flísum. Inngöngusturta með glerþili. Frístandandi baðkar. Innrétting með handlaug. Innfelld lýsing í lofti. Útgengt á baklóð í heitan pott. 

Eldhús: Parket á gólfi. Rúmgóð vönduð innrétting með góðu skápaplássi. Flísalagt með mosaikflísum á milli efri og neðri skápa. Helluborð með háfi yfir. Bakstursofn í vinnuhæð. Búr er inn af eldhúsi og með góðri innréttingu og flísum á gólfi. 

Þvottahús: Flísar á gólfi. Góð innrétting fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð með skúffum fyrir neðan. Útgengt úr þvotthúsi á lóð. 

Stofa/Borðstofa: Parket á gólfi. Útgegnt á sólpall með skjólveggjum og útieldhús þar sem byggt hefur verið yfir grillið á smekklegan hátt. 

Svefnherbergi: Eitt svefnherbergi er á neðri hæð en það er nýtt í dag sem vinnurými. Parket á gólfi og fataskápur. 


EFRI HÆÐ: 

Svefnherbergi: Eru fjögur og er parket á gólfum þeirra allra. 

Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Innrétting með handlaug. Sturtuklefi. Upphengt salerni. 

Stofa/sjónvarpsrými: Parket á gólfi sem er farið að sjá á. Útgengt á tvennar svalir sem snúa til suðurs og vesturs. 

Geymsla: Lítil geymsla er á hæðinni.


Lóð: Lóðin er einstaklega smekkleg með palli og skjólveggjum. Heitur pottur þar sem stýring er í þvottahúsi. Gott hús fyrir grillið. Hitalögn undir hellulögn við húsið. 

Bílskúr: Er skráður 35 fm. Heitt og kalt vatn og rafmagn. Innkeyrsluhurð með fjaropnun. Inngönguhurð í skúrinn er á bakhlið. Hellulagt bílaplan með hitalögn. 

Einstaklega falleg og snyrtileg eign sem til dæmis hentar stórum fjölskyldum. Eignin hefur fengið gott viðhald og umhyggju. Húsið er vel staðsett í enda á botnlanga og því lítil aukaumferð við húsið. Núverandi eigendur eru aðrir eigendur hússins frá byggingu þess árið 1985. Núverandi eigendur keyptu eignina 2004.

Húsið hefur fengið gott viðhald og hér fyrir neðan er yfirlit yfir það sem hefur verið gert síðustu árin. 

- Málun á ytra byrði hússins 2021. Þak málað 2022.
- Rúðum sem móða hefur safnast í skipt út jafnóðum með nýjum listum
- Rafmagnstafla algjörlega endurnýjuð 2023 og dregið í allt á neðri hæðinni ásamt því sem skipt var úr Ticino gömlu gerðinni í venjulega tnegla og rofa. Skipt var um allar tengla og rofa á efri hæð 20025 og þá jafnframt sett USB-c tengi í þrjú svefnherbergi
- Flúrljós undir þakskeggi á húsi og bílskúr eru nú LED ljós og öll önnur útilýsing er LED. Jafnframt var settur GPS rofi fyrir ljósin í töflu.
- Tréveggur við suðurhlið og pallur við austurhlið 2022 og grillskýli sama ár.
- Baðherbergi á neðri hæð endurnýjað með nýjum lögnum og innra byrði veggja 2022 og allar neysluvatnslagnir endurnýjaðar á neðri hæð. Settur varmaskiptir í þvottahús. Gerðar dyr á austurvegg baðherbergis og heitavatnspottur með stýringu í þvottahúsi.
- Vatnslagnir milli húss og bílskúrs hafa verið endurnýjaðar með rör-í-rör lögn.
- Búið er að endurnýja flesta ofna í húsinu.
- Báðar svalirnar voru endurnýjaðar fyrir fimm árum úr gagnvörðu efni. 

Allar nánari upplýsingar veita Dagbjartur Willardsson lgf. í síma 861-7507 eða daddi@remax.is 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. (Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4%)
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - sjá heimasíður lánastofnanna.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 59.900. kr. m.vsk.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Remax Senter því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Byggt 1988
3.5 m2
Fasteignanúmer
2057350
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Brunabótamat
14.850.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Stuðlasel 6
109 Reykjavík
260.3 m2
Einbýlishús á pöllum
715
576 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Sóleyjarimi 35
112 Reykjavík
210.7 m2
Raðhús á tveimur hæðum
524
735 þ.kr./m2
154.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Grænlandsleið 19
113 Reykjavík
240.4 m2
Raðhús á tveimur hæðum
524
682 þ.kr./m2
163.900.000 kr.
Opna eign
Bílskúr
Image
Opna eign
Barðastaðir 41
112 Reykjavík
225.6 m2
Raðhús á tveimur hæðum
514
664 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2025 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin