Vernharð Þorleifsson og Magga Gísladóttir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna hlýlega og skemmtilega fjölskyldueign við Vesturströnd 6A á Seltjarnarnesi.
Þetta er 176,8 fm parhús á tveimur hæðum, þremur svefnherbergjum, 19 fm sólstofu og bílskúr. Bakmegin til suðurs er lokaður skjólsæll garður.
Þetta er virkilega skemmtilega og hlýleg eign fyrir fjölskyldufólk í einu vinsælasta hverfi höfuðborgarsvæðisins.
Frekari upplýsingar veita Vernharð Þorleifsson löggiltur fasteignasali í síma 699-7372 / venni@remax.is og Magga Gísladóttir löggiltur fasteignasali í síma 698-7494 / magga@remax.isKíktu í heimsókn til okkar á Facebook eða
á InstagramNánari lýsing eignar:
Neðri hæð Forstofa með fatahengi og flísum á gólfi. Hurð til hægri að gestasalerni. Hurð til vinstri að þvottahúsi.
Miðrými er rúmgott og nýtist sem sjónvarpshol og borðstofa í dag.
Eldhús með fallegri viðar innréttingu og granít borðplötu. Opin gluggi er inn í sólstofuna.
Sólstofan er 19 fm. með hita í gólfi. Hægt að ganga inn í bílskúrinn úr sólstofu.
Herbergin eru tvö á hæðinni og bæði með fataskápum.
Efri hæðKomið er upp í hlýlegt og bjart rými og stórum gluggum sem hleypa inn birtu. Stofan er einstaklega notaleg með með fallegum viðarbitum í lofti.
Mikið handverk liggur að baki hvers bita. Fallegt útsýni á sjóinn, yfir Engey og Esjuna okkar.
Hjónaherbergi er á hæðinni og þar innaf er baðherbergi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Stórir speglar og góð snyrtiaðstaða.
Bílskúr og lóð Bílskúrinn er 32,7 fm. og tvær kaldar útigeymslur í garðinum. Hiti er í planinu fyrir framan bílskúrinn.
Lóð er fallega gróin og mjög snyrtileg. Hellulögð verönd er fyrir utan sólstofu og skjólveggir og gróður loka lóðinni umhverfis húsið.
Fallegt hús sem hefur fengið að halda miklu frá uppruna sínum. Meðal annars ómálaðir bitar í loftinu og viðar eldhúsinnrétting en samt fengið viðeigandi viðhald.
Við getum mælt heilshugar með þessari eign.
Allar nánari upplýsingar veita:
Vernharð Þorleifsson, löggiltur fasteignasali, í síma 699 7372 eða í tölvupóst: venni@remax.is
Magga Gísladóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 698 7494 eða í tölvupóst: magga@remax.is