RE/MAX Ísland logo
Opið hús:10. okt. kl 15:00-15:45
Skráð 5. okt. 2026
Söluyfirlit

Laugarnesvegur 61

Tví/Þrí/FjórbýliHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
61.3 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
63.900.000 kr.
Fermetraverð
1.042.414 kr./m2
Fasteignamat
60.650.000 kr.
Brunabótamat
38.050.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir
Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir
Löggiltur fasteignasali / Viðskiptafræðingur
Byggt 1933
Þvottahús
Garður
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2017227
Húsgerð
Tví/Þrí/Fjórbýli
Byggingarefni
St+timbur
Númer hæðar
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Ekki vitað
Þak
Ekki vitað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Seljendur benda á eftirfarandi ágalla:
Sumir gólflistar farnir að láta á sjá, til auka á geymslulofti.
Laus gólffjöl í herberginu sem er notað sem stofa.
Þarf að skipta um opnanlegt fag í litla herberginu, glugginn er til, þarf bara að setja í.
Vantar thermostat á ofn í herberginu sem er notað sem stærra svefnherbergið.
Móða inni á einum glugga í eldhúsi.
Eldhúskraninn er aðeins siginn ofan í borðplötuna.
Vantar litla spýtu framan á eldhúsinnréttingu á einum stað.
Lak smá meðfram þakglugga einu sinni, snjór fauk undir járnið og bráðnaði.
Guðbjörg Helga og Gylfi Jens hjá RE/MAX kynna rishæð á Laugarnesvegi 61, 105 Reykjavík. 
Mikið endurnýjuð rishæð í tvíbýlishúsi í hinu sívinsæla Laugarneshverfi. Eignin er 3ja - 4ra herbergja með sameiginlegum inngangi. Húsið er byggt 1933 en hefur verið mikið endurnýjað. Húsið er með steyptum kjallara og timbri á 2 efri hæðum þess með málaðri bárujárnsklæðningu. 
Íbúðin er afar rúmgóð og björt með gluggum í allar áttir. Gólfflötur er mun stærri en uppgefnir fermetrar. Óskráð risloft er yfir allri íbúðinni sem gengið er upp í með fellistiga.
Íbúðin er skráð 61,3 fm, þar af sérgeymsla í kjallara 1,4 fm. 

      **SÆKTU SJÁLFVIRKT  SÖLUYFIRLIT HÉR**

     **SKOÐAÐU EIGNINA BETUR Í ÞRÍVÍÐRI SÝN MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR**

Núverandi skipulag eignar:
Sameiginlegt anddyri, stigi, alrými (eldhús, stofa/borðstofa), baðherbergi, þrjú herbergi og risloft.
Í kjallara er  sérgeymsla íbúðar 

Nánari lýsing:
Inngangur er aftan við húsið. Sameiginlegur inngangur með neðri hæð. Gengið upp fallegan tréstiga úr anddyri. 
Gólfefni er lakkaðar gólffjalir fyrir utan baðherbergi þar sem eru flísar.
Alrými: Bjart og rúmgott rými sem tvinnar saman eldhús og stofu.
Eldhús: Flísar á hluta veggja. Hvít innrétting. Bakaraofn, helluborð, háfur og innbyggð uppþvottavél
Baðherbergi: Endurnýjað 2025. Falleg hvít innrétting með vaski og miklu borðplássi. Flísar á gólfi og hluta veggja. Sturtuklefi og upphengt salerni. Stæði fyrir þvottavél og þurrkara. Gólfhiti.
Herbergi I: Rúmgott með glugga á gafli hússins til suðurs. Fataskápur (2022).
Herbergi II: Rúmgott með glugga á gafli hússins til suðurs og þakglugga til vesturs.
Herbergi III: Lítið herbergi með glugga til vesturs og nettum skáp.
Risloft: Liggur eftir allri íbúðinni með miklu geymslurými, háaloftsstigi úr herbergi I.
Sérgeymsla í kjallara: 1,4 fm. 
 
Samandregið er um að ræða mikið endurnýjaða, bjarta og afar sjarmerandi 3ja - 4ra herbergja efri sérhæð í risi í tvíbýlishúsi í vinsælu hverfi við Laugardalinn þar sem stutt er í allar stofnæðar og miðborgina. Leikskólarnir Hof og Laugasól, ásamt Laugarnesskóla og Laugalækjarskóla eru í göngufæri. Laugalækur er nokkra metra frá húsinu með allri sinni þjónustu s.s. matvörubúð, kjötbúð, bakaríi og kaffishúsi. Einnig er stutt í Borgartúnið og sívinsæla útivistarsvæðið í Laugardalnum með sundlaug, skautahöll, Þróttaraheimilinu, Líkamsræktarstöð, fallegum göngu-og hjólaleiðum og Fjölskyldu- og Húsdýragarðinum svo eitthvað sé nefnt. 

Framkvæmdasaga á eignatíma núverandi eigenda:
2026: Varmaskiptir settur upp.
2025: Baðherbergi endurnýjað, nýr raftengill fyrir þurrkara og nýjar raflagnir dregnar í loftljós. Frárennslislögn í eldhúsi endurnýjuð.
2024: Útitröppur endursteyptar og hluti glugga málaður.
2023: Skjólveggur meðfram lóð byggður.
2022: Gert við leka meðfram skorsteini. Skipt um helluborð, settir upp fataskápar, skipt um gólflista og íbúðin heilmáluð, veggir, loft og hurðar.
. 

Allar nánari upplýsingar veita:
Guðbjörg Helga löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur s. 897 7712 / gudbjorg@remax.is
Gylfi Jens löggiltur fasteignasali og lögmaður s. 822 5124 /  gylfi@remax.is

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Dalsmúli 1
108 Reykjavík
53,5 m2
Fjölbýlishús með lyftu
211
1.213 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Opna eign
Til leigu
Opið hús:10. nóv. kl 15:00-15:30
Image
Opna eign
Hjaltabakki 4
109 Reykjavík
85,7 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
312
60.900.000 kr.
Opna eign
Opið hús:10. nóv. kl 15:00-15:30
Image
Opna eign
Hjaltabakki 4
109 Reykjavík
85,7 m2
Fjölbýlishús
312
711 þ.kr./m2
60.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Arkarvogur 12
104 Reykjavík
62,7 m2
Fjölbýlishús með lyftu
211
1.051 þ.kr./m2
65.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin