Guðbjörga Helga og Gylfi Jens hjá RE/MAX kynna: Hlíðarhjalli 67, 200 Kópavogi.
Björt og skemmtileg 3ja hervbergja íbúð Dmeð útsýni og suðursvölum á 2. hæð. Íbúðin er í vel staðsettu fjölbýli á mjög vinsælum stað í suðurhlíðum Kópavogs. Einstakt útsýni er úr íbúðinni til suðurs m.a. til Keilis og fjallgarðs um Reykjavík. Öll þjónusta er í göngufjarlægð, s.s. leikskólar, grunnskóli, almenningssamgöngur, verslanir, bakarí, ísbúð og ýmis þjónusta. Örstutt ganga er að enda Kópavogsdals sem er útivistarparadís og býður m.a. upp á frisbýgólf og leikvöll og liggur hjóla/göngustígur út alla leið út á enda Kársness. Þægileg gönguleið er einnig inn í Elliiðaárdal en í en undirgöng eru að ÍR og Garðheimum.
Uppgefin stærð íbúðar er 81 fm en íbúðinni fylgir að auki sérgeymsla í kjallara sem er utan uppgefinna fermetra. Eignin er því stærri sem henni nemur.
>>SÆKTU SÖLUYFIRLIT SJÁLFVIRKT HÉR: << >>SKOÐAÐU SKIPULAG EIGNAR BETUR HÉR, MEÐ ÞRÍVÍDD. (ATH, AÐ MYNDATAKAN ER 2JA ÁRA<<NÚVERANDI SKIPULAG: Anddyri, stofa, eldhús, baðherbergi, 2 svefnherbergi, svalir og sérgeymsla í kjallara.
NÁNARI UPPLÝSINGAR:Samstætt plastparket er í íbúðinni fyrir utan flísar á baðherbergi.Forstofa: Rúmgóður tvöfaldur fataskápur hólf í gólf.
Stofa: Björt og rúmgóð með gluggum til suðurs.
Eldhús: Snyrtileg og vel með farin viðarinnrétting, flísar eru á milli skápa. Bakaraofn, helluborð og vifta. Stæði fyrir uppþvottavél.
Útgengi út á góðar suðursvalir með einstöku útsýni að Reykjanesinu og fjöllum kringum Reykjavík í þá áttina.
Baðherbergi: Flísar á veggjum og gólfi. Baðkar með sturtuaðstöðu. Hvít innrétting með handlaug og skápur. Innrétting með stæði fyrir þvottavél og þurrkara.
Herbergi I: Rúmgott með glugga til suðurs.
Herbergi II: Rúmgott með góðu skápaplássi. Gluggi til suðurs.
Sérgeymsla: Er utan uppgefinnar fermetratölu íbúðar, staðsett í kjallaranum.
SAMEIGN (Í KJALLARA HÚSSINS)Stigagangur: Einstaklega hreinlegur og snyrtilegur stigangur.
Sameiginleg
hjólageymsla.Sameiginlegt
þvottahús. Þessi íbúð hefur ekki notað þvottahúsið þar sem tengingar eru inni í íbúðinni.
Stórt bílaplan með sameiginlegum stæðum og
gróinn garður með grasi og trjám.
Framkvæmdasaga á eignartíma eiganda2025: Viðhald á ytra byrði hússins (lagaður leki við anddyri stigahúss nr 65, þakrennur að hluta endurnýjaðar, og fleira smálegt)
2024: Eigandi styrkti öryggi á baðherbergi og bætti við rafmagninnstungum á baðherbergi fyrir þvottavél og þurrkara
2024: Endurnýjaður gluggi, íbúðin öll máluð.
Seljendur hafa ekki búið í eigninni sem hefur verið í útleigu allan eignartíma þeirra (sl. tvö ár).
**ÍBÚÐIN ER Í ÚTLEIGU TIL 31. ágúst 2026**. ATHUGIÐ AÐ SUMAR MYNDIR ERU UNNAR AF GERVIGREIND. NÝJAR MYNDIR ERU VÆNTANLEGAR.
Allar nánari upplýsingar veita:Guðbjörg Helga löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur í netfanginu gudbjorg@remax.is og síma 897 7712
Gylfi Jens löggiltur fasteignasali og lögmaður í netfanginu gylfi@remax.is og síma 822 5124 og