RE/MAX Ísland logo
Skráð 15. sept. 2026
Söluyfirlit

Hlíðarhjalli 72

Tví/Þrí/FjórbýliHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
62.1 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
62.900.000 kr.
Fermetraverð
1.012.882 kr./m2
Fasteignamat
62.200.000 kr.
Brunabótamat
39.600.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Þórdís Björk Davíðsdóttir
Þórdís Björk Davíðsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1987
Garður
Gæludýr leyfð
Sérinngangur
Fasteignanúmer
2062071
Húsgerð
Tví/Þrí/Fjórbýli
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
sjá lýsingu
Þak
Sjá lýsingu
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Skipulag íbúðar er annað í dag en á samþykktum byggingarnefndarteikningum, þ.e. þar sem hurð er á milli eigna á að vera geymsla. 
RE/MAX ásamt Þórdísi Björk og Salvöru Þóru Davíðsdætrum löggiltum fasteignasölum kynna:
Einstaklega rúmgóða, vel skipulagða og bjarta 2ja herbergja íbúð á neðri hæð í fallegu tvíbýli í Hjallahverfi í Kópavogi. Eignin er með sér inngangi og garði suðurs.

Eignin er skráð í heild sinni 62,1 fm samkvæmt Fasteignaskrá HMS. Geymsla er innan íbúðar ásamt kaldri geymslu við inngang íbúðar undir útitröppum. Húsið hefur fengið mjög gott viðhald innan sem utan. Staðsetning er einstaklega góð þar sem það stendur innst í botnlanga við opið og gróið svæði og nýtur fallegs útsýnis og eru góðir skjólveggir í fallegum garðinum.

* Fyrirhugað fasteignamat fyrir árið 2027 er kr. 62.250.000.- *
- Frábær fyrstu kaup
- Gróinn, afgirtur og skjólgóður suðurgarður
- Húsið hefur fengið gott viðhald og var málað að utan árið 2025.

*  VINSAMLEGA SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ NÁNARI UPPLÝSINGAR UM EIGNINA

**  HÉR MÁ NÁLGAST 3D MYNDBAND AF EIGNINNI, INNI- OG ÚTI. KÍKTU Í HEIMSÓKN!

*** HÉR MÁ NÁLGAST 3D MYNDBAND AF EIGNINNI, INNI- OG ÚTI - ÁN HÚSGAGNA

Nánari lýsing eignar:
Húsið var byggt árið 1987 samkvæmt Fasteignaskrá HMS er eignin skráð 62,1 fm íbúð á neðri hæð með sérinngangi og er geymsla innan íbúðar. Allt húsið er í eigu sömu fjölskyldu og eru báðar eignir í söluferli.
Í dag er hurð á milli eignanna þar sem geymslan er skráð á teikningar en hægt er að loka endanlega fyrir það, slá upp léttum vegg fyrir geymslunni sbr. teikningu og munu seljendur gera það ef eignirnar seljast ekki til sömu fjölskyldu.
Forstofa: Flísalögð. Hiti er í stétt fyrir framan innganginn.
Stofa: Opin og björt með stórum gluggum til suðurs og útsýni út í garðinn. Einnig er gluggi til vesturs. Stofan tengist miðrými/holi með góðum skápum.
Svefnherbergi: Rúmgott með fataskápum og glugga til suðurs út í garðinn.
Eldhús: Eikarinnrétting, eldavél með innbyggðum bakaraofni og gluggi til vesturs. Há borðplata sem hægt er að sitja við.
Baðherbergi: Endurnýjað árið 2018. Flísalagt með innréttingu, sturtuklefa, upphengdu salerni og tengi fyrir þvottavél.
Fljótandi harðparket er á stofu, svefnherbergi og eldhúsi.
Geymsla: sbr. samþykktar teikningar á geymsla að vera innan íbúðarrýmis við inngang í stærri íbúðina og verður það gert þannig eins og fyrr segir ef eigniarnar seljast ekki til sömu aðila. Annars er einnig lítil útigeymsla fyrir hjól og annað smálegt undir tröppunum við inngang í íbúðina.

Garður og útisvæði
Garðurinn er gróinn, fallegur og afgirtur bæði að austan og vestan og því afar skjólsæll. Meðfram húsinu til suðurs er hellulögð/timburklædd verönd og góð tenging er milli innri og ytri rýma.
Útigeymslan sem er í garðinum tilheyrir aðalíbúðinni á efri hæð hússins. 
Snjóbræðsla er undir hellulögðum stéttum fyrir framan húsið og í tröppum vestan megin við húsið niður í garð og að íbúðinni.

Viðhald og endurbætur
Skipt hefur verið um gler í flestum opnanlegum fögum á suðurhlið.
2017 – Þak pússað upp og málað.
2021 – Borið á skjólveggi á lóðarmörkum
2023 – Skipt um öll blöndunartæki bæði á baðherbergi og í eldhúsi 
2025 – Húsið málað að utan; steyptir veggir, gluggakarmar, hurðar og þakkantur. Austurgafl er eftir.
2025 – Borið á skjólveggi á lóðarmörkum og geymsluskúr í garði.
2025 – Tröppur á vesturhlið hússins lagfærðar, múraðar og yfirborðsmeðhöndlaðar til vatnsvarnar.

Staðsetning
Eignin stendur á góðum og rólegum stað innst í botnlanga við opið svæði. Kópavogsdalurinn og græn útivistarsvæði eru í næsta nágrenni ásamt fallegum gönguleiðum. Ekkert hús stendur fyrir innan eignina við götuna.

Sameign:
Inntök fyrir rafmagn og vatn er í bílskúr efri hæðar - sjá þinglýstan eignaskiptasamning
Garðurinn er í dag í óskiptri sameign þar sem húsið er í eigu sömu fjölskyldu. Ef íbúðarnar seljast ekki til sama aðila munu seljendur gera viðauka í eignaskiptasamning varðandi hlutfall og skiptingu lóðar.

Hjallahverfið er eftirsótt og gróið hverfi í Kópavogi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, verslanir, skóla, leikskóla, útivistarsvæði, göngu- og hjólaleiðir auk góðra samgangna. Svæðið sameinar nútímalegt borgarumhverfi og fallega náttúru með sjóinn og útivistarsvæði í næsta nágrenni. Eignin býður upp á einstaklega aðlaðandi kosti fyrir þá sem gera kröfur bæði um gæði og þægindi. 

Allar nánari upplýsingar veita:
  Þórdís Björk Davíðs, lgf., í síma 862-1914  eða á thordis@remax.is
  Salvör Þóra Davíðs, lgf., í síma 844-1421 eða á salvor@remax.is
---------------------------------------------------------------

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - sjá nánari upplýsingar um gjaldskrá á heimasíðu lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk

ERT ÞÚ Í FASTEIGNAHUGLEIÐINGUM?
Veistu ekki hvort þú eigir að fara af stað með þína eign og þú ekki búin/n að finna aðra?

Við kíkjum til þín í spjall og förum yfir málin saman! Við höfum starfað við fasteignasölu í yfir áratug og leggjum okkur fram um að veita persónulega og góða þjónustu, viðhalda góðu upplýsingaflæði og vanda vinnubrögð fyrir bæði seljendur og kaupendur.

Hafðu samband í dag! - Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
- Þórdís Björk Davíðsdóttir, lgf í síma 862-1914 eða thordis@remax.is
- Salvör Þóra Davíðsdóttir, lgf í síma 844-1421 eða salvor@remax.is


 

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Furugrund 70
200 Kópavogur
72.8 m2
Fjölbýlishús með lyftu
312
845 þ.kr./m2
61.500.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Hafnarbraut 18
200 Kópavogur
54.2 m2
Fjölbýlishús með lyftu
11
1,172 þ.kr./m2
63.500.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Funalind 7
201 Kópavogur
79.4 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
211
817 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin