RE/MAX / Júlían J. K. Jóhannsson Lgf. (sími 823 2641 & julian@remax.is) kynna: Einbýlishús úr timbri frá árinu 1956 að Sólheimum, Blönduósi. Húsið er 178,4 fm að stærð og er grunnflötur hæðarinnar um 90 fm. Áhugavert tækifæri en komið er að viðhaldi.
FÁÐU SENT SÖLUYIRLIT YFIR EIGNINA HÉR.Húsið skiptist í anddyri, hol, stofu, eldhús, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Á neðri hæð er töluvert mikið geymslurými og tengi fyrir þvottavél.
Í
eldhúsi er snyrtileg eldhúsinnrétting.
Samkvæmt fyrri eiganda var baðherbergið tekið í gegn árið 2012.
Tvö svefnherbergjanna eru með innbyggðum skápum.
Holið er rúmgott með innbyggðum skáp.
Anddyri með fatahengi
Það sem hefur verið gert seinustu árin:2021 - göt á járni bætt til að koma í veg fyrir leka.
2022 - settur nýr brunnur
2023 - sett þakrenna þar sem vantaði
2023 - þakkanti lokað þar sem hann var opinn
2023 - húsið málað að innan
2023 - byrjað að mála húsið að utan
Hluti af innbúi fylgir með kaupunum.
Komið er að ýmsu viðhaldi á húsinu að innan sem utan, mælst er til þess að kaupandi kynni sér ástand
eignarinnar vel.Frekari upplýsingar veitir Júlían J. K. löggiltur fasteignasali í síma 823 2641 eða á netfanginu julian@remax.is.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. REMAX bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.