Magnús Már Lúðvíksson löggiltur fasteignasali og RE/MAX fasteignasala kynna: Fallega og vel skipulagða 4 herbergja íbúð á 2.hæð með stórum sérafnotareit og góðum svölum.
Eignin skiptist í: Forstofu, eldhús, stofu / borðstofu, 3 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymslu.
Bókið skoðun hjá Magga í síma 699-2010 eða maggi@remax.is
// Aukin lofthæð
// Rúmgott alrými
// 3 svefnherbergi
// Þvottahús innan íbúðar
// Rúmgóður sérafnotareitur og svalir
Nánari lýsing:
Anddyri: Parket á gólfi, fataskápar.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum að hluta, innrétting undir handlaug ásamt speglaskáp, upphengt salerni, sturta með hertu glerskilrúmi, handklæðaofn, gólfhiti.
Herbergi: Parket á gólfi, fataskápur.
Eldhús: Parket á gólfi, gott skápa- og borðpláss, tengi fyrir uppþvottavél, helluborð og gufugleypir.
Þvottahús: Innaf eldhúsi, parket á gólfi, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, skolvaskur.
Borðstofa/Stofa: Parket á gólfi, opin og björt, rúmgóð, útgengt út á rúmgóðan sérafnotareit í suðvestur
Herbergi: Parket á gólfi, fataskápur.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi, fataskápur, rúmgott.
Geymsla: Sérgeymsla í sameign.
Hjóla- og vagnageymsla: 2 sameiginlegar í sameign.
Um er að ræða staðsteypt 14 íbúða fjölbýli á 4 hæðum með aðalinngangi á 2 hæð Húsin eru í Urriðaholti í Garðabæ, einstakt og nýstárlegt hverfi. Umkringt óspilltri náttúru, sérlega vel staðsett innan höfuðborgarsvæðisins. Í jaðri við helstu útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins, ósnortin náttúra, stutt á golfvöllinn.
Frekari upplýsingar veitir: Magnús Már Lúðvíksson löggiltur fasteignasali í síma 699-2010 eða maggi@remax.is