Guðbjörg Helga og Gylfi Jens löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX kynna: Spóahólar 4, 111 Reykjavík.Björt og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með nýlegri skjólgóðri viðarverönd til vesturs. Þetta er eina íbúðin á hæðinni.Uppgefin heildarstærð hjá HMS er 83,3 m2 en geymslan virðist vera utan skráningar en í eignaskiptasamningi sem er með uppgefna stærð 89 fm, og geymslan þá 5,7 fm. Húsið er álklætt á suður- og austurhlið, þakklæðning endurnýjuð, sem og svalir endurnýjaðar og allir gluggar og svalahurð íbúðar. Íbúðin hefur verið þónokkuð uppgerð, m.a. eldhús, gólfefni og skápar auk þess innréttingar á baðherbergi. Innra skipulagi hefur verið lítillega breytt frá samþykktum teikningum með betri nýtingu í huga. Næg bílastæði eru á lóðinni við annan innganginn og framan við hinn er gott gróið leiksvæði. Út frá stofu er ný viðarverönd og þar fyrir framan grasblettur með trjágróðri í sameign. Skemmtileg eign með góðri nýtingu fermetra í barnvænu hverfi. Í nærumhverfi er Hólagarður verslunarkjarni, leikskóli, Hólabrekkuskóli og Fjölbrautaskólinn í Breiðholti auk þess sem stutt ganga er í náttúruparadísina í Elliðaárdal. Fasteignamat 2026 verður 58.700.000 kr.
**SÆKTU SJÁLFVIRKT SÖLUYFIRLIT HÉR:** **SKOÐAÐU EIGNINA BETUR Í ÞRÍVÍDD MEÐ /ÁN HÚSGAGNA MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR**NÁNARI LÝSING:Harðparket er á gólfum nema forstofa, baðherbergi og eldhús eru flísalögð.Forstofa/ Hol: Hvítir rúmgóðir skápar. Veggur var færður og skipulagi herbergis og hols breytt svo rýmin nýtast bæði betur í dag.
Stofa og borðstofa Út frá stofu er hurð út á skjólgóða vestur sólverönd, þaðan er gengið út í sameiginlegan garð. Rúllugardínur
Baðherbergi: Flísar á votsvæði, aðrir veggir málaðir. Baðkar með sturtuaðstöðu, gólffest salerni, hvít skúffuinnrétting með ljúflokum undir handlaug og speglaskápur á vegg, Innrétting fyrir þvottavél og þurrkara ásamt tengi fyrir tækin.
Eldhúsið Hvít innrétting með efri og neðri skápum. Borðplata er dökkgrá og eru veggflísar í stíl á milli efri og neðri skápa. Tengi fyrir uppþvottavél. span helluborð, veggháfur, bakaraofn undir borðplötu, rúmgóður borðkrókur við gluggann. Rúllugardína.
Herbergi 1: Rúmgott með
hvítum skápum. Filma í hluta glugga, rúllugardína. Gardínustöng.
Herbergi 2: Filma í hluta glugga. Rúllugardína og gardínustöng
Sérgeymsla: Er á hæðinni á geymslugangi.Hillur og málað gólf. Líklega utan uppgefinna fm. Innanmál er
Sameign: Stigahús er snyrtilegt með flísum á jarðhæð og teppi á stiga. Hjóla- og vagnageymsla ásamt þurrkherbergi. Bílastæði eru sameiginleg og ómerkt. Næg bílastæði.
Framkvæmdasaga á tíma núverandi eigenda:
Sameign:
2024: Þak-Snjógildrur settar á það. Þéttað við lúgu á þaki, eftir leka þar.
2021-2023: Norður- og vesturhlið (bakhlið) teknar að utan, svalir brotnar niður/lagfærðar eftir þörfum, gluggar og svalahurðir endurnýjað eftir þörfum á húsinu, Norðurhlið klædd, vesturhlið múrviðgerð og máluð.
2023: Svalahurð, stofugluggi og eldhúsgluggi íbúðarinnar endurnýjaðir í ofangreindum framkvæmdum.
Íbúð:
2025: Nýr hitaveituofní eldhúsi.
2024: Nýr hitaveituofn á baði.
2024: Viðarverönd byggð
2024: Efri skápar með glerhurðum bætt við innréttingu í eldhúsi
2024: Nýtt blöndunartæki í eldhúsi.
2023: Einn veggur fjarlægður og annar reistur (herbergi 1 stækkað smá og forstofa minnkuð á móti)
2023: Nýir skápar í herbergi 1 og forstofu.
2022: Endurnýjaðir allir rofar og innstungur (nema á 1 stað í herbergi 2)
2022: Skrautfilmur settar í glugga í svefnherbergjum og eldhúsi.
2022: Sólbekkur í eldhúsi endurnýjaður.
2022: Tvær innihurðar endurnýjaðar ( ekki hurðakarmar)
Framkvæmdir skv. eldri söluyfirlitum og af Facebook hópi húsfélags:
Sameign
2020: Þakklæðning endurnýjuð
2019: Austurhlið klædd með vandaðri viðhaldsléttri klæðningu (Bílastæðahliðin)
2014: Útidyrahurð endurnýjuð og nýir gluggar á austurhlið (bílastæðahliðin)
íbúð:
2019: Eldhúsinnrétting og eldhústæki endurnýjuð.
Nánari upplýsingar og bókanir sýninga:Guðbjörg Helga löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur
s. 897 7712 og tölvunetfang:
gudbjorg@remax.isGylfi Jens löggiltur fasteignasali og lögmaður
s. 822 5124 og tölvunetfang:
gylfi@remax.is