RE/MAX Ísland logo
Skráð 18. feb. 2026
Söluyfirlit

Starmýri 7

EinbýlishúsAusturland/Neskaupstaður-740
273.6 m2
7 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
94.900.000 kr.
Fermetraverð
346.857 kr./m2
Fasteignamat
69.250.000 kr.
Brunabótamat
121.150.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Bjarni Blöndal
Bjarni Blöndal
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1976
Þvottahús
Garður
Útsýni
Gæludýr leyfð
Margir inngangar
Fasteignanúmer
2169607
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
endurnýjaðar
Raflagnir
upprunalegar
Frárennslislagnir
upprunalegar
Gluggar / Gler
upprunalegir
Þak
ryðvarið og málað 2025
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
rafmagn með vatnsofnum
Inngangur
Margir inngangar
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali (bjarni@remax.is/s:662-6163) kynnir rúmgott, fallegt og vel staðsett einbýli við Starmýri 7 á Neskaupsstað. Efri hæðin er skráð 106,5fm, bílskúr 30,3fm og neðri hæðin 136,8fm, samtals 273.6fm samkv. HMS. Húsið skiptist í forstofu, hol, eldhús, stofu, borðstofu, fimm svefnherbergi, sjónvarpsherbergi, þvottahús, tvö baðherbergi, geymslu og bílskúr.

Efri hæð:
Komið er inn í flísalagða forstofu með fataskáp. Frá forstofu er gengið inn í hol, borðstofu og stofu. Stofan er með stórum gluggum til suðurs og vesturglugga, stórar og góðar suðursvalir út af stofunni með fallegu útsýni yfir fjörðinn. Frá stofu er gengið inn í eldhús. Eldhúsinnrétting og eldhústæki endurnýjuð 2023 (IKEA). Úr eldhúsi er gengið inn í þvottahús/búr með nýlegri innréttingu, gott vinnupláss, vínyl parket á gólfi, útgengt til vesturs. Tvö svefnherbergi, annað með góðum fataskáp. Baðherbergið er að mestu í upprunalegri mynd en innrétting og blöndunartæki hafa verið verið endurnýjuð, hiti í gólfi, bæði sturta og baðkar, gluggi. Öll efri hæðin ef frá er talið baðherbergi, forstofa og þvottahús eru með parketi á gólfum (2019).
 
Neðri hæð:

Gengið er niður á neðri hæð úr stofu/holi. Góður stigi. Stórt hol þar sem útgengt er út í vel gróinn, skjólsælan og vel hirtan garð sunnan við húsið. Þrjú svefnherbergi, öll mjög rúmgóð, tvö þeirra með rúmgóðum fataskápum. Rúmgott sjónvarpsherbergi og rými sem í dag er notað sem leikherbergi en býður uppá að gert sé fataherbergi sem tengist þá rúmgóðu svefnherbergi. Stórt baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf, stór sturta, nýleg blöndunartæki og salerni, gluggi. Parket á allri neðri hæðinni (2020). Stór geymsla með góðum hirslum, nýlegur hitakútur. Innbyggður bílskúr með góðum hillum og skápum er götumegin í húsinu, nýlegur bílskúrshurðaopnari og tengill fyrir rafmagnsbíl.

Garðurinn er skjól- og gróðursæll en hefur verið einfaldaður mikið síðustu ár. Fallegur lítill kofi er í garðinum, fallegar plöntur, jarðaberjakassi og stórar útisnúrur. Stór útigeymsla með góðum hillum.
Eigninni hefur verið vel við haldið og er ástand eignarinnar gott. Húsið var málað að utan 2022. Þak ryðvarið og málað 2025. Neysluvatnslagnir í húsinu hafa verið endurnýjaðar sem og hitakútur. Nýjar rafmagns innstungur í öllu húsinu.
 
Starmýri 7 er gott fjölskylduhús sem býður uppá mikla möguleika. Stutt er í góðar gönguleiðir og útivistarsvæði, skóla, íþróttahús og margt fleira.

Allar upplýsingar um eignina veitir Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali í síma 662 6163 eða bjarni@remax.is. 
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0.5% - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 59.900.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin