Guðlaugur J. Guðlaugsson löggiltur fasteignasali og RE/MAX fasteignasala kynna í einkasölu:
Vel skipulögð, björt og rúmgóð neðri hæð/íbúð í tvíbýlishúsi á vinsælum stað í Vesturbæ Kópavogs við Kársnesbraut 31.
Íbúðin er 121,9 fm að stærð og skráð sem fimm herbergja með sérinngangi og útgengi út á hellulagða verönd sem snýr til suðurs. Eigninni fylgir einnig 47,4 fm bílskúr með salerni auk tveggja rýma í kjallara, skráð sem geymslur, en annað þeirra hefur verið útbúið sem íbúðarherbergi með eldhúskrók (34,3 fm) og hitt sem lítið herbergi (7,4 fm). Þessi rými hafa verið nýtt sem útleigurými með sameiginlegu baðherbergi á milli og fylgja eigninni.
Heildarstærð eignarinnar er 212,5 fm.Húsið var málað fyrir ca. fyrir fjórum árum. Gert var við tröppur á sama tíma með trefja steypu. Sett var nýtt þakjárn og nýr þakpappi á þakið árið 2023.
Smelltu á linkinn til að skoða íbúðina í 3D
Bókið skoðun hjá Gulla í síma 661-6056 eða með tölvupósti á netfangið gulli@remax.isÍbúðin skiptist í:Anddyri með fataskápum og flísum á gólfi, parketlagt hol, rúmgott alrými með stofu og borðstofu með gluggum á þrjá vegu, sjávarútsýni og útgengi út á suðurverönd og sameiginlegan fallegan garð. Eldhús með L-laga innréttingu og eyju með háf og borðplötu. Quarts steinborðplata, innbyggður ofn í vinnuhæð, helluborð, undirlímdur vaskur og aðstaða fyrir uppþvottavél og ísskáp. Við hlið eldhússins er búr og rými sem nýtt hefur verið sem fataherbergi en er með tengingum fyrir gestasalerni.
Herbergin eru þrjú (möguleiki á fjórða með breytingu). Eitt herbergjanna er mjög rúmgott með góðu útsýni og fataskápum (var áður tvö herbergi). Hin tvö eru einnig rúmgóð, annað þeirra með fataskáp. Baðherbergið er flísalagt með sturtu, upphengdu salerni, handklæðaofni, opnanlegum glugga og fallegri baðinnréttingu.
Kjallari:Tvö sér geymslurými, annað 34,3 fm með eldhúsaðstöðu, hitt 7,4 fm. Rýmin hafa verið nýtt til útleigu. Þar er einnig baðherbergi með sturtu, salerni og handlaug sem þjónustar bæði herbergin. Sameiginlegt þvottahús er í kjallara.
Bílskúr:Stór bílskúr (47,4 fm) með rafdrifinni hurð, gönguhurð og sér salerni.
Lóð:Sameiginleg, falleg og vel hirt suðurlóð með hellulögn og gróðri.
Nánari upplýsingar: Guðlaugur J. Guðlaugsson, löggiltur fasteignasali í síma
661-6056, gulli@remax.is
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.