NÁNARI UPPLÝSINGAR FÆRÐU HJÁ GUÐNÝJU ÞORSTEINS Í SÍMA 7715211 EÐA GUDNYTH@REMAX.IS
SMELLTU HÉR OG SJÁÐU EIGNINA Í 3VÍDD
RE/MAX og GUÐNÝ ÞORSTEINS Löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Bjarta 3ja herbergja íbúð með fallegu útsýni á 2 hæð í litlu fjölbýli með bílskúr í Kópavogi. Húsið er teiknað af Kjartani Sveinssyni.
Samkvæmt fasteignayfirliti ríkisins er íbúðin 72,9fm og bílskúr 28,2fm,
samtals 101,1fm.Eignin samanstendur af: 2 svefnherbergjum, baðherbergi, eldhúsi, búri/þvottahúsi, stofu, borðstofu ásamt bílskúr.
Nánari lýsingForstofa: Er með góðum þreföldum skápum. Harðparket á gólfi.
Eldhús: Er bjart með borðkróki, góðu skúffu- og skápaplássi ásamt bakaraofni í vinnuhæð. Harðparket á gólfi.
Þvottahús/búr: Er inn af eldhúsi með tengi fyrir þvottavél, þurrkara og uppþvottavél, gluggi er með opnanlegu fagi. Flísar á gólfi.
Stofa/borðstofa: Eru í sameiginlegu björtu rými með stórum gluggum og einstöku útsýni til norðurs, útgangur er út á svalir úr borðstofu. Harðparket á gólfi.
Herbergi I: Er rúmgott með fjórföldum fataskápum. Harðparket á gólfi.
Herbergi II: Er í dag nýtt sem skrifstofa. Harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Er flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni, þreplausri sturtu með glervegg, vask með skúffum undir ásamt stórum spegli (lagnir eru til staða fyrir handklæðaofn). Gluggi er með opnanlegu fagi.
Bílskúr: Er 28,2fm að stærð, upphitaður með vaski ásamt niðurfalli, glugga og innkeyrslu- og gönguhurð.
Þetta er virkilega gott fjölbýli sem hefur fengið gott viðhald í gegnum árin:2013 - Hús múrviðgert og málað
2016 - Skolp
endurnýjað undir húsi og út að brunni
2017 - Þak Járn og hluti borðaklæðningar endurnýjað, skipt um hluta þak stoða
2018/2019 - Baðherbergi endurnýjað (Innréttingar og tæki)
2020 - Rafmagnstenglar ásamt rofum endurnýjað (S. Guðjónsson)
2022 - Parket endurnýjað ásamt gólflistum (Húsasmiðjan)
2022 - Fataskápur í herbergi II endurnýjaður
2022 - Inni hurðar endurnýjaðar (Birgisson)
2024 - Ofnar í svefnherbergjum endurnýjaðir
2024 - Ofn á norðurvegg í stofu endurnýjaður
2025 - Gluggar utan á húsinu yfir farnir, skipt út opnanlegum fögum (áætlað að mála að utan sumar "26)
2025 - Gluggar í íbúð yfirfarnir að innan
2025 - Gólf á svölum slípað
Tekið úr þinglýstum eignaskiptasamningi: Íbúð II hæð norðurenda merkt 2C er 3 herb.-bað-eldhús-þvottahús og innri forstofa auk bílskúrs merktur 2C og geymslu þar inn af auk hlutfallslegrar eignar í sameign er alls 18,2%.
Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Guðný Þorsteins löggiltur fasteigna- og skipasali s: 771-5211 eða á netfangið gudnyth@remax.is.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Re/Max því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.600 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, 69.900 kr. m.vsk.