RE/MAX Ísland logo
Skráð 27. ágúst 2026
Söluyfirlit

Fálkagata 24

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vesturbær-107
56.9 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
62.000.000 kr.
Fermetraverð
1.089.631 kr./m2
Fasteignamat
62.800.000 kr.
Brunabótamat
34.550.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Ástþór Reynir Guðmundsson
Ástþór Reynir Guðmundsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1950
Garður
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2028531
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Hæðir í húsi
4
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
ekki vitað
Raflagnir
Gerðar endurbætur á rafmagni í sameign árið 2026
Frárennslislagnir
ekki vitað
Gluggar / Gler
Skipt um gluggalista árið 2024
Þak
Þak hússins var endurnýjað árið 2023
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
á ekki við
Upphitun
Hitaveita.
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Ástþór Reynir, löggiltur fasteignasali, og Ragna Steinunn Arnarsdóttir, aðstoðarmaður fasteignasala hjá RE/MAX, kynna í einkasölu

Fálkagötu 24, 107 Reykjavík. Sérlega bjarta og heillandi 56,9 fm íbúð í afar sjarmerandi húsi á eftirsóttum stað í Vesturbæ Reykjavíkur. Eignin býður meðal annars upp á rúmgott og bjart alrými, endurnýjað baðherbergi, gott svefnherbergi og sérgeymslu á stigapalli. Frábær staðsetning í næsta nágrenni við Háskóla Íslands og stutt í miðborgina.

Nánari lýsing
Gengið er að inngangi hússins frá baklóð um undirgöng milli húsanna. Sameiginlegt stigahús er sérlega sjarmerandi og varðveitir ýmis upprunaleg einkenni, meðal annars fallegan timburhandlista. Fjórar íbúðir eru í húsinu, ein á hverri hæð.
Íbúðin er staðsett á annarri hæð. Komið er inn í bjart hol með glugga. Baðherbergi er til vinstri, svefnherbergi til hægri og sérgeymsla íbúðarinnar er aðgengileg af stigapalli á sömu hæð.
Stofa og eldhús hafa verið sameinuð í eitt opið, rúmgott og sérlega bjart alrými. Fallegir gluggar snúa til suðurs, í átt að Fálkagötu, og hleypa mikilli birtu inn í rýmið. Sameining stofu og eldhúss skapar skemmtilega heild og góða nýtingu á fermetrum.
Eldhúsið er með innréttingu í stáláferð, viðarborðplötu og keramikhelluborði. Við stofu og hol er viðarparket en flísar eru á gólfi næst eldhúsinnréttingu.
Svefnherbergið er rúmgott og snýr að bakgarði.
Baðherbergið var endurnýjað á árunum 2025–2026 og er með baðkari.
Bakgarður húsanna er sólríkur og skemmtilegur og býður upp á góða möguleika til útiveru.

Endurbætur samkvæmt upplýsingum seljanda eru eftirfarandi.

Endurbætur á íbúð:
Skipt var um rafmagnstöflu árið 2026.
Baðherbergið var endurnýjað á árunum 2025–2026.
Gluggar íbúðarinnar voru pússaðir að innan árið 2025.
Skipt var um þrýstijafnara fyrir íbúðina árið 2026.

Framkvæmdir við húsið og sameign: 
-Þak hússins var endurnýjað árið 2023.
-Skipt var um gluggalista að utan um 2024.
-Skipt var um glugga í sameiginlegu þvottahúsi árið 2025.
-Endurbætur voru gerðar á rafmagni í stigagangi árið 2026.
-Ofn var settur upp í stigagangi árið 2026.
-Fyrirhugað er að mála stigagang hússins og vinnur húsfélagið að öflun tilboða í framkvæmdina.

Eignin er ekki að öllu leyti í samræmi við fyrirliggjandi teikningar. Geymsla á stigapalli kemur ekki fram á teikningu og milliveggur, sem áður aðskildi stofu og eldhús, hefur verið fjarlægður. 

Húsið var reist árið 1951 sem viðbygging við Fálkagötu 24 eftir teikningum Ágústs Pálssonar arkitekts. Það er steinsteypt, tvílyft með risi og kjallara. Kvisti var bætt við norðurhlið hússins árið 1964 og húsið var síðar klætt standandi bárujárni.
Staðsetning eignarinnar er einstaklega góð. Háskóli Íslands er í næsta nágrenni og stutt er í miðborg Reykjavíkur, skóla, leikskóla, verslanir, veitingastaði, sundlaug, útivistarsvæði og alla helstu þjónustu.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir: 
Ragna Steinunn Arnarsdóttir aðstoðarmaður fasteignasali í síma 858-9494 eða ragna@remax.is
Ástþór Reynir löggiltur fasteignasali í síma 899-6753 eða arg@remax.is


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Hagamelur 12
107 Reykjavík
68.1 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
211
880 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Skyggnisbraut 1
113 Reykjavík
53.6 m2
Fjölbýlishús með lyftu
211
1,136 þ.kr./m2
60.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Dalsmúli 1
108 Reykjavík
53.5 m2
Fjölbýlishús með lyftu
211
1,213 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Dúfnahólar 2
111 Reykjavík
77.1 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
312
764 þ.kr./m2
58.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin