RE/MAX Ísland logo
Opið hús:28. nóv. kl 14:00-15:00
Skráð 25. nóv. 2026
Söluyfirlit

Hólmgarður 13

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
62.4 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
58.900.000 kr.
Fermetraverð
943.910 kr./m2
Fasteignamat
51.950.000 kr.
Brunabótamat
30.850.000 kr.
Byggt 1951
Þvottahús
Garður
Sérinngangur
Fasteignanúmer
2035153
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Neysluvatnslagnir endurnýjaðar 2023. Einn ofn endurnýjaður.
Raflagnir
Upprunalegt/Ekki vitað.
Frárennslislagnir
Hefur verið uppfært en ekki vitað hvenær. Var myndað 2020.
Gluggar / Gler
Gluggar málaðir að utan sem innan árið 2026. Ekki vitað um aldur glugga eða glers.
Þak
Þakjárn endurnýjað 2005 og var þá þakinu lyft upp og bætt við kvistum.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Nei.
Upphitun
Hitaveita.
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Sigrún Gréta hjá RE/MAX kynnir 2ja herb. íbúð á 1. hæð í litlu fjölbýli að Hólmgarði 13 í Reykjavík. Sér inngangur er inn í íbúð og er gengið beint inn í íbúð inn af stétt sem liggur meðfram húsinu. Parket í íbúðinni er nýpússað, nýir hvítir gólflistar og nýmálaðir veggir, loft og gluggar. Einnig eru innan við tíu ár frá því eldhúsinnrétting og tæki voru endurnýjuð sem og baðherbergi. Tilvalin fyrstu kaup. Frábær staðsetning, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og verslanir í Grímsbæ og í Skeifunni. Einnig er spítali í hverfinu, Grensás og göngufæri í er Fossvogsdalinn, útivistarsvæði og leik- og grunnskóla.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / sigrun@remax.is 

Eignin skiptist í forstofu, hol, stofu, svefnherbergi, eldhús, baðherbergi og geymslu. Þvottahús er í sameign. Eignin er skráð hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun 62,4 m2.


*VINSAMLEGA SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ NÁNARI UPPLÝSINGAR UM EIGNINA

Smelltu hér og þú færð söluyfirlit strax
Nánari lýsing:
Forstofa er beint inn af stétt bak við hús. Sér inngangur er inn í íbúðina. Á gólfi forstofu eru svartar flísar. Falleg glerhurð skilur á milli forstofu og alrými íbúðar. Inn af forstofu er einnig hurð inn í þvottahús/geymslu.
Hol er með nýpússuðu eikarparketi. Einnig er búið að pússa parket í stofu, herbergi og eldhúsi.
Stofa er með glugga til suðurs. 
Svefnherbergi er rúmgott með stórum fataskáp á einum vegg. Fataskápur nær upp í loft. Gluggi snýr út í garð til suðurs. 
Eldhús er með ljósri IKEA innréttingu (ný frá 2017) á tveimur veggjum og milli efri og neðri skápa eru gráar veggplötur. Í innréttingu er stæði fyrir 40 cm uppþvottavél (keypt ný 2020) og hefðbundinn ísskáp. Hvort tveggja getur fylgt. Eldavél er í innréttingu og borðplötur eru svartar. Innst í eldhúsi er gluggi með opnanlegu fagi sem snýr út á vesturgafl húss. Þar undir er nýlegur ofn til kyndingar. Í hinum endanum er einnig opnanlegur gluggi (tilheyrði áður geymslu áður en eldhús var stækkað).
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Endurnýjað að stórum hluta árið 2016/2017. Upphengt salerni, hvítur handklæðaofn, skúffueining undir handlaug og svartur steinn á borði. Veggfestur spegill með ljósi. Sturta með felligleri sem fellur inn að sturtu þegar hún er ekki í notkun.
Geymsla er skv. teikningum inn af forstofu, en er nú hluti af eldhúsrými. Skápar og hillur í þvottahúsi nýtast sem geymslurými.
Þvottahús er inn af forstofu íbúðar og er í sameign með eigendum efri hæðar. Þar er aðstaða og tengi fyrir þvottavélar og þurrkara. Það nýtist einnig sem geymslurými.
Garður er í sameign með eigendum efri hæðar. Grasfletir, kvistir, stéttar og pallasvæði.

-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sigrún Gréta löggiltur fasteignasali í síma 864 0061 eða sigrun@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila. Reiknast af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald eftir gjaldskrá lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Bláhamrar 2
112 Reykjavík
64,6 m2
Fjölbýlishús
211
896 þ.kr./m2
57.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Andrésbrunnur 6
113 Reykjavík
70,5 m2
Fjölbýlishús
211
850 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Eiðistorg 3
170 Seltjarnarnes
61,1 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
211
964 þ.kr./m2
58.900.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Barmahlíð 41
105 Reykjavík
71,3 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
211
798 þ.kr./m2
56.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin