RE/MAX Ísland logo
Opið hús:19. okt. kl 17:00-17:30
Skráð 14. okt. 2026
Söluyfirlit

Víðiteigur 6a

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær-270
74 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
69.900.000 kr.
Fermetraverð
944.595 kr./m2
Fasteignamat
66.700.000 kr.
Brunabótamat
46.600.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Brynjar Ingólfsson
Brynjar Ingólfsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1986
Garður
Gæludýr leyfð
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2084707
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Í lagi
Þak
Málað 2026
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Athugasemd vegna þakglugga: Þéttingar við þakglugga höfðu gefið sig með þeim afleiðingum að vatn lak inn. Þéttingar voru endurnýjaðar sumarið 2026 og hefur ekki orðið vart við leka síðan. Ummerki eftir fyrri leka eru enn sjáanleg á klæðningu í kringum gluggana. Heitur pottur er eldri rafmagnspottur og er hann kominn á tíma.
RE/MAX / Brynjar Ingólfsson kynnir: Glæsilegt endaraðhús á tveimur hæðum með fallegri sérlóð og einkabílastæði í Mosfellsbæ.

Samkvæmt skráningartöflu er íbúðin 74,0 m², þar af 65,9 m² á jarðhæð og 8,1 m² í risi, en gólfflötur rishæðar er 42,1 m². Eignin er því með töluvert meiri nýtanlegan gólfflöt en skráðir fermetrar gefa til kynna. Einnig er geymsluskúr áfastur húsinu sem er ekki í fermetrum eignar. Fasteignamat 2027 er kr. 69.650.000.

SKOÐAÐU EIGNINA Í 3D HÉR

Helstu framkvæmdir og endurbætur:
2026:
Þak hússins málað.
2026: Þéttingar við Velux þakglugga endurnýjaðar vegna leka. Ekki hefur orðið vart við leka síðan.
2023: Gluggi í stofu endurnýjaður.
2022: Eldhús endurnýjað.
2021: Geymsluskúr á lóð endurbyggður.

Nánari lýsing:
Forstofa: Góð forstofa með fatahengi og flísum á gólfi.
Stofa og borðstofa: Rúmgott og bjart alrými með parketi á gólfi og útgengi út í garð. Gluggi í stofu var endurnýjaður árið 2023.
Eldhús: Fallegt og rúmgott eldhús sem var endurnýjað árið 2022, með góðri innréttingu, tækjum og flísum á gólfi.
Baðherbergi: Með baðkari, innréttingu og þvottaaðstöðu. Flísar á gólfi.
Svefnherbergi: Rúmgott og bjart með fataskáp og parketi á gólfi.
Rishæð: Fallegur eikarstigi með góðri lýsingu liggur upp á rishæð. Þar er rúmgott svefnherbergi með 42,1 m² gólffleti, tveimur Velux þakgluggum og parketi á gólfi.
Geymslur: Geymslupláss undir stiga, undir súð og útigeymsla við inngang.

Lóð og aðkoma:
Falleg sérlóð með góðu útisvæði. Á lóðinni er eldri heitur pottur, geymsluskúr með rafmagni og vatni sem var endurbyggður árið 2021. Gott einkabílastæði er við húsið og búið er að leggja grunn að uppsetningu rafhleðslustöðvar.

Allar frekari upplýsingar um eignina veitir:
Brynjar Ingólfsson MSc, löggiltur fasteignasali í síma 666 8 999 / brynjar@remax.is
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin