RE/MAX og Guðrún Þórhalla, löggiltur fasteignasali kynna: Fallega og rúmgóða 3-4ra herbergja útsýnis íbúð á 11. hæð í góðu lyftuhúsi með sér geymslu í kjallara og stæði í bílageymslu.
Íbúðin er skráð alls 111,6 fm. að stærð, þar af er geymsla 8, 3 fm., og skiptist í forstofu, 2 svefnherbergi, rúmgott baðherbergi, sér þvottaherbergi, aðalrými og afstúkað eldhús með borðkrók. Íbúðin býður upp á einstakt útsýni og er með góðar yfirbyggðar svalir. Eign sem hægt er að mæla með miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu.
Hér er hægt að skoða eignina í 3D - umhverfi.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðrún Þórhalla Helgadóttir fasteignasali í síma 820-0490, eða á netfangið gudrun@remax.is Nánari lýsing: Forstofa: Komið er inn í forstofu með góðum fataskáp og flísum á gólfi. Gangur liggur inn íbúðina inn í aðalrými sem er rúmgott og opið með útgengi út á stórar yfirbyggðar svalir.
Eldhús: Opið í báða enda, fallega innrétting, rými fyrir innbyggða uppþvottavél í vinnhæð og ísskápur fylgir, borðkrókur er við glugga. Flísar á gólfi.
Stofa/borðstofa: Er rúmgóð með parketi á gólfi og fallegu útsýni.
Hægt væri að bæta við herbergi á kostnað stofunnar. Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gófl. Góð innrétting, handklæðaofn og sturtuklefi. Gert er ráð fyrir að hægt sé að setja sturtu, flísalagt er undir og bakvið sturtuklefa.
Aðalrými: Rúmgott rýni með stofa og borðstofu með útgengi út á yfirbyggðar rúmgóðar svalir.
Hjónaherbergi: Rúmgott með góðum glugga og stórum fataskáp.
Barnaherbergi: Rúmgott og bjart.
Þvottaherbergi: Flísalagt gólf. Innrétting með vaski og hirslum, tengi fyrir þurrkara og þvottavél.
Geymsla: Er í kjallara er 8 fm geymsla sem fylgir íbúðinni.
Bílastæði: Stæði fylgir í lokaðri bílageymslu, búið er að draga rafmagn að bílastæði.
Sameign: Gott anddyri með mynddyrasíma, tvær lyftur í sameign, góður stigagangur, Hjóla- og vagnageymsla auk bílakjallara. Húsið allt hefur fengið gott viðhald. Góður garður. Tvær rafhleðslustöðvar á bílaplani í sameign.
Niðurlag: Um er að ræða fallega og rúmgóða 3ja herbergja útsýnis íbúð á 11. hæð í góðu lyftuhúsi með stæði í bílakjallara. Stutt í almenna þjónustu, leikskóla, skóla o.fl. Allar nánari upplýsingar veitir Guðrún Þórhalla Helgadóttir fasteignasali í síma 820-0490, eða á netfangið gudrun@remax.is Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.