Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali (s:662-6163/bjarni@remax.is) kynnir bjarta, vel skipulagða og algerlega endurnýjaða 86,5fm þriggja herbergja íbúð við Suðurgötu 9, 101 Reykjavík. Íbúð á frábærum stað í hjarta borgarinnar. Sérinngangur. Íbúðin skiptist í: anddyri, alrými (stofa/eldhús), tvö herbergi og baðherbergi.
Anddyri er mjög rúmgott, þaðan er gengið inn í alrými.
Alrýmið er parketlagt, góð lofthæð, ljósastokkur, hvít spraulökkuð innrétting, helluborð, háfur, t.f.uppþvottavél.
Svefnherbergin eru tvö, bæði rúmgóð með fataskápum, parket á gólfi, útgengt út í skjólgóðan inngarð úr öðru þeirra.
Baðherbergið er rúmgott, flísalögð gólf og hluti veggja, opin sturta, handklæðaofn, upphent wc, tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Hjólageymsla og
þvottahús í sameign.
Skjólgóður inngarður bakatil sem er i óskiptri sameign eigenda hússins.
2021 ný lyfta
2024 var þak málað.
2025 var húsið múrviðgert og málað, allar hitalagnir og pípur í kyndiklefa endurnýjaðar.
Frábærlega staðsett eign í þessu skemmtilega lyftuhúsi frá árinu 1985 í hjarta borgarinnar, örstutt frá Tjörninni. Örstutt í iðandi mannlíf og fjölbreytt veitinga og kaffihús.
Allar nánari upplýsingar veitir: Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali í síma 662-6163 eða bjarni@remax.is
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.Um skoðunarskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. RE/MAX fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlufall af fasteignamati. 1.Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal. 3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. 4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá 69.900kr