Þorsteinn Yngvason, lögmaður / löggiltur fasteignasali, hjá RE/MAX fasteignasölu, kynnir í sölu:
Nýjar og glæsilegar íbúðir í 7 íbúða lyftuhúsi að Vorbraut 1 í Hnoðraholti, 210 Garðabæ. Stærðir frá 85 fm til 176 fm.** Gólfsíðir gluggar og gólfhiti **
** Bjartar og vel skipulagðar íbúðir **
** Fallegar innréttingar og innbyggð sturtutæki ** // BÓKIÐ EINKASKOÐUN HJÁ ÞORSTEINI Í SÍMA 696-0226 //Íbúð 102: Glæsileg þriggja herbergja íbúð á jarðhæð, ásamt stæði í bílageymslu. Svalalokun. Skráð stærð 85,4 fm.
Nánari lýsing:Anddyri: Fataskápur upp í loft.
Svefnherbergi: Fataskápur upp í loft.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum að hluta, falleg baðinnréttting, sturta með innbyggðum blöndunartækjum og glerskilrúmi, handklæðaofn og upphengt salerni. Innrétting fyrir þvottavél og þurrkara inn af baðherbergi.
Hjónaherbergi: Fataskápur upp í loft.
Stofa/borðstofa: Bjart rými.
Eldhús: Falleg innrétting með eyju, bakaraofn og spanhelluborð. Útgengt út á svalir með svalalokun.
Geymsla: Í sameign hússins.
Stæði í bílageymslu: Eitt sérmerkt stæði. Gert er ráð fyrir lagnaleið að stæðinu fyrir möguleika á rafhleðslustöð.
Helstu kostir við frágang:** Við hönnun hússins er tekið mið af því að lágmarka viðhald. Húsið er einangrað að utan, álklætt að utan og gluggar ál-tré.
** Gólfsíðir gluggar sem veita mikla birtu inn í íbúðirnar. Gólfhiti í öllum rýmum íbúðar
** Innréttingar frá Ormsson ehf. og framleiddar af ARENS. AEG eldhústæki frá Ormsson.
** Í stofum eru lofttúður með innbyggðri hljóð- og ryksíu sem tryggja innstreymi og þar með hringrás lofts um íbúðina.
Húsið:Arkitektar og aðalhönnuðir hússins eru Sen&Son arkitektar ehf. Húsið er steinsteypt þriggja hæða fjölbýlishús með 7 íbúðum í einum stigagangi með lyftu. Á 1. hæð er anddyri, geymslur íbúða, tæknirými og tveir innbyggðir bílskúrar. Á 1. hæð eru einnig tvær glæsilegar íbúðir með beinu aðgengi út í garð. Á 2. hæð hússins eru þrjár virkilega flottar íbúðir og á 3. hæð hússins eru svo tvær stórglæsilegar íbúðir, en með þeim fylgja bílskúrarnir. Á lóðinni er bílageymsla með 7 bílastæðum. Bílageymslan er opin að hluta með lokuðum hliðum og upphituðu gólfi. Gert er ráð fyrir lagnaleið að hverju stæði fyrir möguleika á rafhleðslustöð.
Umhverfið:Húsið er staðsett í Hnoðraholti í Garðabæ. Hverfið er einstakt og nýstárlegt. Þá er hverfið sérlega vel staðsett innan höfuðborgarsvæðisins, miðsvæðis og í nálægð við góðar samgönguæðar. Í næsta nágrenni við húsið eru Vífilsstaðir, golfvöllur GKG, útivistarsvæði Heiðmerkur og nýja íþróttaaðstaða Stjörnunnar í Miðgarði.
Frekari upplýsingar veitir: Þorsteinn Yngvason, lögmaður/ löggiltur fasteignasali,
696-0226 eða thorsteinn@remax.is