Ástþór Reynir, löggiltur fasteignasali og Ragna Steinunn aðstoðarmaður fasteignasala hjá RE/MAX, kynna í einkasölu
fallegt og vel skipulagt einbýlishús á tveimur hæðum við Hjallabrekku 28 í Kópavogi. Um er að ræða 180 fm steinsteypt hús, byggt árið 1968, þar af er 32,3 fm bílskúr sem hefur verið innréttaður sem rúmgott herbergi. Eignin stendur á eftirsóttum stað í grónu hverfi og býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika, meðal annars möguleika á að útbúa séríbúð á neðri hæð. Á undanförnum árum hefur húsið fengið gott viðhald. Þak var endurnýjað og bræddur dúkur 2023. Hitaveitulagnir endurnýjaðar 2021, baðherbergi á efri hæð hefur verið endurnýjað og á neðri hæð er nýlegt baðherbergi með gólfhita. Þá hafa gólfefni á neðri hæð verið endurnýjuð ásamt innréttingu í þvottahúsi. Drenað hefur verið með austurhlið hússins við framkvæmdir á neðri hæð.
Nánari lýsing: Komið er inn í forstofu með fataskáp. Þaðan tekur við rúmgott hol sem tengir saman helstu rými efri hæðarinnar. Eldhúsið er bjart og rúmgott með góðri innréttingu, borðkrók og glugga sem veitir góða birtu. Stofa og borðstofa mynda opið og notalegt alrými með parketi á gólfi. Úr stofu er útgengt út á hellulagða verönd og þaðan út í skjólgóðan garð þar sem heitur pottur er til staðar. Á efri hæð eru þrjú rúmgóð svefnherbergi, öll með fataskápum. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf og búið baðkari, upphengdu salerni, handklæðaofni, gólfhita og glugga. Frá stofu liggur stigi niður á neðri hæð þar sem komið er í rými með mikla möguleika. Þar er einnig flísalagt baðherbergi með sturtu og gólfhita, þvottahús með nýlegri innréttingu og sérinngangi, auk rúmgóðs herbergis sem áður var bílskúr. Inn af herberginu er góð geymsla. Gólfefni eignarinnar eru að mestu parket og flísar.
Um er að ræða vel viðhaldið fjölskylduhús á vinsælum stað í Kópavogi þar sem stutt er í leikskóla, skóla, verslun, þjónustu, útivistarsvæði og helstu samgöngur. Eign með fjölbreytta nýtingarmöguleika sem vert er að skoða.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir: Ragna Steinunn Arnarsdóttir aðstoðarmaður fasteignasali í síma 858-9494 eða ragna@remax.is Ástþór Reynir löggiltur fasteignasali í síma 899-6753 eða arg@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.
2021 Hitaveitulagnir endurnýjaðar ogdrenuð austur hlið hússins við kjallara.
Raflagnir
ekki vitað.
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Ekki vitað
Þak
skipt um þak og dúkur bræddur 2023
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Útgengi útá verönd með heitum potti
Upphitun
Hitaveita.
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging