** HÉR GETUR ÞÚ BÓKAÐ SKOÐUN Á EIGNINNI **Þórdís Björk og Salvör þóra Davíðsdætur löggiltur fasteignasalar og RE/MAX kynna:Fallega, bjarta, mikið endurnýjaða og rúmgóða sérhæð með sérinngangi á eftirsóttum stað í Hlíðunum.
Eignin er samtals 154,1 m² og samanstendur af bjartri 4ra herbergja íbúð ásamt bílskúr og geymslu sem hafa verið innréttuð sem tvær sjálfstæðar leigueiningar. Yfir allri íbúðinni er háaloft og er þinglýst sem séreign íbúðar og býður því upp á mikla möguleika til stækkunar.
Um er að ræða eign sem sameinar fallega aðalíbúð og mögulega tekjumöguleika – frábær kostur fyrir stóra fjölskyldu eða þá sem vilja hafa möguleika á aukatekjum.
SMELLTU HÉR og þú færð SÖLUYFIRLIT sent til þín samstundis3D - Aðal íbúð - sérhæð3D - Leiguíbúð - Bílskúr3D - Leiguíbúð - Stúdíó ** Framkvæmdir og viðhald síðustu ára: **2026 - Íbúð máluð hátt og lágt ásamt gluggum og hurðum
2026 - Vaskur, blöndunartæki og helluborð í eldhúsi endurnýjað
2026 - Baðinnrétting, vaskur og blöndunartæki á baðherbergi endurnýjuð.
2026 - Gólf í sameign málað
2024 - Skipt um arðveg á bílaplani fyrir framan bílskúra
2023 - Húsið múrviðgert - Húsfélag er að safna fyrir steiningunni
2023 - Skipt um glugga í borðstofu og sameign (geymslu og þvottahúsi). Allir gluggarkarmar pússaðir og málaðir.
2023 - Ofnar og ofnalagnir í eldhúsi og stigagangi endurnýjaðir.
2023 - Geymsla máluð
2022 - Bílskúr málaður að utan
2020 - Skjólveggur reistur meðfarm lóðarmörkum við Stakkahlíð
2020 - Sameign og þvottahús málað
2020 - Tré fjarlægð úr garði og jarðvegsskipt að stórum hluta.
2020 - Bílskúr endurnýjaður og innréttaður sem tvær íbúðir - efri og neðri hæð: Þak, framhlið, gluggar, innréttingar, gólfefni og tæki. Rafmagns- og vatns lagnir yfirfarnar og endurnýjað eftir þörfum.
2019 - Parket og gólflistar endurnýjað í alrými og herbergjum
2019 - Eldhús yfirfarið. Búrskáp og skúffueiningu bætt við innréttingu.
2015-18 Þak endurnýjað, þ.e. - þakpappi og járn, þakkantur ásamt gluggum í þakrými.
2015-18 Skólplagnir og dren endurnýjað, hellulögn að framaverðu og niður með húsi.
2015-18 Ofnar og ofnalagnir á suðurhlið endurnýjaðir. ATH! Eirlagnir á baði og í svefnherbergi á norðurhlið sem þarf að skipta út næst þegar baðherbergi verður endurnýjað.
Fyrir árið 2010 varð Skipt um glugga á norður- og austur hlið og sett hljóðeinangrandi gler - K-gler. Eldhús og bað endurnýjað ca 2005.
Aðalíbúð – Björt 4ra herbergja sérhæð með eldhúsi, holi/miðrými, baðherbergi, tveimur svefnherbergjum og tveimur stofum.Sérinngangur leiðir upp í einstaklega fallegt
stigahús með fatahengi á stigapalli, skóskáp og linoleum dúk á gólfi. Komið er inn úr stigahúsi í miðrými íbúðar.
Í
eldhúsi er hvít innrétting með ágætis skápaplássi, dökk borðplata undir glugganum en filmuð borðplata gengt glugganum, tengi fyrir uppþvottavél og flísar á gólfi. Vaskur, blöndunartæki og helluborð endurnýjuð 2026.
Á
baðherbergi er baðkar með sturtugleri, upphengt salerni, innrétting undir og við handlaug og gluggi til loftunar. Flísar á gólfi og veggjum. Baðinnrétting, vaskur og blöndunartæki endurnýjuð 2026.
Stofa og borðstofa eru í fallegu opnu, samliggjandi og björtu rými með fallegri gler-rennihurð á milli rýma. Útgengt er á
suður svalir sem snúa út í garð.
Svefnherbergin eru tvö og eru bæði mjög rúmgóð með góðu skápaplássi og parketi á gólfi.
Gólfefni íbúðar utan eldhúss og baðherbergi er fallegt fiskibeina-harðparket.
Háaloft (þinglýst séreign): Yfir allri íbúðinni er háaloft. Möguleiki er á að opna á milli (loftplata steypt), einangra þak og útbúa þar auka herbergi eða bara opið rými.
-------------------
Bílskúr – Tvær sjálfstæðar leigueiningarBílskúrinn stendur sér frá húsinu og var endurnýjaður frá A–Ö árið 2020 og innréttaður sem tvær íbúðir með sérinngangi.
Leigueining I – Efri hæð bílskúrs er falleg og vel skipulögð stúdíóíbúð:Opið rými með flísalagðri forstofu, stofu og litlu eldhúsi með harðparketi á gólfi, hvítri innréttingu, helluborði, lítilli uppþvottavél og ísskáp. Tæki í eldhúsi fylgja.
Svefnherbergið er aðskilið frá stofu með góðum fataskáp. Við hlið herbergis er baðherbergið með upphengdu salerni, sturtuklefa, innréttingu undir handlau, handklæðaofni, tengi fyrir litla þvottavél og flísum á gólfi.
Leigueining II – Kjallari bílskúrs innangengt úr garði er 14,7 fmSvefnaðstaða/stofa, eldhúsaðstaða með þvottavél í innréttingu, baðherbergi með sturtu. Vínilparket á gólfi
------------------
Garður og staðsetning: Eignin er á vinsælum stað í Hlíðunum með góðri aðkomu og bílastæðum. Stutt er í þjónustu, skóla og miðborgina.
Um er að ræða eign með miklum möguleikum á eftirsóttum stað – bæði til búsetu og fjárfestingar.Allar nánari upplýsingar veita: Þórdís Davíðs, lgf., í síma 862-1914 eða á thordis@remax.is Salvör Davíðs, lgf., í síma 844-1421 eða á salvor@remax.is----------------------------------
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar sjá nánari upplýsingar um gjaldskrá á heimasíðu lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk
- Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
- Ertu í söluhugleyðingum? Smelltu HÉR fyrir neðan á netföng okkar til að fá frítt verðmat.- Þórdís Björk Davíðsdóttir, lgf í síma 862-1914 eða thordis@remax.is
- Salvör Þóra Davíðsdóttir, lgf í síma 844-1421 eða salvor@remax.is