RE/MAX, ásamt Guðlaugu Jónu lgf. og Garðari Hólm lgf. kynna: Bjarta og fallega hæð (1.hæð) í steinsteyptu þríbýlishúsi Kambsveg 6. Íbúiðin er með sér inngangi, bílskúr og verönd. Húsið lýtur mjög vel út og hefur fengið gott viðhald ásamt íbúðinni sjálfri. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er eignin skráð 143,4 fm, þar af er bílskúrinn 28 fm.
Frábær staðsetning í rótgrónu hverfi í Laugardalnum þar sem stutt er í alla helstu þjónustu svosem matvörubúð, leik- og grunnskóla, sundlaug og eru góðar almenningssamgögnur í nágreninu. Nánari lýsing:Forstofa er rúmgóð með flísum á gólfi. Þaðan er innangengt í eitt herbergi.
Eldhús hefur verið endurnýjað á afar smekklegan máta með hvítri eldhúsinnréttingu með viðar borðplötu. Tengi fyrir uppþvottavél og tvöfaldan ísskáp. Gott skápa- og vinnupláss. Góður gluggi er í eldhúsi sem gerir það einstaklega bjart og fallegt. Parket á gólfi. Innangent í þvottahús er úr eldhúsi.
Þvottahús er inn af eldhúsi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Ágætt geymslupláss. Útgengt er úr þvottahúsi.
Borðstofa er rúmgóð með parketi á gólfi og þaðan er útgengt út í garð. Opið er á milli borðsstofu og stofu. Fallegir loftalistar og rósetta í kringum loftljós.
Stofa er björt og rúmgóð með parketi á gólfi. Fallegur bogadreginn gluggi þar sem gerir rýmið einstaklega skemmtilegt. Fallegir loftalistar og rósetta í kringum loftljós.
Baðherbergi er með hvítri skúffueiningu og handlaug, speglaskáp þar fyrir ofan. Baðkari með sturtuaðstöðu. Salerni og opnanlegur gluggi. Flísar á gólfi og að hluta til veggjum.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum fataskápum og parketi á gólfi.
Herbergi II er með parketi á gólfi og fataskáp með spegli.
Herbergi III er með parketi á gólfi og er notað í dag sem snyrtiherbergi.
Herbergi IV er með parketi á gólfi og gengið í það úr forstofu. Í dag notað sem fata- og snyrtiherbergi.
Bílskúrinn er 28 fm og er með stórri opnanlegri hurð og gönguhurð. Þar er hiti, vatn og hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla. Gluggar eru á einni hlið á bílskúrnum svo það væri möguleiki að breyta honum í útleigueiningu.
Lóðin er mjög snyrtileg og er hún 943 fm.
Annað:Húsið var steinað um 2010.
Þak og gluggar voru málaðir 2019.
Verönd stækkuð um 2019.
Frárennsli frá baðherbergi og eldhúsi fóðrað 2020.
Rafmagn hefur verið endurnýjað í íbúð.
Ný rafmagnstafla í bílskúr með 3ja fasa rafmagni ásamt hleðslustöð.
Hitastillar og tengingar á ofnum endurnýjað um 2016.
Nánari upplýsingar um eignina veita:
Guðlaug Jóna lgf. í gegnum gulla@remax.is eða s. 661-2363
Garðar Hólm lgf. í gegnum gardar@remax.is eða s. 899-8811