RE/MAX Ísland logo
Opið hús:11. júní kl 17:00-17:30
Skráð 30. maí 2025
Söluyfirlit

Kambsvegur 6

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Laugardalur-104
143.4 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
112.500.000 kr.
Fermetraverð
784.519 kr./m2
Fasteignamat
86.500.000 kr.
Brunabótamat
61.760.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Guðlaug Jóna Matthíasdóttir
Guðlaug Jóna Matthíasdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1954
Þvottahús
Garður
Sérinngangur
Fasteignanúmer
2017635
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Endurnýjað að hluta
Frárennslislagnir
Fóðraðar úr eldhúsi og baði 2020
Gluggar / Gler
móða í sumum glerjum/sumir gluggar lélegir
Þak
Endurnýjað að hluta
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
móða í sumum glerjum og sumir gluggar orðnir lélegir.
 
RE/MAX, ásamt Guðlaugu Jónu lgf. og Garðari Hólm lgf. kynna: Bjarta og fallega hæð (1.hæð)  í steinsteyptu þríbýlishúsi Kambsveg 6. Íbúiðin er með sér inngangi, bílskúr og verönd. Húsið lýtur mjög vel út og hefur fengið gott viðhald ásamt íbúðinni sjálfri. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er eignin skráð 143,4 fm, þar af er bílskúrinn 28 fm. 
Frábær staðsetning í rótgrónu hverfi í Laugardalnum þar sem stutt er í alla helstu þjónustu svosem matvörubúð, leik- og grunnskóla, sundlaug og eru góðar almenningssamgögnur í nágreninu. 


Nánari lýsing:
Forstofa er rúmgóð með flísum á gólfi. Þaðan er innangengt í eitt herbergi.
Eldhús hefur verið endurnýjað á afar smekklegan máta með hvítri eldhúsinnréttingu með viðar borðplötu. Tengi fyrir uppþvottavél og tvöfaldan ísskáp. Gott skápa- og vinnupláss. Góður gluggi er í eldhúsi sem gerir það einstaklega bjart og fallegt. Parket á gólfi. Innangent í þvottahús er úr eldhúsi.
Þvottahús er inn af eldhúsi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Ágætt geymslupláss. Útgengt er úr þvottahúsi.
Borðstofa er rúmgóð með parketi á gólfi og þaðan er útgengt út í garð. Opið er á milli borðsstofu og stofu. Fallegir loftalistar og rósetta í kringum loftljós.
Stofa er björt og rúmgóð með parketi á gólfi. Fallegur bogadreginn gluggi þar sem gerir rýmið einstaklega skemmtilegt. Fallegir loftalistar og rósetta í kringum loftljós.
Baðherbergi er með hvítri skúffueiningu og handlaug, speglaskáp þar fyrir ofan. Baðkari með sturtuaðstöðu. Salerni og opnanlegur gluggi. Flísar á gólfi og að hluta til veggjum.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum fataskápum og parketi á gólfi.  
Herbergi II er með parketi á gólfi og fataskáp með spegli.
Herbergi III er með parketi á gólfi og er notað í dag sem snyrtiherbergi. 
Herbergi IV er með parketi á gólfi og gengið í það úr forstofu. Í dag notað sem fata- og snyrtiherbergi.
Bílskúrinn er 28 fm og er með stórri opnanlegri hurð og gönguhurð. Þar er hiti, vatn og hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla. Gluggar eru á einni hlið á bílskúrnum svo það væri möguleiki að breyta honum í útleigueiningu. 
Lóðin er mjög snyrtileg og er hún 943 fm. 

Annað:
Húsið var steinað um 2010.
Þak og gluggar voru málaðir 2019.
Verönd stækkuð um 2019. 
Frárennsli frá baðherbergi og eldhúsi fóðrað 2020.
Rafmagn hefur verið endurnýjað í íbúð.
Ný rafmagnstafla í bílskúr með 3ja fasa rafmagni ásamt hleðslustöð.
Hitastillar og tengingar á ofnum endurnýjað um 2016.


Nánari upplýsingar um eignina veita:
Guðlaug Jóna lgf. í gegnum gulla@remax.is eða s. 661-2363
Garðar Hólm lgf. í gegnum gardar@remax.is eða s. 899-8811

 
Byggt 1972
28 m2
Fasteignanúmer
2017635
Byggingarefni
Holsteinn
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Brunabótamat
9.110.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Kleppsmýrarvegur 6 - Íbúð 308
104 Reykjavík
123.8 m2
Fjölbýlishús með lyftu
413
855 þ.kr./m2
105.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Kleppsmýrarvegur 6 - Íbúð 408
104 Reykjavík
128.6 m2
Fjölbýlishús með lyftu
413
800 þ.kr./m2
102.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Kleppsmýrarvegur 6 - Íbúð 507
104 Reykjavík
129.7 m2
Fjölbýlishús með lyftu
413
809 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Kleppsmýrarvegur 6 - Íbúð 509
104 Reykjavík
119.6 m2
Fjölbýlishús með lyftu
413
869 þ.kr./m2
103.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2025 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin