RE/MAX og Guðrún Lilja löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Einstaklega falleg og björt 5 herbergja 133,9 fm. íbúð (merkt 0319) í nýlegu lyftuhúsi við Elliðabraut 4, Reykjavík. Fjögur rúmgóð svefnherbergi - tvö baðherbergi - vandaðar innréttingar og gólfefni - aukin lofthæð - tvennar svalir til austurs og vesturs - sérgeymsla staðsett í sameign og sérmerkt bílastæði í bílgeymslu með hleðslustöð.
KÍKTU Í HEIMSÓKN OG SJÁÐU EIGN Í 3D MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR
FÁÐU SÖLUYFIRLIT MILLILIÐALAUST MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR
Björt og vel skipulögð eign á eftirsóttum stað í Norðlingaholti þar sem stutt er í leik- og grunnskóla, alla helstu þjónustu og verslanir. Jafnframt eru fallegar göngu- og hjólaleiðir í næsta nágrenni m.a. við Elliðavatn og náttúruparadís við Heiðmörk.
Nánari upplýsingar gefur Guðrún Lilja Tryggvadóttir, löggiltur fasteignasali í síma 867-1231, gudrunlilja@remax.is
Nánari lýsing:
Forstofa er með góðum fataskápum ásamt fallegri hirslu með stórum spegli. Vandaðar Versace flísar frá Flísabúðinni á gólfi.
Eldhús er í opnu rými með eyju og innréttingum frá Voké - III sem ná upp í loft. Innbyggður ísskápur, uppþvottavél, örbylgjuofn og bakaraofn í innréttingu. Vandaðar Versace flísar frá Flísabúðinni á gólfi.
Stofa og borðstofa er í björtu opnu rými með útgengt á 8,4 fm.
vestur svalir og 2,0 fm.
suð-austur svalir.Hjónaherbergi er rúmgott með góðum fataskápum og
sér baðherbergi. Harðparket á gólfi.
Þrjú rúmgóð barnaherbergi, öll með góðum fataskápum. Harðparket á gólfi.
Baðherbergi eru með flísalagt gólf og vegg að hluta. Flísalögð sturta með glerskilrúmi. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara á stærra baðherberginu.
Sérgeymsla er staðsett í sameign um 4,9 fm.
Sérmerkt bílastæði fylgir íbúð í opinni bílageymslu merkt B05 með hleðslustöð frá ON. Einnig eru hleðslustöðvar á sameiginlegum bílastæðum fyrir utan hús.
Sameign er mjög snyrtileg og falleg aðkoma að húsinu.Vandað harðparket er frá Parki. Innréttingar og fataskápar frá framleiðandanum Voké – III. Fataskápar eru sérsmíðaðir með dökkbrúnni viðaráferð og ná upp í loft. Eldhúsinnréttingar eru sérsmíðaðar, ljósar með dökkri kantlímingu og ná upp í loft. Húsið er teiknað af +Arkitektum og byggt af Þingvangi. Eignin er á 3. hæð (2.hæð frá aðalinngangi hússins). Fyrirhugað fasteignamat ársins 2026 er kr. 99.650.000,-
Ath. Seljandi skoðar einnig skipti á þriggja herbergja íbúð í Norðlingaholti.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.