** HÉR GETUR ÞÚ BÓKAÐ SKOÐUN Á EIGNINA **RE/MAX ásamt Þórdísi Björk Davíðsdóttur löggiltum fasteignasala kynna:Bjarta, rúmgóða 92,7 fm 3ja herbergja íbúð á annarri hæð með sérinngangi af svölum í góðu fjölbýli í Hamrahverfinu í Grafarvogi.
Eignin er mikið endurnýjuð að innan og virðist húsið einnig hafa fengið gott viðhald að utan.
SMELLTU HÉR og þú færð SÖLUYFIRLIT SAMSTUNDIS SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D 3D - ER = OPIÐ HÚS ÞEGAR ÞÉR HENTAR Ekki þarf sérstakt forrit til að skoða eignina í 3D.2024 - Endurbætur:- Gólfefni - Parket frá Birgisson ehf.
- Baðherbergi- Vínyl parket, sturtuklefi og speglaskápur.
- Eldhús - Efriskápar og í kringum ísskáp bætt við
- Hjónaherbergi - Fataskápar frá IKEA (opnir)
- Forstofan - bætt við fataskápinn
- Íbúðin öll máluð - bæði veggir og gluggar.
Innan íbúðar eru: Forstofa
, eldhús, stofa, borðstofa, tvö svefnherbergi og baðherbergi, .
Nánari lýsing eignar: Komið er inn í flísalagða forstofu með góðum fataskápum og flísum á gólfi.
Stofan, borðstofan og eldhúsið eru í opnu björtu rými með gluggum bæði til suðurs og norðurs, parketi á gólfi og útgengi á góðar suður svalir úr stofunni.
Eldhúsinnréttingin er hvít háglans með span helluborði og bakaraofni í eyju og háfur þar yfir, góðu skáparými, innbyggðum ísskáp (keypt 2024) og uppþvottavél sem fylgja með og parket á gólfi.
Herbergi I er barnaherbergið sem er í góðri stærð með góðum fataskápum, gluggum til norðurs og parketi á gólfi.
Herbergi II er hjónaherbergið sem er rúmgott með góðum opnum fataskápum, gluggum til suðurs og parketi á gólfi.
Baðherbergið er með salerni, sturtuklefa úr Bauhaus, hvítri nnréttingu undir og við handlaug og vínylparketi á gólfi.
2024 var íbúðin öll máluð bæði veggir og gluggar, parket (frá Birgisson) lagt á íbúðina utan votrýma
Sér geymsla íbúðar er á jarðhæð í sameign með veggföstum hillum á einum vegg.
Í
sameign er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Sérmerkt bílastæði íbúðar er merkt - 25 - og hefur fyrri eigandi lagt lögn að bílastæði íbúðar fyrir hleðslustöð en núverandi eigandi hefur ekki nýtt það.
Birt stærð íbúðar er 85,4 fm (02-0202) og
geymslu er 7,3 fm (sjá eignaskiptayfirlýsingu),
sem gerir alls 92,7 fm skv. Eignaskiptayfirlýsingu. Bláhamrar 25 stendur á sameiginlegri lóða húsanna Bláhamrar 1-15 og Bláhamrar 17-29 og eru allar íbúðir með sérmerkt bílastæði.
Húsfélag er fyrir Bláhamra 17 - 29 og Lóðarfélag fyrir Bláhamra 1-15 og 17-29.
Um er að ræða vel staðsetta eign í sérlega rólegu og grónu hverfi.
Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Þórdís Björk löggiltur fasteigna- og skipasali s: 862-1914 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið thordis@remax.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. - Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
- Ertu í söluhugleyðingum? Smelltu HÉR til að fá frítt verðmat. Heimasíða RE/MAX Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: · Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða) og 1,6% (ef lögaðilar)af heildarfasteignamati.
· Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
· Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
· Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk