Hilmar Arnarson og Sveinn Gíslason lögmaður/löggiltur fasteignasali ásamt RE/MAX kynna:
Virkilega fallega og vel skipulagða, fjögurra herbergja endaíbúð á þriðju/efstu hæð (tvær hæðir frá götu), í fallegu litlu fjölbýli að Ljósalind 4, 201 Kópavogi.
Eigninni fylgja tvær geymslur, önnur innan íbúðar, ásamt 26fm bílskúr og sérbílastæði.
Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er birt flatarmál íbúðarinnar 123 fm þar af er íbúðin 120,7 fm ásamt 2,3 fm sérgeymslu, ásamt 26 fm bílskúr á sér fastanúmeri.Allar nánari upplýsingar veitir Hilmar Arnarson 823-3673 eða á hilmar@remax.isRut Káradóttir, innanhúsarkitekt kom að innanhúshönnun íbúðarinnar.
Niðurlímt viðarparket í síldarbeinamynstri, innbyggðar hillur og skápar, niðurtekin loft með innfelldri lýsingu, skrautlistar og franskar rennihurðar, ásamt hærri hurðargötum setja svip sinn á íbúðina.
Fallegt útsýni til sjávar af rúmgóðum svölum til suð-vesturs, þar sem búið er að koma upp svalalokun.
Björt og skemmtileg eign á þessum vinsæla stað í Lindahverfinu. Stutt er í alla helstu þjónustu. Grunnskóli, leikskólar, verslanir og sundlaug í göngufæri.Nánari lýsing eignar:Forstofan: er með ljósum flísum sem fljóta inn í eldhús og borðstofu. Góður innbyggður fataskápur.
Geymsla innan íbúðar: úr forstofu er gengið inn í rúmgóða geymslu skráð 6.11fm með flísum á gólfi og fatahirslum.
Stofa/alrými: mjög rúmgott og bjart stofurými með gluggum í suður/vestur og fallegu útsýni. Innbyggðar hillur úr hnotu, hannaðar af Rut Kára ásamt niðurtekinni lýsingu. Niðurlímt síldarbeina-parket flæðir um alrými og inn í svefnherbergin. Virkilega smekklegur kaffi/vínbar hefur verið settur upp í stofurýmið með led lýsingu og stein á borði.
Borðstofan: flísar á gólfi, hægt að ganga frá alrými og eldhúsi um franska rennihurð sem gengur inn í vegginn. Fallegt útsýni til vesturs og út á sjó.
Svalir: gengið er út á mjög rúmgóðar L-laga svalir með svalalokun, frá borðstofu.
Eldhúsið: flísar á gólfi, falleg eldhúsinnrétting úr hnotu, granít borðplötur, ofnar í vinnuhæð, keramik helluborð og háfur.
Þvottahús: innaf eldhúsi er þvottahús með góðu skápaplássi. Innrétting fyrir vélar í vinnuhæð.
Hjónaherbergið: er rúmgott, með parketi á gólfi og góðum fataskáp.
Barnaherberg I: er með parketi á gólfi og góðum skáp.
Barnaherbergi II: er með parket á gólfi og góðum skáp.
Baðherbergið: er flísalagt í hólf og gólf. Upphengt klósett, baðkar og sturta. Gott skápapláss, granít borðplata með undirlímdri handlaug.
Geymsla 2.3fm
fylgir íbúðinni og er staðsett í sameign á 1.hæð.
Bílskúr: Flísalagður með opnanlegum gluggum og þakgluggum. Rafdrifin bílskúrshurð.
Viðhald sl. ára2019 var húsið sílanborið og gluggar málaðir
2025 var parket pússað upp og lakkað
2025 var öll íbúðin máluð
Allar upplýsingar veitir Hilmar Arnarson aðstoðarmaður fasteignasala, Hilmar@remax.is, sími 823-3673 og Sveinn Gíslason lögmaður/löggiltur fasteignasali sveinn@remax.is sími 859-5559.
Remax fasteignasala sími 477-7777. www.remax.is1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.