NÁNARI UPPLÝSINGAR FÆRÐU HJÁ GUÐNÝJU ÞORSTEINS Í SÍMA 7715211 EÐA GUDNYTH@REMAX.IS
RE/MAX og GUÐNÝ ÞORSTEINS Löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Einbýlishús með fánastöng á einstakri sjávarlóð í friðsælu og fallegu umhverfi þar sem sjávarniðurinn er hluti af daglegu lífi. Hér sameinast náttúrufegurð og næði á einstakan hátt, með óhindruðu útsýni til sjávar og síbreytilegu landslagi sem nýtur sín í öllum árstíðum. Eignin stendur á rúmgóðri lóð við strandlengjuna og býður upp á einstaka upplifun fyrir þá sem sækjast eftir ró, náttúru og nálægð við sjóinn.
Samkvæmt Fasteignayfirliti Ríkisins er
húsið 131,2fm og
bílskúr 54,4fm,
samtals 185,6fm við það bætist 19,5fm sólskáli. Húsið var endurnýjað árið 2008 (sjá neðar í lýsingu). Húsið er allt kynt með hita í gólfum.
Eignin samanstendur af: Forstofu, gestasalerni, herbergisgangi, 3 svefnherbergjum, baðherbergi, þvottahúsi, eldhúsi með borðkrók, búri, stofu, borðstofu, sólskála ásamt stórum bílskúr.
Lýsing eignar:Forstofa: Er rúmgóð með skáp fyrir framan forstofuna, Flísar á gólfi með hita.
Gesta salerni: Er inn af forstofu með upphengdu salerni og glugga með opnanlegu fagi. Flísar á gólfi með hita.
Eldhús: Er bjart með tveimur gluggum, góðu skúffu- og skápaplássi, innbyggðri uppþvottavél, helluborði með viftu fyrir ofan, gott vinnupláss á með granít á borðum ásamt eldhúsborðkróki. Flísar á gólfi með hita.
Borðstofa: Er rúmgóð inni í stofu, en opið er frá eldhúsi og inn í borðstofuna. Flísar á gólfi með hita.
Stofa: Er með aukinni lofthæð, rúmgóð með stórum gluggum ásamt útgangi út í sólstofu. Flísar á gólfi með hita.
Sólstofa: Er 19,5fm að stærð með rafmagnspotti og útgangi út í garð. Flísar á gólfi.
Garðurinn: Er að mestu viðalds laus með fallegu grjóti ásamt grasflötum og trjám.
Herbergi I: Er inn af forstofu með tvöföldum fataskáp. Flísar á gólfi með hita.
Herbergi II: Er ágætt að stærð með flísum á gólfi og hita.
Herbergi III: Er rúmgott með sexföldum fataskápum sem ná upp í loft. Flísar á gólfi með hita.
Baðherbergi: Er virkilega rúmgott og gott í umgengi, með stórri þreplausri sturtu, upphengdu salerni, góðu geymsluplássi, stórum spegli með vaska borði fyrir neðan. Gluggi með opnanlegu fagi. Flísar eru á veggjum og gólfi.
Þvottahús: Er með snúrum í lofti, skápum og skúffum ásamt útgangi út á bílaplan. Flísar á gólfi með hita.
Búr: Er inn af þvottahúsi með hillum.
Bílskúr: Er 54,4fm að stærð með hita í ásamt rafdrifinni hurð.
Viðhald:
2025 - Alo zink þak á húsi sprautað með grunni og 2x með málningu
Árið 2008 var húsið endurnýjað að mestu:- Hús einangrað að utan og steinað (var einangrað að innan þegar það var byggt)
- Skolp endurnýjað
- Þakrennur ásamt þak kanti endurnýjað
- Gluggum skipt út fyrir ál glugga
- Ofnar fjarlægðir og hiti settur í gólf (ekki í búri)
- Rafmagnstafla endurnýjuð og nýjar raflagnir dregnar í að mestu leiti
- Gólfefni endurnýjuð
- Baðherbergi stækkað og endurnýjað
- Eldhús endurnýjað ásamt vatnslögnum
- Innihurðir endurnýjaðar
- Gestasalerni endurnýjað
- 2006 - Sólskáli reistur (keyptur hjá Gluggar og Garðhús)
Húsið er statt í jaðri bæjarins þar sem ró og friður ríkir. Fallegar gönguleiðir eru allt um kring við ósnortna náttúru.
Á Stokkseyri er gott bæjarlíf en þar er skóli, leikskóli, sundlaug, gott félagsstarf fyrir eldri borgara ásamt, kvenfélag, kórar, björgunarstörf, tónlistarfélag ofl.
Stokkseyri:Árið 1998 sameinuðust Eyrarbakkahreppur, Sandvíkurhreppur og Selfossbær í Sveitarfélagið Árborg. Strandlengja Stokkseyrarhrepps er um 8 km að lengd, frá Hraunárósi í vestri að Baugsstaðasíki í austri. Sjávarkamburinn er yfirleitt 6-9 metra yfir stórstraumsfjöru. Stærsta fiskvinnslufyrirtækið á Stokkseyri er Hraðfrystihús Stokkseyrar sem sameinaðist 1988 Glettingi hf í Þorlákshöfn undir heitinu Árnes hf. Frystihúsið setur óneitanlega stóran svip á ásýnd Stokkseyrar en það er staðsett þar sem fyrrum stóðu bæjarhúsin á Stokkseyri og um skeið verslun Ólafs Árnasonar. Árið 1998 var grunnskólinn sameinaður við barnaskólann á Eyrarbakka og fer þar fram kennsla fimm yngri árganga nemenda, en eldri bekkjum er kennt á Eyrarbakka. Í dag eru aðalatvinnuvegir Stokkseyringa tengdir útgerð og landbúnaði ásamt nokkrum iðnaði og þjónustustörfum. Margir sækja atvinnu út frá staðnum. Við Kumbaravog, rétt austan þorpsins, er rekið dvalarheimili fyrir aldraða. Vaxandi atvinnuvegur er ferðaþjónusta. Sundlaug er á Stokkseyri við barnaskólann. Þuríðarbúð er stórmerkur minnisvarði um farsæla sjó konu og horfna atvinnuhætti við sjávarsíðuna. Veitingastaðurinn Við fjöruborðið er alhliða veitingastaður í kjarna Stokkseyrar sem sérhæft hefur sig í humarréttum. Hver sem kemur til Stokkseyrar ætti að gefa sér tíma til að skoða fuglalífið við fjöruna austan Stokkseyrar eða hlusta þar uppi slóðir tónskáldsins þar sem fékkst innblástur í tónsmíðar. Skemmtilegur möguleiki til að komast í nána snertingu við ósnortna náttúruna gefst með því að fara í kajakaferðir um skerjagarðinn eða um tjarnirnar. Vert er að vekja athygli á húsunum stórum og smáum, gömlum og nýjum. Ef ekið er í austurátt frá þorpinu kemur brátt að Baugsstaðarjómabúi og Knarrarósvita. Ýmsar forvitnilegar ökuleiðir liggja síðan um Flóann.
Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Guðný Þorsteins löggiltur fasteigna- og skipasali s: 771-5211 eða á netfangið gudnyth@remax.is.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Re/Max því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.600 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, 69.900 kr. m.vsk.