Guðlaugur J. Guðlaugsson og Gunnar Sverrir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:
Vel skipulagt og vel staðsett 247,0 fm. einbýlishús á einni hæð við Hvannakur 6, 210 Garðabæ með frábært úti-svæði, verönd með steyptum skjólveggjum og heitum potti. Húsið stendur á skjólsælum stað.
Í húsinu er gólfhiti, gólfsíðir gluggar, vandaðar innréttingar hannaðar af Hallgrími Friðgeirssyni og hátt til lofts. Hvannakur 6 er teiknað að af ARKITEÓ, sjá hér link frá þeim um húsið
https://www.arkiteo.is/hvannakur-6Samkvæmt HMS, kemur fram í fasteignayfirliti að húsið sé skráð 247,0 fm, þar af er innbyggður bílskúr 38,4 fm.
Í húsinu eru fjögur rúmgóð svefnherbergi, tvö baðherbergi, opið alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu með útgengi út á verönd. Sjónvarpsstofa, gangur og anddyri með aðgengi inn mjög rúmgóðan bílskúr.
Smelltu á linkinn til að skoða húsið í 3DBókið skoðun hjá Gulla í síma 661 6056 eða með tölvupósti á netfangið gulli@remax.is
Nánari lýsing: Forstofan er björt og rúmgóð með gott skápapláss, flísar á gólfi. Hægt er að loka forstofu að með viðar rennihurðum. Gangur með sömu flísum tekur þar við, annars vegar inn í alrými með eldhús, borðstofu og stofu. Bjart og rúmgott alrými með hátt til lofts og gólfsíðum gluggum að hluta til og stóra opnanlega vængjahurð út á glæsilega verönd með heitum potti, steptum skjólveggjum og markísu. Harðparket á gólfi. Eldhúsinnrétting er hvít með Quartz stein á borðum, innbyggðan kælir með frystir, ofn og combi ofn eru í vinnuhæð. Undirlímdur vaskur og innbyggð uppþvottavél. Mikið og gott vinnu- og skúffu pláss. Eyjan er með sama Quartz stein á borði, gashelluborð og gott skúffu pláss þar undir, áður var fast borðplata þar við, nýlega tekin niður. Í miðju alrými er gas arinn sem skilur að hluta til alrými við sjónvarpsstofu. Fallegt birta er í öllu húsinu, flottir gluggar hátt með fram flísalögðum svefnherbergisgangi setja svip sinn á eignina í sambland við stóran sjónsteypu vegg og gólfsíða glugga. Herbergin eru fjögur, öll mjög rúmgóð. Í hjónaherberginu er harðparket á gólfi og fataskápar með viðar rennihurðum. Þar við hlið er baðherbergi með sömu flísum og eru á ganginum, en hvítum flísum á veggjum. Baðkar og sér sturta með sturtugleri, innbyggð blöndunartæki, handklæðaofn og upphengt salerni. Stór og flott innrétting með Quartz stein á borði, undirlímdan vask og gott vinnu- og skúffu pláss ásamt baðskáp þar við hlið. Stór spegill með óbeina lýsingu bæði upp og niður. Sér þvottahús er þar við hlið með sömu flísum á gólfi, hvíta innréttingu með tengi og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð ásamt góðu borðplássi með skolvaski í, hvítur speglaskápur þar á móti. Frá þvottahúsinu er útgengi út á lóð, gler hurð með kattarlúgu í, auðvelt að endurnýja ef þess með þarf. Hin herbergin þrjú eru öll með fataskáp og harðparket á gólfi. Baðherbergi II er á ganginum á bakvið sjónvarpsstofu, það var endurnýjað árið 2024, gráar flísar á gólfi og upp meðfram sturtunni, sem er með innbyggðum blöndunartækjum og sturtugleri. Innrétting er með Quartz stein á borðum, undirlímdan vask og skúffur þar undir, fyrir ofan er spegla glerskápur með gott geymslupláss. Handklæðaofn og upphengt salerni. Frá forstofunni er hurð inn í bílskúrinn, hann er mjög rúmgóður með flísum á gólfi, rafdrifna hurð og glugga sem veita birtu inn, búið er að hólfa að hluta til geymslu í öðrum enda þess og sníða gott og snyrtilegt geymslupláss með fram veggjum í loftinu.
Hellulagt og með hita í er fyrir framan innganginn og að veröndinni. Þá er einnig hiti í stimpilsteypta planinu fyrir framan bílskúrinn. Steyptir skjólveggir umlykja veröndina, þar er heitur pottur og fallegur gróður meðfram skjólveggjunum að utanverðu. Á bak við húsið er hellulagt meðfram öllu húsinu og að lóðarmörkum er grasblettur sem er í öðrum enda þess gróðursettur á huggulegan hátt.
Nánari upplýsingar veita: Guðlaugur J. Guðlaugsson, löggiltur fasteignasali, í síma
661-6056 / gulli@remax.is og Gunnar Sverrir, löggiltur fasteignasali, í síma
862-2001 / gunnar@remax.is
Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Hafið samband og við munum verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-