Guðbjörg Helga og Gylfi Jens löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX kynna Seljaveg 3, 101 Reykjavík.Skemmtileg og björt miðhæð í þríbýlishúsi á góðum stað í Vesturbænum. Íbúðin er 2ja herbergja og er heildarstærð uppgefin 72,3 fm. Íbúðin sjálf er 55,4 fm en auk þess er aukaherbergi og geymsla í kjallara samtals 16,9 fm. Fasteignamat 2026 verður 63.750.000 kr. **SÆKTU SÖLUYFIRLIT SJÁLFVIRKT MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR** **SKOÐAÐU EIGNINA Í ÞRÍVÍDD OG MÆLDU FYRIR ÞÍNUM HÚSGÖGNUM HÉR**Núverandi skipulag eignar:Hol/gangur, opinn fataskápur í enda hans, stofa/borðstofa, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi (án wc), gestasalerni, herbergi/ geymsla í kjallara, og önnur geymsla í kjallara.
Lýsing eignar:Gólfefni á íbúð eru eldra parket, flísar á eldhúsi og baðherbergjum.Hol/gangur; Komið inn í parketlagt hol. Opinn skápur/geymslurými er í enda rýmis. Þetta rými tengir saman önnur rými.
Stofa/Borðstofa: Björt og rúmgóð með tveimur gluggum. Býður upp á margskonar uppröðun innbús. Snýr út að götu.
Svefnherbergi: Snýr inn að garði og er með fataskápum.
Eldhús: Íslensk lökkuð innrétting á 2 veggjum ásamt nettum borðkrók. Gluggi sem snýr að garði. Tengt fyrir uppþvottavél í eldhúsi.
Baðherbergið er tvískipt; annarsvegar salerni og nettur vaskur (gengið inn af gangi) og hinsvegar baðkar og vaskur (gengið inn frá svefnherbergi).
Herbergi í kjallara: Íbúðinni fylgir aukaherbergi í kjallara með glugga sem snýr inn að garðinum. Ekki full lofthæð. Gluggi inn að garði. Þetta herbergi gæti hentað vel t.d. fyrir tónlistarfólk.
Geymsla: er í kjallara og er mjög rúmgóð.
Snyrtilegur stigagangur og sameign.
Sameiginlegt þvottahús er í kjallara og þar er útgengi út í garð. Hver er með tengi fyrir eigin vél.
Útgengi er í sameiginlegan skjólgóðan og sólríkan bakgarð í gegnum þvottahús. Frá bakgarði er aðgengi að Borgarstígnum, sem liggur meðfram allri húsaröðinni
Stutt gönguleið er í alla þjónustu, m.a. á Granda og niður í miðbæ um Mýrargötuna. Afar skemmtileg staðsetning í gamla Vesturbænum, steinsnar frá nýjum byggingum og skemmtilega Granda svæðinu með öllu því mannlífi sem þar er.Framkvæmdasaga í eignatíð núverandi eiganda:2024: Rafmagnstafla og raflagnir í sameign endurnýjaðar í árslok 2024.
Framkvæmdasaga skv. söluyfirliti er núverandi eigandi keypti 2020:2016-2019: Gler í íbúð endurnýjuð utan opnanlegra faga.
ca 2017 -2019: Hús málað að utan og rennur endurnýjaðar
Allar nánari upplýsingar gefa: Guðbjörg Helga löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur, s. 897 7712 og
gudbjorg@remax.isGylfi Jens löggiltur fasteignasali og lögmaður s. 822 5124 og
gylfi@remax.is