Pétur Ásgeirsson löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX fasteignasölu kynnir: Vel skipulagt, mikið endurnýjað fallegt einbýlishús á einni hæð með stórum bílskúr á við Austurfold 7 í Grafarvogi.Um er að ræða bjarta og rúmgóða eign á einstaklega stórri 1249,0 fm lóð með stórum palli og aukinni lofthæð að hluta til. Eignin er staðsett á grónum og fjölskylduvænum stað í lokaðri botnlangagötu þar sem stutt er í skóla, þjónustu og fjölbreytt útivistarsvæði.
Samkvæmt fasteignayfirliti ríkisins er húsið samtals 239,5 fm, þar af er 36 fm bílskúr.
Eignin samanstendur af: Forstofu, eldhúsi, stofu ásamt borðstofu, 5 svefnherbergjum, gestasalerni, baðherbergi, holi, bílskúr ásamt stórum garði með verönd.Hér getur þú gengið í gegnum eignina í 3D // Mjög vel staðsett eign og stutt í alla þjónustu.
// Mikið endurnýjuð og vel við haldið.
// 5 Svefnherbergi sem er öll mjög rúmgóð.
// Mjög stórt alrými.
// Stór bílskúr
// Glæsilegur garður með stórum palli og heitum potti.
// Stæði fyrir 5 bíla fyrir utan.Það sem hefur verið gert samkvæmt eigendum.2008. Nýtt Parket á stofu og gang.
2009. Gesta snyrting endurnýjuð ásamt sturtu.
2015. Aðal baðherbergið endurhannað og tekið í gegn.
2016. Útbjuggum verönd við suðvestur enda húss og auka bílastæði um leið
2017. Nýir ofnar settir í allt húsið.
2019. Nýir gluggar og hurðir settir í húsið suður.
2022. Nýtt Þak
2023-2024. Nýjar neysluvatnslagnir lagðar í húsið.
Nýbúið að slípa parketið á flestum stöðum og lítur út eins og nýtt.
Húsið málað utan og innan reglulega eftir þörfum ásamt öðru viðhaldi.
Nánari lýsing:Aðkoma að eigninni er snyrtileg með hellulagðri innkeyrslu, góðu bílastæði og rúmgóðum innangengum bílskúr.
Forstofa: Flísar á gólfi og með fataskáp.
Gestabaðherbergi: Er inn af forstofu. Flísalagt í hólf og gólf, falleg innrétting með stórum spegil og tveimur vöskum. Upphengt WC og walk in sturta.
Stofa/borðstofa: Parket á gólfi, mjög björt og rúmgóð með gólfsíðum gluggum að hluta.
Eldhús: Mjög falleg innrétting með miklu skápa og borð plássi, eldunareyju og steinn á borðum. Ofnar í vinnuhæð og ísskápur getur fyllt með. Útgengt út stóran pall sem snýr til suðurs.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi og með stórum fataskáp, útgengt út á pall.
Barnaherbergi 1: Parket á gólfi.
Barnaherbergi 2: Parket á gólfi og með fataskáp.
Barnaherbergi 3: Parket á gólfi og með fataskáp.
Barnaherbergi 4: Parket á gólfi með með stórum fataskáp.
Aðalbaðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Mjög rúmgott með fallegri innrétting með miklu skápaplássi. og stórum spegil upphengt WC og walk in sturtu.
Geymsla: Er á leiðinni inn í bílskúr og með góðum hillum.
Þvottahús: Er inn í bílskúr, það þarf að setja upp fallega innréttingu fyrir vélar þar.
Bílskúr: Er mjög rúmgóður og hátt til lofts, væri hægt að setja upp gott milliloft þar. Útgengi út sérafnotareit þar sem potturinn er.
Lóðin er einn af helstu kostum eignarinnar. Hún er einstaklega stór, gróin og vel hirt með fallegum trjágróðri, grasflöt og stórum palli sem skapar skjólgott umhverfi til útiveru.
Staðsetning eignarinnar er virkilega góð í mjög rólegri botngötu þaðan sem stutt er í skóla, leikskóla, verslanir og aðra þjónustu.
Nánari upplýsingar gefur Pétur Ásgeirsson löggiltur fasteignasali í síma 893-6513 / petur@remax.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.