Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali (bjarni@remax.is/s:662-6163) kynnir vel skipulagða og bjarta 75,3fm, 2ja herberbergja íbúð á 4ðu og efstu hæð í lyftuhúsi við Kuggavog 11 við Elliðarárvoginn í nýju og spennandi íbúðarhverfi. Sérsmíðaðar innréttingar. Gólfhiti. Svalalokun. Eignin er 67,7m² íbúð fyrst til hægri á 4.hæð,anddyri, herbergi, bað/þvottur, eldhús, stofa/borðstofa ásamt 7,6m² geymslu á 1.hæð.
Fasteignamat fyrir árið 2026 samkvæmt HMS er 66.100.000kr.Nánari lýsing:Anddyri: með góðum fataskápum sem ná upp í loft.
Eldhús: er opið inn í stofu, skilið frá með eldunareyju með spanhelluborði, rafmagnstenglar í eyju, gott skápapláss, AEG tæki.
Stofa: stofunni er skipt upp í stofu og borðstofu, útgengt á svalir með svalalokun.
Herbergið: er mjög rúmgott, parketlagt með skápum sem ná upp í loft.
Baðherbergi: er með sturtu, upphengdu salerni, og fallegri sérsmíðaðri innréttingu og með rými þvottavél og þurrkara inn af.
Fallegt harðparket á gólfum nema flísar á baði/þvottahúsi.
Geymsla: á 1.hæð fylgir mjög rúmgóð sér geymsla.
Byggingaraðili er Sérverk ehf. sem er hefur starfað við góðan orðstír í um það bil 30 ár. Svalalokun. Gólfhiti. Sérsmíðaðar innréttingar frá Sérverk, íslensk framleiðsla.
Allar upplýsingar um eignina veitir Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali í síma 662 6163 eða bjarni@remax.is.
Vegna eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar, sjá upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. RE/MAX fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.