RE/MAX Ísland logo
Opið hús:18. ágúst kl 17:00-18:00
Skráð 14. ágúst 2025
Söluyfirlit

Daltún 9

ParhúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
246.8 m2
7 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
182.900.000 kr.
Fermetraverð
741.086 kr./m2
Fasteignamat
124.600.000 kr.
Brunabótamat
113.590.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Þórdís Björk Davíðsdóttir
Þórdís Björk Davíðsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1982
Þvottahús
Garður
Gæludýr leyfð
Tveir inngangar
Fasteignanúmer
2059445
Húsgerð
Parhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Sjá nánar í lýsingu eignar
Þak
Sjá nánar í lýsingu eignar
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Austur
Upphitun
Hitaveita/Danfoss
Inngangur
Tveir inngangar
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Komið er að viðhaldi á gluggum við svalir.
Þórdís Björk Davíðsdóttur löggiltur fasteignasali og RE/MAX kynna:
Einstaklega fallegt, vel viðhaldið og vel staðsett 6-7 herb. parhús á þremur hæðum í Kópavogi með möguleika á auka íbúð í kjallara með sér inngangi.
Eignin er sérlega fjölskylduvæn og er göngufært í leik-, grunn- og menntaskóla og einnig er stutt að sækja í alla helstu þjónustu. 
Samkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 246,8 fm sem skiptist í íbúðarhús 220,2 fm og sérstæður bílskúr 26,6 fm.
Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Þórdís Björk löggiltur fasteigna- og skipasali s: 862-1914 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið thordis@remax.is


  SMELLTU HÉR og þú færð SÖLUYFIRLIT SAMSTUNDIS


* Fyrirhugað fasteignamat fyrir árið 2026 er kr. 138.850.000.-*

* Endurbætur og viðhald seljenda á eigninni síðustu ár *
  • 2017: Eldhús endurnýjað og gólfefni á miðhæð.
  • 2020: Þak – járn ásamt pappa og þakkanti endurnýjað. Klæðning á suðurhlið endurnýjuð ásamt gleri og glerlistum. Ný bílskúrshurð með rafmagnshurðaopnara.
  • 2021: Nýr pallur norðan megin, múrviðgerðir á norðurhlið og heitur pottur endurnýjaður.
  • 2022: Kjallari allur endurnýjaður (baðherbergi, gólfefni, hurðar).
  • 2023: Efsta hæð endurnýjuð (innréttingar, vaskur, blöndunartæki á baðherbergi, gólfefni, hurðar). Barnaherbergi opnað og gert fataherbergi.
  • 2025: Nýr skápur í forstofu, ný borðplata, vaskur og blöndunartæki á baðherbergi. Skipt um innihurð.
Daltún 9 er einstaklega notalegt, fallegt og vel skipulagt parhús í grónu og skjólgóðu umhverfi í Kópavogi. Húsið er á þremur hæðum og býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika, m.a. að útbúa auka íbúð í kjallara með sér inngangi.

Nánari lýsing eignar:
-----
Aðalhæð - jarðhæð  

Komið er inn í flísalagða forstofu með nýjum fataskápum frá IKEA (2025)
Við forstofuna er gestasalernið sem er með nýrri borðplötu, handlaug og blöndunartækjum. Eikar innrétting er undir handlaug, gluggi með opnanlegu fagi og eru flísar á gólfi og veggjum.
Falleg hvít vængjahurð með gleri aðskilur forstofu frá alrými aðalhæðar.
Stofan er rúmgóð og einstaklega björt með parketi á gólfi. Útgengt er á stóra skjólgóða timburverönd sem er sunnan megin við húsið og er nýlegur heitur pottur og steypt kamína.
Eldhúsið / borðstofan var allt endurnýjað 2017 og er einstaklega bjart og vel skipulagt rými með hvítri eldhúsinnréttingu frá IKEA, flísum á milli skápa og á borðum, háfi yfir gas helluborði (gaskútur er fyrir utan húsið), tengi fyrir uppþvottavél og virkilega góðu skápaplássi bæði í veggfastri innréttingu og eyju.
----
Efri hæð - var öll endurnýjuð að innan árið árið 2023

Samkvæmt teikningum eru þrjú svefnherbergi og baðherbergi, en í dag eru tvö stór svefnherbergi og baðherbergi.
Herbergi I er hjónaherbergið sem er með innangengu fataherbergi (upphaflega þriðja herbergið). Útgengt er á svalir úr hjónaherbergi sem liggja eftir öllum austurgafli hússins.
Herbergi II er einstaklega rúmgott og nýtist í dag sem fjölskyldu- eða sjónvarpsherbergi.
Á baðherbergi er sturta, upphengt salerni, falleg innrétting undir handlaug, handklæðaofn, allt að gólfsíður spegill og flísar í hólf og gólf. 
Mikil lofthæð er yfir allr efri hæðinni sem gefur öllum rýmum meira andrými.
----
Kjallari / neðsta hæð -  var öll endurnýjuð að innan árið 2022

Rúmgóð stofa með Akupanel hljóðdempandi þiljum, parketi og gluggum til norðurs og austurs.
Svefnherbergi með góðum fataskápum, gluggum til norðurs og austurs og útgengi í garð.
Stórt og einstaklega vel hannað baðherbergi með upphengdu salerni, fallegri innréttingu undir handlaug, walk-in sturtu, baðkari með frístandandi blöndunartækjum og innbyggðri lýsingu í niðurteknu lofti sem skapar spa-stemningu. Gólfhiti er á baðherbergi.
Þvottahús er rúmgott með góðri innréttingu með vaski, borðplötu undir þvottavél og þurrkari í hleðsluhæð og taukörfur þar undir. Gott geymslurými er einnig í þvottahúsi.
Hægt er að breyta kjallara / neðstu hæð í aukaíbúð með sér inngangi (allar lagnir fyrir hendi).
----
Sérstæður bílskúr
er 26,6 fm með rafdrifinni hurð (endurnýjuð ásamt hurðaopnara árið 2020) og sér inngangshurð á austurhlið. Gluggar með opnanlegu fagi, heitt og kalt vatn. Bílastæði er fyrir 3 bíla við húsið.
Garður:
Stór, afgirt timburverönd er sunnan megin með nýlegum heitum potti (2021) og steyptri kamínu.
Afgirt timburverönd norðan megin við húsið var smíðuð árið 2021 ásamt skjólveggjum og hliði.
----
Ath:
Komið er að viðhaldi á gluggum við svalir. Eftir er að setja ofn í forstofu en hann er til nýr.
Þetta er einstaklega vel við haldið og rúmgott fjölskylduhús á frábærum stað í Kópavogi, með möguleika á að nýta kjallara sem aukaíbúð. Allar innihurðir í húsinu eru endurnýjaðar.


- Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
- Ertu í söluhugleyðingum? Smelltu HÉR til að fá frítt verðmat.

 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
·      Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða) og 1,6% (ef lögaðilar)af heildarfasteignamati.
·      Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
·      Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
·      Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk
 
Byggt 1989
26.6 m2
Fasteignanúmer
2059445
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Brunabótamat
8.340.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Digranesheiði 27
200 Kópavogur
244.2 m2
Einbýlishús
745
799 þ.kr./m2
195.000.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Fagrabrekka 34
200 Kópavogur
232.7 m2
Raðhús á tveimur hæðum
625
722 þ.kr./m2
167.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2025 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin