RE/MAX Ísland logo
Skráð 24. mars 2026
Söluyfirlit

Asparfell 4

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-111
94.1 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
59.900.000 kr.
Fermetraverð
636.557 kr./m2
Fasteignamat
58.600.000 kr.
Brunabótamat
46.500.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Sveinn Gíslason
Sveinn Gíslason
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1973
Þvottahús
Lyfta
Garður
Útsýni
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2051822
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
7
Hæðir í húsi
8
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
5
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta
Þak
Endurnýjað að hluta
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
RE/MAX kynnir til sölu bjarta og vel skipulagða þriggja herbergja 94,1 fm íbúð að Asparfelli 4,111 Reykjavík.
Fallegt útsýni er úr íbúðinni ásamt rúmgóðum svölum sem snúa í suð-vestur.

Um er að ræða 3. herbergja 94,1 fm íbúð á 7. hæð í lyftuhúsi við Asparfell 4 í Breiðholtinu. Samkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 94,1 fm og skiptist þannig að íbúðin er 89,1 fm og sérgeymsla er 5 fm. Húsinu hefur verið vel viðhaldið í gegnum árin, meðal annars var farið í stórar framkvæmdir á gluggum, múr og þaki árið 2022 til 2024 en búið er að klæða húseignina með viðhaldsléttri álklæðningu. Einnig var komið fyrir djúpgámum á bílastæði. Fjöldi bílastæði eru við húsið. Tyrfður bakgarður með hellulögðum göngustígum. Búið er að koma upp nokkrum rafhleðslustöðvum. Öflugt húsfélag er í eigninni. 

Stutt er í alla almenna þjónustu, leik- og grunnskólar í göngufæri ásamt líkamsrækt, sundlaug, bókasafni og íþróttaiðkun. 

Eignin er laus og getur því afhending farið fram við kaupsamning.

Allar nánari upplýsingar veitir Hilmar Arnarson / hilmar@remax.is / sími 823-3673. Aðstoðamaður fasteignasala

Skoðaðu eignina í 3D hér. 

Nánari lýsing eignar:
Forstofan er mjög rúmgóð með ljósum flísum á gólfi. Í forstofu er stór og góður innbyggður fataskápur með rennihurðum, sem nær upp í loft. 
Eldhúsið gengið úr forstofu inn um rennihurð (auðvelt er þó að fjarlægja). Upprunaleg viðarinnrétting með góðu skápaplássi í efri og neðri skápum. Bökunarofn í vinnuhæð hefur nýlega verið endurnýjaður ásamt helluborði og gufugleypi. Nýlegt blöndunartæki. Flísalagt á milli innréttinga með "subway" flísum í retro stíl. Nýlegt parket (2021) á gólfi sem flæðir inn í borðstofu og stofu. Stór og góður gluggi hleypir mikilli birtu inn í eldhúsið.
Stofa og borðstofa eru björt rými með gluggum í suður og flottu útsýni. Nýlegt parket er á rýminu og útgengt er þaðan út á 6 fm svalir. Skipt hefur verið um ofna í öllu alrými (2021)
Hjónaherbergið er með nýlegu parketi á gólfi. Rúmgott og bjart herbergi með fataherbergi eða "walk in" closet, gengið inn um rennihurð. Stór gluggi með góðu útsýni úr hjónaherbergi. 
Barnaherbergið er með nýlegu parketi á gólfi og lausum fataskáp sem fylgir. Skipt hefur verið um ofn í barnaherbergi.
Baðherbergið Linoleum dúkur á gólfi, flísar á veggjum sem ná upp í loft, fallegir loftalistar. Baðkar með sturtu og dökk innrétting, veggskápur og speglaskápur.
Þvottahús: Sameiginlegt þvottahús er á hæðinni. 
Sérgeymsla fylgir íbúðinni 5 fm og er í sameign í kjallara hússins. Einnig er sameiginleg geymsla í sameign á hæðinni. 
Hjóla- og vagnageymsla er einnig í sameign.

Allar upplýsingar veitir Hilmar Arnarson, hilmar@remax.is, sími 823-3673, aðstoðamaður fasteignasala og Sveinn Gíslason lögmaður/löggiltur fasteignasali sveinn@remax.is.
Remax fasteignasala sími 477-7777. www.remax.is

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Sambærilegar eignir

Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Grensásvegur 60
108 Reykjavík
77.5 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
312
799 þ.kr./m2
61.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Nýlendugata 20
101 Reykjavík
77.6 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
312
772 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Hrísrimi 5
112 Reykjavík
69.5 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
312
862 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Rofabær 43
110 Reykjavík
82 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
312
718 þ.kr./m2
58.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin