RE/MAX kynnir til sölu bjarta og vel skipulagða þriggja herbergja 94,1 fm íbúð að Asparfelli 4,111 Reykjavík.
Fallegt útsýni er úr íbúðinni ásamt rúmgóðum svölum sem snúa í suð-vestur.Um er að ræða 3. herbergja 94,1 fm íbúð á 7. hæð í lyftuhúsi við Asparfell 4 í Breiðholtinu. Samkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 94,1 fm og skiptist þannig að íbúðin er 89,1 fm og sérgeymsla er 5 fm. Húsinu hefur verið vel viðhaldið í gegnum árin, meðal annars var farið í stórar framkvæmdir á gluggum, múr og þaki árið 2022 til 2024 en búið er að klæða húseignina með viðhaldsléttri álklæðningu. Einnig var komið fyrir djúpgámum á bílastæði. Fjöldi bílastæði eru við húsið. Tyrfður bakgarður með hellulögðum göngustígum. Búið er að koma upp nokkrum rafhleðslustöðvum. Öflugt húsfélag er í eigninni.
Stutt er í alla almenna þjónustu, leik- og grunnskólar í göngufæri ásamt líkamsrækt, sundlaug, bókasafni og íþróttaiðkun.
Eignin er laus og getur því afhending farið fram við kaupsamning.Allar nánari upplýsingar veitir Hilmar Arnarson / hilmar@remax.is / sími 823-3673. Aðstoðamaður fasteignasalaSkoðaðu eignina í 3D hér. Nánari lýsing eignar:Forstofan er mjög rúmgóð með ljósum flísum á gólfi. Í forstofu er stór og góður innbyggður fataskápur með rennihurðum, sem nær upp í loft.
Eldhúsið gengið úr forstofu inn um rennihurð (auðvelt er þó að fjarlægja). Upprunaleg viðarinnrétting með góðu skápaplássi í efri og neðri skápum. Bökunarofn í vinnuhæð hefur nýlega verið endurnýjaður ásamt helluborði og gufugleypi. Nýlegt blöndunartæki. Flísalagt á milli innréttinga með "subway" flísum í retro stíl. Nýlegt parket (2021) á gólfi sem flæðir inn í borðstofu og stofu. Stór og góður gluggi hleypir mikilli birtu inn í eldhúsið.
Stofa og borðstofa eru björt rými með gluggum í suður og flottu útsýni. Nýlegt parket er á rýminu og útgengt er þaðan út á 6 fm svalir. Skipt hefur verið um ofna í öllu alrými (2021)
Hjónaherbergið er með nýlegu parketi á gólfi. Rúmgott og bjart herbergi með fataherbergi eða "walk in" closet, gengið inn um rennihurð. Stór gluggi með góðu útsýni úr hjónaherbergi.
Barnaherbergið er með nýlegu parketi á gólfi og lausum fataskáp sem fylgir. Skipt hefur verið um ofn í barnaherbergi.
Baðherbergið Linoleum dúkur á gólfi, flísar á veggjum sem ná upp í loft, fallegir loftalistar. Baðkar með sturtu og dökk innrétting, veggskápur og speglaskápur.
Þvottahús: Sameiginlegt þvottahús er á hæðinni.
Sérgeymsla fylgir íbúðinni 5 fm og er í sameign í kjallara hússins. Einnig er sameiginleg geymsla í sameign á hæðinni.
Hjóla- og vagnageymsla er einnig í sameign.
Allar upplýsingar veitir Hilmar Arnarson, hilmar@remax.is, sími 823-3673, aðstoðamaður fasteignasala og Sveinn Gíslason lögmaður/löggiltur fasteignasali sveinn@remax.is.
Remax fasteignasala sími 477-7777. www.remax.is1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.