RE/MAX Ísland logo
Opið hús:19. sept. kl 15:15-15:45
Skráð 16. sept. 2026
Söluyfirlit

Langahlíð 19

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
82.5 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
69.900.000 kr.
Fermetraverð
847.273 kr./m2
Fasteignamat
64.350.000 kr.
Brunabótamat
44.000.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1949
Garður
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2013483
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Nýtt rafmagn dregið í íbúðina og ný rafmagnstafla árið 2025.
Frárennslislagnir
Sjá yfirlýsingu húsfélags og aðalfundar gerð
Gluggar / Gler
Allir gluggar innan íbúðar endurnýjaðir arið 2022 og í sameign þar sem talin var þörf á
Þak
Þakjárn endurnýjað árið 2014
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Svalir til vesturs með flott og gott útsýni
Upphitun
Hefðbundið ofnakerfi
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Samkvæmt yfirlýsingu húsfélags fyrir Lönguhlíð 19, þá er engar framkvæmdir fyrirhugaðar. 
Samkvæmt yfirlýsingu húsfélags fyrir Lönguhlíð 19-23, húsfélags um lóð og ytra byrði, kemur eftirfarandi fram: 

Á aðalfundi 2024 kom fram að það þurfi að mynda skolplögn og er stjórn að skoða það mál. Sjá aðalfundargerð 04.03.2024.
Á aðalfundi 2025 var kynnt og samþykkt tilboð í brunavarnir. Einnig var kynnt tilboð í uppsetningu á hleðslustöðvum og var það samþykkt. Stjórn ætlar að afla tilboða í málningu á stóru gluggana í sameign stigaganganna og fékk heimild til að taka lóðina í gegn. Sjá aðalfundargerð 31.03.2025.
Á aðalfundi 2026 var rætt um að ekki væri enn búið að setja upp brunavarnir né hleðslustöðvar sem samþykkt var á síðasta aðalfundi. Stjórn mun sækja um uppfærð tilboð og boða til nýs fundar þegar þau liggja fyrir. Rætt um að fá tilboð í hekk í kringum lóðina og láta skoða með lekar rennur. Sjá aðalfundargerð 16.03.2026
 
Guðlaugur J. Guðlaugsson löggiltur fasteignasali og RE/MAX fasteignasala kynna í einkasölu: 

Glæsilega, vel skipulagða og mikið endurnýjaða tveggja herbergja íbúð sem auðvelt er að breyta í þriggja herbergja. Íbúðin er 82,5 m² og er á þriðju hæð í mikið endurnýjuðu fjölbýlishúsi við Lönguhlíð 19, 105 Reykjavík.

Frá íbúðinni er fallegt útsýni að Perlunni, yfir Klambratún, að Hallgrímskirkju og víðar.

Mögulegt er að færa eldhúsið inn í stofuna og nýta núverandi eldhús sem svefnherbergi. Lagnir og tengingar eru þegar til staðar. Með þessari breytingu yrði íbúðin þriggja herbergja.

Samkvæmt fasteignayfirliti er íbúðarrýmið 68,0 m². Að auki fylgir 9,4 m² herbergi í risi, sem skráð er sem geymsla, ásamt 5,1 m² sérgeymslu í kjallara. Heildarstærð eignarinnar er því 82,5 m².

Smelltu á hlekkinn til að skoða íbúðina í þrívídd

Bókið skoðun hjá Gulla í síma 661-6056 / gulli@remax.is

Nánari lýsing: 

Komið er inn í rúmgott hol með harðparketi á gólfi. Parketið er samfellt um alla íbúðina að undanskildu baðherberginu, sem er flísalagt.
Eldhúsið er glæsilegt og bjart. Eldhúsinnréttingin hefur verið endurnýjuð að hluta og eldri hluti hennar gerður upp. Þar eru kvarssteinsborðplötur og gott skápa- og skúffupláss. Eldhúsið er útbúið spanhelluborði, undirlímdum vaski og innbyggðri uppþvottavél. Tengi og rými eru fyrir ísskáp.
Stofan er stór, rúmgóð og björt, með útgengi á svalir sem snúa í suðvestur. Þaðan er fallegt útsýni að Perlunni, yfir Klambratún, að Hallgrímskirkju og víðar. Tengi og lagnir eru í enda stofunnar svo hægt sé að færa eldhúsið þangað.
Baðherbergið er mjög smekklegt og nýlega endurnýjað, með fallegri innréttingu og glæsilegum flísum. Þar er sérsmíðuð baðinnrétting með kvarssteinsborðplötu og undirlímdum vaski. Einnig eru þar innfelld VOLA-blöndunartæki, sturtuskilrúm úr gleri, upphengt salerni og fallegur, hringlaga gluggi sem hægt er að opna.
Hjónaherbergið er rúmgott og bjart og þar er gott skápapláss.
Í risinu er 9,4 m² herbergi (skráð sem geymsla) með parketi á gólfi sem fylgir íbúðinni. Þar sem herbergið er undir súð er gólfflöturinn nokkuð stærri en skráð fermetratal gefur til kynna. Í herberginu er opnanlegur gluggi.
Í kjallara er 5,1 m² sérgeymsla ásamt sameiginlegu og snyrtilegu þvottahúsi.

Endurnýjun innan íbúðar. 
Árið 2025 var dregið nýtt rafrmagn í íbúðina og tafla endurnýjuð.
Árið 2024 var farið í gegnum fataskáp í svefnherbergi til að koma leiðslum fyrir, til að hafa möguleika á að færa eldhús inn í stofu líkt og íbúðin á hæðinni fyrir neðan og ofan hafa gert. Tengi komið þar ef fólk hefur áhuga á að færa eldhús.
Árið 2023 var baðherbergi endurnýjað. Baðkar tekið og sturta sett í staðinn. Innrétting smíðuð af Formus. 
Árið 2022 voru allir gluggar endurnýjaðir innan íbúðarinnar. 
Árið 2019 var eldhús endurnýjað á smekklegan hátt, ofn og helluborð Siemens 
Árið 2018 var skipt um parket birgisson til 1 kassi niðri í geymslu.

Endurnýjun á ytra byrði hússins, Langahlíð 19-23
Árið 2014 var þakjárn og þakpappi endurnýjað. 
Árið 2018 voru framkvæmdir á sameiginlegu baði uppi á 5. hæð í Lönguhlíð 19 (skipt um flísar, skáp og blöndunartæki)
Árin 2020-2022 voru allir gluggar í húsinu yfirfarnir af Verksýn ehf, skipt um alla þá glugga sem nauðsynlegt var. Jafnfram var farið í múrviðgerðir, ný steining sett utaná húsið, kopar þakrennur, dyrasímar endurnýjaðir, útihurð pússuð upp og lökkuð.
Við framkvæmdir hússins var stuðst við upprunalegt útlit og unnið eftir tillögum Húsafriðunarnefndar Reykjavíkur.

Lóðin er stór með hellulagðri stétt, grasflöt að framan, sameiginlegum bílastæðum bakatil og er í óskiptri sameign hússins.

Virkilega hugguleg og vel staðsett eign miðsvæðis í Reykjavík þaðan sem stutt er í leikskóla, barnaskóla, Háskóla, Kringluna, Sundhöllina, Klambratún og miðbæ Reykjavíkur. 

Nánari upplýsingar veitir: Guðlaugur J. Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 661- 6056 / gulli@remax.is

Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.

 

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Stigahlíð 10
105 Reykjavík
83 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
3
842 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Bugðulækur 5
105 Reykjavík
83.8 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
312
834 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Laugateigur 17
105 Reykjavík
91.6 m2
Fjölbýlishús með sérinngangi
3
763 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Laugarnesvegur 106
105 Reykjavík
89.3 m2
Fjölbýlishús
412
783 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin