Einstaklega falleg og mikið endurnýjuð tveggja herbergja íbúð á fyrstu hæð með sérinngangi og stórum palli til suðurs. Laus við kaupsamning. Upplýsingar gefur Óskar Bergsson löggiltur fasteignasali í síma 893 2499 og oskar@remax.is Forstofan er lítil en vel skipulögð með skóskápum á vegg. Gengið inn í hol og er opið úr því inn í eldhús og stofu. Stofan er björt og rúmgóð og gengið úr stofu út á pall og er leyfi fyrir garðskála í eignaskiptayfirlýsingu. Baðherbergið er bjart og rúmgott með góðu skápaplássi. Í eldhúsinu sem er með tveimur opnanlegum gluggum er ný eldhúsinnrétting með hvítum neðri skápum, dökkum efri skápum og límtrésborðplötu og hliðum. Tækin í eldhúsinu eru eldri en innréttingin, frá árabilinu 2010 – 2016. Baðherbergið er allt endurnýjað og var skipt um baðveggina og nýir veggir, hlaðnir pússaðir og flísalagðir. Öll hreinlætistæki og lagnir endurnýjaðar. Niðurlímt ljóst eikar plankaparket á gólfum og gólfhiti. Innihurðir eru hvítar yfirfelldar. Þvottahús er sameiginlegt með efri hæð og er hluti þess nýtt sem geymsla. Snjóbræðsla við inngang. Íbúðin og húsið hefur verið mikið endurnýjað. Árið 2021 var austurgafl (útveggur) sprunguþéttur með inndælingu og einangrun á austurgafli (innveggur) endurnýjuð með hefðbundinni plasteinangrun og múrað. Frárennslislagnir innandyra endurnýjaðar og lagðar nýjar drenlagnir ásamt lagnabrunnum og tengingum við fráveitu Árið 2022 var snjóbræðslukerfi sett í gangstíg frá útidyrum út að lóðarmörkum, þakjárn og þakpappi endurnýjaður, þakrennur klæddar með bræddum tjörupappa til að halda upprunalegu útliti og niðurfallsrör endurnýjuð. Sólpallur settur upp við suðurhlið. Árið 2023 voru útveggir á hluta hússins númer 93 málaðir og geymslukassi settur upp við sólpall Árið 2025 var rafmagnstafla (aðaltafla/inntak) endurnýjuð.
Hér er um að ræða mjög fallega og vel uppgerða íbúð á vinsælum stað. Nánari upplýsingar gefur Óskar Bergsson löggiltur fasteignasali í síma 893 2499 og oskar@remax.is
Eftir að mála vestur hluta hússins nr. 91 sjá samþykkta yfirlýsingu húsfélags.
Gallar
Útitengill er aftengdur.
Kvöð / kvaðir
Það sem fylgir ekki með íbúðinni eru snagar í forstofu, Ring öryggiskerfi, samtengd dyrabjalla og Montana og String hillur í stofu.