RE/MAX ásamt Guðbjörgu Helgu og Gylfa Jens löggiltum fasteignasölum kynna Stóragerði 6, 108 Reykjavík.Björt og rúmgóð fjögurra herbergja íbúð á 2. hæð á góðum stað miðsvæðis í Reykjavík.
Birt flatarmál eignarinnar skv. fasteignaskrá er 116,7 fm og skiptist í íbúðarhluta 95,8 fm og bílskúr 20,9 fm. Samkvæmt eignaskiptasamningi fylgir íbúðinni geymsla með glugga merkt 00-10, sem er í útleigu í dag og er hún ekki skráð í birta fermetrastærð í fasteignaskrá.
**SÆKJA SÖLUYFIRLIT SJÁLFVIRKT HÉR**
**SKOÐAÐU EIGNINA BETUR Í ÞRÍVÍDD OG GANGTU UM HANA Í TÖLVUNNI**Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús, 3 svefnherbergi, stofu/borðstofu, baðherbergi og geymlsu innan íbúðar. Auk þess fylgir bílskúr og sérgeymsla/herbergi í kjallara. Tvennar svalir, norðaustur og suðvestur.
Nánari lýsing íbúðar:Samstætt parket er í íbúðinni fyrir utan eldhús og baðherbergi þar sem eru flísar.
Anddyri: Stór fataskápur með rennihurðum.
Eldhús: Hvít og grá innrétting með góðu skápaplássi. Flísar á mili skápa. Bakaraofn, helluborð og vifta. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Borðkrókur.
Stofa/borðstofa: Afar rúmgóð og björt. Útgengi út á suðvestur svalir.
Herbergi I: Rúmgott með góðu skápaplássi. Útgengt út á norðaustur svalir.
Herbergi II: Með fataskáp. Gluggi til norðausturs.
Herbergi III: Minna herbergi milli stofu og eldhúss. Gluggi til suðausturs.
Baðherbergi: Innrétting með ofanáliggjandi vaski. Skápur. Baðkar með sturtuaðstöðu. Flísar á gólfi og við baðkar. Opnanlegur gluggi til norðausturs. Stæði fyrir þvottavél og þurrkara.
Lítil
geymsla er innan íbúðar við eldhúsið.
Kjallari:Geymsla/herbergi - 12,7 fm herbergi í kjallara með góðum glugga. Parket á gólfi.
Sameign - Í kjallara er húsfélagið að leigja út herbergi og fara leigutekjur af þeim í hússjóð.
Þvottahús er sameiginlegt í kjallara.
Vagna- og hjólageymsla er sameiginleg í kjallara.
Bílskúr:Sér bílastæði fyrir framan bílskúrinn. Heitt, kalt og rafmagn til staðar. Flísalagður og settar veðurhlífar á norðurhlið árið 2017. Rafmagnstengill á sér öryggi hefur verið settur við bílskúrinn fyrir hleðslu bifreiðar.
Góð eign á vinsælum stað miðsvæðis í Reykjavík í grend við fjölbreytta þjónustu, leik- og grunnskóla ásamt íþróttasvæði Víkings við Safamýri.
Allar frekari upplýsingar um eignina veita:
Guðbjörg Helga löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur í netfanginu gudbjorg@remax.is og síma 897-7712
Gylfi Jens löggiltur fasteignasali og lögmaður í netfanginu gylfi@remax.is og síma 822-5124